Leita í fréttum mbl.is

Uppvakningum og hvolpum sigað á Samfylkinguna

hundsbit2Hvaða helvítis uppvakningur er þessi Jón Gunnarsson, sem sagður er þingmaður Sjálfstæðisflokksins? Ég hefi bara aldrei heyrt minnst á þann huldumann fyrr en nú. En sennilega er þarna um að ræða einn af þessum þingmönnum Íhaldsins sem hafa þann starfa að vera fyrst og fremst áskrifendur að launum hjá ríkinu. 

En nú hefir Jóni þessum verið falið það hlutverk að bauna óþrifapillum á Samstarfsflokkinn, sem hét reyndar Samfylking síðast þegar ég vissi. Sennilega verða fleiri labbakútar gerðir út af örkinni á næstunni til að væla opinberlega undan meinlausum og værðarfullum samfylkingargörmum. Og sjálfsagt gera flestir sér grein fyrir hverjir það eru sem standa fyrir því að siga hvolpunum á hæla ,,Samstarfsflokksins."


mbl.is Harðari tónn í garð samstarfsflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband