Leita í fréttum mbl.is

Presturinn ætti að bannfæra skoffínið Óbama

sérafool2Helvítis skoffín er þessi Óbama að svíkja sóknarprestinn sinn. Slíkan djöfulskap fremja aðeins guðníðingar og þrælmenni.

Fyrir nokkrum árum gerðist það í sókn einni hér á landi, að óþrifagemlingur nokkur afsagði sálusorgara sinn útaf kvennamálum. Þeir höfðu semsé báðir verið að eltast við sömu kerlinguna í nokkra mánuði og var lengi óljóst hvor þeirra hefði að lokum betur í þeirri viðureign. Til að flækja málið enn betur þá voru meðlimir þessarar kynlegu þrenningar allir í hjónabandi með öðru fólki. En þá fyrst tók í hnjúkana þegar óþrifagemlingurinn kom að prestinum og kvensniptinni í skrúðhúsinu í kirkjunni í heldur svona klæðafáu ástandi og ástúðlegu. Skipti engum togum að óþrifagemlingurinn varð svo afbrýgðisamur, að hann sagði sóknarpresti sínum að fara til andskotans og afsagði hann síðan opinberlega. Presturinn svaraði að bragði með því að bannfæra keppinaut sinn og við það situr. Það sama á sóknarprestur Óbama að gera, það er, að bannfæra hann til eilífðarnóns.   


mbl.is Obama snýr baki við prestinum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband