Leita í fréttum mbl.is

Skáldskapur Dagbókar-Matta orðinn að sagnfræði.

holy2Sko Dagbókar-Matta, fljótur var hann að snúa á Guðjón Friðriksson , enda er Matti skáld, meira að segja Hirðskáld hægrimanna, en í slíkri vegtyllu felst margt stórbrotið. Nú hefur hann komist hjá, með samkomulagi við Guðjón, að stroka ekki út úr dagbók sinni það sem sagnfræðingurinn vill meina að sé skáldskapur um sig. Á móti fær Guðjón pláss fyrir ritdóm sinn um meintan skáldskap í helgiriti Matta Jó, sjálfri Dagbókinni. Þar með hefur gamli moggaritstjórinn haft fullan sigur í þessu máli, og auk þess fengið löggildan sagnfræðingsstimpil á skáldskap sinn, að vísu með athugasemd frá Guðjóni, en það hlustar nú enginn á þessháttar mal. 
mbl.is Matthías Johannessen: Málið er úr sögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jóhannes, hvað meinar þú með "að það hlusti enginn þessháttar mal"?

Ég skil ekki þetta með fullan sigur Matthíasar!

 Gætirðu verið svo vænn að útskýra þetta?

Edda Agnarsdóttir, 31.8.2008 kl. 23:01

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ef það sem Matthías segir í dagbók sinni, um Guðjón, er eintóm lygaþvæla og rógur ætti hann auðvitað að fjarlægja það af netinu. En fyrst karlinn kemst upp með að gera það ekki, halda ávirðingar hans í garð Guðjóns áfram að líta út fyrir að vera að minnsta kosti einhverhverskonar sannleikur. Því breytir athugasemd Guðjóns ekki eins og vert væri. Í Guðjóns sporum hefði ég ekki linnt látum fyrr en skáldið hefði fjarlægt subbuskapinn og beðist opinberlega afsökunar.   

Jóhannes Ragnarsson, 1.9.2008 kl. 07:46

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Nokkuð til í því - mig grunar að það sé farið að slá í karlinn hann Matthías!

Edda Agnarsdóttir, 1.9.2008 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband