Leita í fréttum mbl.is

Öflugri mótmæli takk - burt með Jón Baldvin og aðrar hlaupatíkur

Við þær aðstæður sem nú eru uppi í þjóðfélaginu er þörf öflugra, hnitmiðaðra og árangursríkra mótmæla; mótmæla sem geta orðið farvegur fyrir almenna þjófélagsvakningu; mótmæla sem hafa að markmiði að kveða niður allar þær valdaklíkur sem komið hafa við sögu í hrunadansi síðustu ára og leitt hafa til stærsta skipbrots og mestu niðurlægingu Íslands í hundrað ár eða meira.

Til að slík mótmæli hafi tilætluð áhrif verður að vanda til verka. Reiði fólksins í landinu er til staðar, þjóðfélagslegt réttlæti hefur verið fótum troðið, ræningjar hafa gengið lausir undir verndarvæng hægrisinnaðra stjórnvalda. Þess vegna skýtur það skökku við, hljómar eins og illa kveðin öfugmælavísa, að Jón Baldvin Hanníbalsson, sem er óumdeilanlega einn af helstu arkítektum og upphafsmönnum frjálshyggjukapítalismans á Íslandi, skuli vera í fylkingarbrjósti andófsaðgerða gegn ráðastéttinni á Íslandi.

Það er hreint með ólíkindum, að við þessar aðstæður skuli það vera alræmdir tækifærissinnar og slepjulegar hlaupatíkur, sem óumbeðnar, hafa tekið að sér að leiða réttmæta reiði íslenskrar alþýðu. Maður er eiginlega agndofa og vonsvikinn að horfa uppá annan eins endemis fíflagang.

Og hverju eru tækfærissinnarnir og hlaupatíkurnar að mótmæla? Jú, þau eru að mótmæla því að Davíð Oddsson sé seðlabankastjóri og að ráðamenn þjóðarinnar séu einum of þegjandalegir um stöðu mála. Það er nú allt of sumt. Útúr svona froðufrussi kemur að sjálfsögðu ekkert; það er dæmt til að mistakast, fara út um þúfur. Og eftir vill, þegar upp verður staðið, í mesta lagi aðeins til þess fallið að styrkja stöðu öskuhaugalýðsins sem komið hefur þjóðinni á vonarvöl. Eða finnst fólki það ekki framúrskarandi barnalegt að persónugera vandamál líðandi stundar í einum manni: Davíð Oddssyni og hrópa: Daví burt! - Davíð burt! Rétt eins og málið sé ekki stærra og djúpstæðra. Ja, þvílík heimska, þvílíkt lýðskrum.

Ef fólk vill á annað borð fara út á göturnar til aðgerða, eiga mótmælin að beinast að núverandi ríkisstjórn, þá sérstaklega Sjálfstæðisflokknum, burgeisastéttinni, kapítalismanum, sem leitt hefur þjóðina út í botnlaust kviksyndi ómennskunnar. Fyrir slíku andófi á alþýðan í landinu að fara sjálf, en ekki afdankaðir dólgar, fyrrum húskarlar í frjálshyggjusöfnuði Davíðs seðlabankastjóra.    


mbl.is Þögn ráðamanna mótmælt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

HEYR HEYR!!!

Kjartan Pétur Sigurðsson, 25.10.2008 kl. 21:32

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Akkúrat Ragnar, ég gæti best trúað því að hlaupatíkin Jón baldni sé á launum hjá frjálshyggjusöfnuðinum til þess eins að niðurlægja lýðinn enn betur.

Hér duga engin helvítis vettlingatök, hyskið á að draga út úr fylgsnum sínum og kafhíða opinberlega áður en því er vísað eignarlausu úr landi með skömm.

Hallgrímur Guðmundsson, 25.10.2008 kl. 21:34

3 Smámynd: Rannveig H

Já Já ,,, kýrin (nautið) gleymdi að hann var einu sinni kálfur.

Rannveig H, 25.10.2008 kl. 21:39

4 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Ég verð að vera mjög ósammála ykkur með Jón Baldvin. Það er ekkert að því þó svo að hann sé þarna á meðal manna. Batnandi mönnum er best að lifa og það er mín skoðun að við hefðum stundum verið betur sett með lengur í stjórnmálum á íslandi.

Stefán Þór Steindórsson, 25.10.2008 kl. 21:47

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Að gefnu tilefni vil ég benda lesendum á færsluna: http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/687296/

Jóhannes Ragnarsson, 25.10.2008 kl. 22:57

6 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Það að Jón Baldvin og co hafi þurft að kljúfa mómælin í dag með tveimur fundum var bara hallærislegt.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 25.10.2008 kl. 23:50

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er ekki bara hallærislegt, Guðrún Þóra, það er óhæfuverknaður í lúalegri kantinum.

Jóhannes Ragnarsson, 25.10.2008 kl. 23:53

8 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Það eru Kolfinna og Jón Baldvin sem eru að reyna að kljúfa samstöðuna með því að boða til þessarar göngu, vilja ekkert af Herði & Co. vita og dreifa svo villandi upplýsingum. Rétt fyrir kl. 16 dreif fjölda fólks á Austurvöll, í góðri trú að mótmælin væru þá og ekki kl. 15. Það er svo sem ekki hægt að áfellast fólk sem fékk rangar upplýsingar, en það er hins vegar hægt að áfellast fólk sem viljandi dreifir villandi upplýsingum. Þetta er alvarlegt mál og ekki veit ég fyrir víst hvað feðginunum gengur til með þessu lúabragði. Hitt hef ég heyrt að endurreisn Alþýðuflokksins sé á prjónunum, í einhverri mynd. Það er óstaðfest, en ég gæti svo sem skilið það.

Vésteinn Valgarðsson, 25.10.2008 kl. 23:55

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála Jóhannes.  Ég mætti á kl. 15:00 fundinn hjá Herði og hann var góður.

Klúðrið er hjá prímadonnum af báðum kynjum, sem eru að vekja á sér athygli, sjálfum sér til framdráttar.  Ég bloggaði um mína upplifun.

Sigrún Jónsdóttir, 26.10.2008 kl. 00:05

10 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þetta er ótrúlegt hyski, Vésteinn. Það ætti að vera nóg fyrir alþýðu manna að kljást við ríkisstjórnar- og frjálhyggjuliðið, að ekki bætis Jón Baldvin og fjölskylda við þann andskotaflokk.

Jóhannes Ragnarsson, 26.10.2008 kl. 00:10

11 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það er greinilega erfitt að gera öllum til hæfis. Eftir fyrstu mótmælin fyrir framan Seðlabankann sá ég að einhverjir kvörtuðu undan því að þangað hefðu flykkst gamlir herstöðvarandstæðingar og toppað hallærisganginn með því að syngja gamla Nallann. Ég sá myndir frá þessum mótmælum og gat ekki séð marga sem höfðu aldur til að hafa gengið á móti hersetu á sínum tíma.

 Fyrir og eftir síðustu helgi voru allmargir sem bentu á að þeir hefðu kannski tekið þátt ef mótmælin hefðu ekki beinst gegn einum manni. Þeir sem tóku þátt í mótmælunum voru almennt ánægðir með mótmælin en settu út á þátt Harðar Torfasonar...

... og núna (og ég bið Véstein afökunar á að ég misskildi hann annars staðar þar sem hann lagði inn orð til sömu umræðu) eru einhverjir sem vilja meina að þessi mótmæli séu ómöguleg vegna einhvers klofnings meðal skipuleggjenda. Hver höndin sé upp á móti annarri og þeir séu að reyna að vinna á móti hver öðrum með misvísandi skilaboðum.

Tja, ég leyfi mér bara að efast en segi ekki meir. Ég sem bý á Akureyri vissi t.d. að útifundur byrjaði á Austurvelli kl. 15:00 og að þar myndi fjöldi fólks taka til máls. Kl. 16:00 átti svo að ganga frá Austurvelli að Ráðherrabústaðnum. Stóðst þessi dagskrá ekki??

Rakel Sigurgeirsdóttir, 26.10.2008 kl. 01:21

12 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Þessi "dagskrá" er nokkurn veginn það sem gerðist, nema þetta voru tvær aðskildar dagskrár og stóð önnur frá 15 til tæplega 16 og hin frá 16 og eitthvað frameftir.

Ég hef ekki orðið var við óánægju með Hörð Torfason nema hjá fólki sem hefur beinlínis hagsmuni af því að dissa hann. Sama með þetta um að mótmælin beinist gegn einum manni -- það er bara fyrirsláttur og það setur enginn fyrir sig sem á annað borð er alvara með að vera á móti ástandinu. Þau beindust ekkert bara gegn einum manni, þótt meiri athygli hafi kannski beinst að Davíð Oddssyni en flestum öðrum, enda er hann sekari en flestir aðrir í þessu máli.

Það er líka fyrirsláttur að kalla mótmælin ómöguleg vegna klofnings. Það var Kolfinna sem klauf, og gaf engar skýringar á því.

Mótmælin hjá Seðlabankanum voru boðuð af einhverjum Hrafnkeli sem ég þekki ekki og Nallasöngurinn var að hans frumkvæði en ekki gamalla komma.

Vésteinn Valgarðsson, 26.10.2008 kl. 01:50

13 identicon

Heyrðu nú mig Jóhannes og aðrir hér.. Hvernig væri þá að skipuleggja mótmæli sjálf í staðinn fyrir að væla yfir að mótmælin séu ekki nógu góð.. ég þoli ekki þegar fólk er að kvarta yfir öllu en gerir svo ekkert i málunum.. Sorry það er bara þannig..

Elín (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 02:52

14 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ég hef tekið fullan þátt í þessum mótmælum og skipulagningu þeirra þannig að ég væli ef mér sýnist! Jóhannes býr á Ólafsfirði.

Vésteinn Valgarðsson, 26.10.2008 kl. 03:18

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það sem stakk mig var að fólk eins og Kolfinna voru á fundinum sl laugardag og hvöttu alla sem þá mættu að mæta aftur næsta laugardag klukkan 15.00. Í vikunni gerist það svo að fundartilkynningar eru orðnar tvær..sami staður mismunandi tími. Sama fólkið en nú í tveimur hópum?? Ég tók þessu sem svo að fyrst yrði útifundur og ræður á Austurveli klukkan 15.00 og að þeim loknum yrði svo gengin blysför af sama fólki að ráðjherrabústaðnum. En nei. Kolfinna og einhverjir voru búin að kljúfa sig út úr fyrri hópnum og án nokkurra skýringa. Þetta hefur valdið ruglingi hjá almenningi sem loks er að rísa upp gegn óréttlætinu sem hann er beittur.

Kolfinna og co básúna að þau séu þreytt a þögn ráðamanna og að að almenningur fái engin svör. Nú krefst ég þess af ykkur að þið gefið fullnægjandi svör sem fyrst svo hinn sauðsvarti almúgi verði ekki bara derginn hingað og þangað um bæinn í einhverjum próinmadonnuleik fárra sem greinilega taka sinn hag fram yfir hag þjóðar. .Hvað gerðist sem klauf samstöðuna og hver vegna var ykkur ekki fært að vera áfram í fyrri hópnum??

Við hin eigum rétt á að vita hvort það hafi eitthvað með mismunandi gildi að gera eða hvort það var ekki nóg pláss á sviðinu fyrir alla.  

Þetta er ógeðslega ljót aðgerð í ljósi þess hversu mikilvægt það er að þjóðin standi saman gegn þessari ríkisstjórn og finni farveg fyrir andstöðu sína..að þá skuli þurfa að koma fram lið sem vill vera aðal og ekki með hinum. Fyrir mér er það ekkert nýtt..sami gamli hugsunarhátturinn og eiginhagsmunir enn við lýði. Ég hins vegar kýs ný öfl og annars konar hugsun. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.10.2008 kl. 09:08

16 Smámynd: jósep sigurðsson

Sælt veri fólkið.Er að mörgu leit sammála,en sagan er nú einu sinni þannig að reiði skilar engu og eyðileggur oft mástaðin.Þetta ættu nú sósíallistir kommar og kratar að vera búnir að læra.Að fara um víðan völl með mótmæli,skreyta þau með gömlum þekktum nöfnum svo sem Jóni og Herði nær ekki tilætluðum árangri.Þegar maður mótmælir þarf góð rök og skipulag,og að lokum ,"sá á nóg sem nægja lætur".Baráttukveðjur Jobbi

jósep sigurðsson, 26.10.2008 kl. 10:46

17 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Mér sýnist þetta vera nokkuð klassískt dæmi um "kontróleraða andstöðu" sem ætlað er að rugla málin og deyfa þau helst niður í ekki neitt.

Baldur Fjölnisson, 26.10.2008 kl. 19:22

18 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Afsakið aðeins.

Afhverju er fólk á móti þessarri dagskrá einsog hún var sem ein mótmæli eða tvenn?

Hörðu Torfa % Co voru kl 15:00 og svo var plönuð ganga með yfirskriftinni Rjúfum Þögnina kl 16 þar sem ganga átti að Ráðherrabústaðinum og krefjast svara. Fannst nú þessi ganga vera bara frábær.

Hef nú trú á því að fólk sem vill mótmæla þessa dagana hafi ekkert haft á móti því að taka þátt fyrst í mótmælunum á Austuvelli og ljúka þessu svo með að ganga að ráðherrabústaðinum. Ég vissi að báðum þessum mótmælum og leit allsekki á þetta sem einhvern klofning. Það hlýtur að vera einfeldni mín.

Afhverju tala fólk hérna um það að standa saman og styðja hvort annað og veltir sér svo uppúr þessu öllu saman? Því fleirri mótmæli því betra.

Stefán Þór Steindórsson, 26.10.2008 kl. 21:22

19 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég er ansi hræddur um, Stefán, að Jónsbaldvins&kolfinnugengið sé að notafæra sér ástandið í landinu sjálfu sér til framdráttar í einhverjum pólitískum skollaleik.  

Jóhannes Ragnarsson, 26.10.2008 kl. 22:03

20 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Án þess að ég geti kveðið upp neinn salómonsdóm á þessu stigi, er ég hræddur um að Jóhannes hafi rétt fyrir sér um það.

Stefán: Það var auðvitað ekkert athugavert við það að mæta kl. 15 og vera á útifundinum og fara síðan í gönguna beint á eftir. Gallinn var að af auglýsingum fyrir gönguna að dæma, mátti skilja að það væri bara gangan, ekki fundurinn -- og þess vegna mættu margir ekki fyrr en undir 16 og fundu út, sér til vonbrigða, að þeir höfðu misst af fyrri fundinum. Þetta hefði verið allt annað mál ef það hefði verið samráð og samstarf.

Ég sé Hörð alls ekki sem neina prímadonnu í þessu máli. Hann er bara borgari sem var misboðið og fór að mæta á mótmæli með öðrum. Hann er vanur að koma fram, þekkt andlit og vel til forystu fallinn, þannig að hann fór að eiga frumkvæði að ýmsu og drífa ýmislegt af stað, og við hin vorum bara ánægð með það. Ég veit ekki fyrir víst hvað Kolfinnu gekk til að splitta.

Vésteinn Valgarðsson, 27.10.2008 kl. 00:12

21 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Já ég hefði svosem viljað sjá auglýsinguna frá Kolfinnu & co taka það fram að gangan væri eftir mótmælin á Austurvelli.

En svo á hinn bóginn þá auglýstu Hörður & Co bara allsekki nægilega mikið og læra vonandi að þeim mistökunum. 

Stefán Þór Steindórsson, 27.10.2008 kl. 09:12

22 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Það er rétt hjá þér, Stefán. Það verður betur kynnt næst.

Vésteinn Valgarðsson, 27.10.2008 kl. 09:29

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessa frábæru færslu Jóhannes, alveg eins og talað út úr mínum munni.  Einhvernveginn verðum við að fá fólk til að vera meira samtaka, og taka þátt í mótmælunum á OKKAR forsendum, en ekki einhverra stjórnustæla.  Takk fyrir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.10.2008 kl. 14:51

24 Smámynd: Fríða Eyland

Get ekki verið meira sammála

Fríða Eyland, 30.10.2008 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband