Leita í fréttum mbl.is

Kóngsins járn og arbeið

Það var nú svosem óþarfi að setja hinn danska ferðalang í járn fyrir að fá sér örlítið neðaníðí í flugvélinni og svala tóbaksfýsn sinni inni á klósetti. Og ekki lái ég honum þó hann hafi, frekar en ekkert, reynt að ná fram hefndum, þó í litlu væri, með því að bregða fæti fyrir lögregluþjón sem ætlaði stinga honum í svartholið. Auðvitað hefur maðurinn orðið reiður þegar honum varð ljóst að hann mætti þola kóngsins járn og arbeið, eins og það var kallað hér áður og fyrr, fyrir ekki meira smáræði en að reykja sér einn vindling inni á klósetti.

Svo getum við líka velt fyrir okkur hvað stjörnusýslumaðurinn Stones á Selfossi myndi taka til bragðs ef einhver þegna hans, sem uppvís yrði af reyktóbaksnotkun inni á veitingastað, setti fyrir hann fótinn þegar hann væri að draga kauða úr húsi. Ekki búum við íslendingar svo vel að eiga nein kóngsins járn og arbeið og þrælakistan á Bessastöðum er löngu fyrir bí, en hýðingar og Stóridómur aflögð. Hvað er þá til ráða fyrir einn djarfan stjörnusýslumann sem þarf að hegna reykspúandi uppivöðslusegg sem brotið hefur landsins lög um bann við reykingum á veitngahúsum? 


mbl.is Reykti í flugvél og slasaði lögregluþjón.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Elín Arnarsdóttir

Það er nú bara alls ekkert smáræði að fá sér sígarettu á salerni í flugvél. Maðurinn var að setja alla farþega og áhöfn flugvélarinnar í stórhættu. Það er sko ekkert grín ef að eldur kemur upp í flugvél sem að er að öllum líkindum í 11 km hæð, þar er ekkert slökkvilið og flugvélar og innmunir þeirra eru mjög eldfimt. Einnig eru súrefniskútar víðsvegar um vélarnar - það getur því orðið vægast sagt disaster ef að eldur kemur upp í vél. Umræddur maður á ekkert annað skilið en að dúsa inni, bæði fyrir að stefna lífi fjölda fólks í hættu, fyrir að brjóta lög og í ofan á lagt að slasa mann fyrir það eitt að vinna vinnuna sína!!!

Margrét Elín Arnarsdóttir, 30.1.2008 kl. 11:21

2 Smámynd: Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir

Svo er það líka sagt í flugvélum að það varði við lög að reykja inni í vélunum og svo stendur líka einhversstaðar...svo að þessi maður á að sjálfsögðu skilið að sitja inni fyrir þetta brot.

Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir, 30.1.2008 kl. 12:36

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Jaháá, það er sko ekkert spaug að kveikja í flugvél með vindlingi, tek undir það. En hvað ætli hafi kviknað í mörgum flugvélum í gegnum tíðina út frá tóbaksglóð? Þær hljóta að vera fjarska margar fyrst búið er að banna reykingar í flugvélum. Og hvað þá með alkohólið, er ekki rétt að banna fólki að brúka þessháttar í flugvélum?

En af hverju ætli manngarmurinn hafi verið lagður í kógsins járn fyrir þessa óheppilegu yfirsjón sína?

Jóhannes Ragnarsson, 30.1.2008 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband