Leita í fréttum mbl.is

Reiði Guðs og Ríkisstjórnarinnar

reiðÓsköp er karlanginn orðinn hörundssár og móðgunargjarn, enda aldraður og lúinn eftir áratuga kaldastríðsvindgang. Gömlu fólki byrjar að senda fallega pósta og hugljúfa, en ekki illhryssingslegan ruddaskap.

Arnór Jónsson, sá er staðið hefir í bréfaskrifum við Björn gamla, kann að mínu viti ekki mannasiði til fullnustu og trúlega illa upp alinn í þokkabót, er samkvæmt öllum sólarmerkjum öldungis ófær um að skrifa bréf til dómsmálaráðherra, hvað þá annarra. Þann mann ætti að svipta öllum skriffærum allt frá blýantsstúfum uppí tölvur. Já, og láta stjörnusýslumanninn Stones hneppa manninn í gapastokk, almúganum til varnaðar, sérílagi vörubifreiðarstjórum sem kallað hafa yfir sig reiði Guðs og Ríkisstjórnarinnar.


mbl.is „Gerðu þjóðini greiða og skjótu þig"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

..og setja teiknibólu í stólinn hjá honum

Viðar Freyr Guðmundsson, 24.4.2008 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband