Leita í fréttum mbl.is

Jénífera gyrðir ærlega uppum sig

sex3Ósköp er nú mikið í það varið hjá henni Jéníferu að vera búin að leggja allt kynferðislíf á hilluna því þetta tiltekna ,,líf" er náttúrlega eins og hver annar subbuskapur og öllum til hnjóðs sem það stunda. Það er því mikið gleðiefni, að vitsmunavera eins og Jénífera, skuli hafa séð ljósið í myrkri frumskógarflækju eðlunarfýsnarinnar, og í framhaldi af því gyrt ærlega uppum sig í eitt skipti fyrir öll. Afturámóti fipast henni illilega þegar hún fellur í það forað að tala um ,,sanna ást." Sönn ást er að sjálfsögðu ekki til, aðeins girnd eða gredda, eða hvað menn og konur vilja kalla það.

Svo er bara að vona að fleiri konur taki Jéníferu sér til fyrirmyndar með því að gyrða sig myndarlega í brók. Geri þær það ekki, eiga þær á hættu að fá á sig nafnbótina ,,brókarsóttargemlingur." 


mbl.is Ekkert kynlíf í hálft ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

:)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 27.2.2008 kl. 15:38

2 Smámynd: corvus corax

Nú hljótum við að hafa misst af einhverju, hver er hún aftur þessi manneskja? Vinnur hún í Bónus eða einhverju leikhúsi? Kannski á pöbb? Við megum eiginlega ekki vera að þessu núna því efnahagsdrepsótt græðgisvæðingar bankanna er mest aðkallandi núna. Er hún kannski í einhverri greiningardeildinni? Greiningardeild öryggisráðs femínistafélagsins?

corvus corax, 27.2.2008 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband