Leita í fréttum mbl.is

Aðför byggð á yfirstéttarhræsni og ómennsku

Það varð heldur en ekki handagangur í hræsnaraöskjunni í gær útaf bréfinu sem Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi VG sendi á fjölmiðla varðandi árás borgaryfirvalda í Reykjavík á þjónustustarfsemi við unglinga. Af því að Þorleifi hafði orðið á að strika ekki út á einum stað nafn stúlku, sem hlut á að máli, þótti veraldarskoffínum og undimálsgerpum allrahanda bera vel í veiði og heimtuðu að Þorleifur segði strax af sér sem borgarfulltrúi. Að sama skapi var skoffínunum og gerpunum sama hvoru megin hryggjar unglingaheimilin Stígur og Tröð lentu.

Nú mætti ætla að bitvargurinn sem sótt hefur að Þorleifi væru engöngu málaliðar hægriflokkanna, þ.e. Samfylkingar, Stjálfstæðis- og Framsóknarflokks. En málið er bara ekki svo einfalt. Það vill svo til, að ég hef upplýsingar um að hægriarmurinn í VG tók ágætan þátt í að reyna að grafa undan Þorleifi og knýja hann til að segja af sér. Til dæmis mun varaborgarfulltrúinn Sóley Tomm hafa stokkið þrefalda hæð sína í loft upp þegar hún þóttist sjá hylla undir að hún yrði aðalborgarfulltrúi, eftir að Þorleifur væri horfinn af vettvangi. Og frú Svandís Svavarsdóttir mun hafa hlegið líka ásamt fleirum af því suðarhúsi.

Sem betur fer fór aðförin að félaga Þorleifi út um þúfur, þar eð hún var byggð á sandi yfirstéttarhræsni og ómennsku. En Þorleifur stendur sterkari eftir, sem ötull og sannur baráttumaður fyrir hagsmunum þeirra sem eiga undir högg að sækja.

 


mbl.is Álasa ekki Þorleifi fyrir bréfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Oddur Ólafsson

Meinar þú það sem þú segir ? Eða hefur rokið í Ólafsvík fækkað heilasellunum um of ?

Einar Oddur Ólafsson, 14.12.2008 kl. 22:42

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ójá, Einar Oddur, ég meina það sem ég segi í pistlinum hér að ofan. Enda er þar á engann hátt hallað réttu máli.

Þess utan hefðu vargarnir, sem ætluðu að ryðja Þorleifi Gunnlaugssyni úr vegi, gott af að fá nokkur vindstig af ólafsvíkurroki á berann botninn á sér. 

Jóhannes Ragnarsson, 15.12.2008 kl. 00:54

3 identicon

Heill og sæll; Jóhannes, í annarri atrennu (helvítis hægagangur, á tölvu fjandanum) og aðrir skrifarar og lesendur !

Þakka þér; athyglisverða frásögu, af Reykvízkum, Jóhannes. Sama sagan; með einkapot og sérdrægni Svavars, og dóttur.

Einar Oddur ! Átta mig ekki á; hvað þú vilt, upp á dekk, með þessarri samhengislausu athugasemd þinni, hér á síðu.  

Með baráttukveðjum, vestur undir Enni, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 01:07

4 Smámynd: Sverrir Einarsson

Í þessarri baráttu er Dúkarinn á heimavelli. Þrátt fyrir lognið af Sandinum eða hvort Ólsarinn sé heilaskaddaður af roki eða ekki roki eða hafi fengið of marga grjótmola úr Enninu í hausinn skiftir bara engu máli.

Þorleifur er að berjast fyrir réttum málstað og skjólstæðingum þarna.

Sverrir Einarsson, 15.12.2008 kl. 02:15

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sæll Jóhannes!

Ég trúi þér 100%! Ég á bara ekki til orð yfir þetta! Einar Oddur skrifar eins og hann sé fullur. Meira aulakommentið!

Annars var ég í Ólafsvík einu sinni á vertíð. Seldi brennivín á svörtu svona til að eiga vasapening, Henning lögga, frægur fábjáni sem er búið að reka fyrir löngu vinnur núna í sama húsi sem kolaportið er í ) barði mig með kilfu svo ég fékk gat á hausinn.

Ég var aldrei kærður, og var varaður við að kæra hann sem ég geri ekki.

Skýringin sem hann gaf og setti á skýrslu var alveg kostuleg! "Vegna mótspyrnu við að vera settur í fangaklefa rak hann höfuðið í læsinguna!

Hann viðurkendi skriflega að hann hafi reynt að setja mig inn í klefa án þess að opnna klefahurðina! Meiri brandarinn! Ef klefa hurðin hefði verið opinn eins og kemur líka fram í skúrslunni, hefði læsinginn verið mill hurðar og veggs.

Hann barði mig í spað inní í klefanum. Aðrir lögregluþjónar þurftu að stoppa hann af og ég var færður á sjúkrahús. Svo var ég saumaður, ekki íu fyrsta skipti, og sagt að ég mætti fara...

Enn ég fylgist með kallinum og bara vegna þess hvað ég kem sjaldan til Íslands er hann ekki komin með gat á hausinn. Hann var rekin úr lífvarðasveit í Danmörku.

Það eina sem ég man úr Ólafsvík. Ég hélt áfram að selja brennivín og alltaf látin í friði.... 

Óskar Arnórsson, 15.12.2008 kl. 04:17

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég er sammála þér í flestu, en vil endilega inn í ESB, hvað sem öðru líður og kosningar ekki seinna en í maí.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.12.2008 kl. 06:44

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég bý í ESB landi. Svíþjóð. Hryllingur þessar reglur þeirra! Ingibjörg! Kynntu þér ESB áður enn Íslandi verður slátrað algjörlega...

Sammála þér að það þarf kosningar. Helst í gær.....

Óskar Arnórsson, 15.12.2008 kl. 07:14

8 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Það er orðið sona svoldið eins og í Frakklandsbyltingunni forðum andrúmsloftið hérna á klakanum.  Maður má þakka fyrir að vera ekki gripin og hengdur án dóms og laga þó maður geri ekkert af sér nema hafa fæðst og andað. 

Óskar,við erum með nær allar reglurnar og þetta getur ekki orðið verra.  ESB takk og kosningar í maí.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 15.12.2008 kl. 10:23

9 Smámynd: Óskar Arnórsson

Nú jæja Þórdís!

Ekki ætla ég að þræta við tvær konur sem eru staðráðnar að setja sig í ESB fallöxina. Konur eru vitrari enn karlar segir konan mín og é segi bara já. Fyrst hún segir það, þá er það satt! ;)

Óskar Arnórsson, 15.12.2008 kl. 11:16

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þeir leynast víða hælbítarnir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.12.2008 kl. 11:33

11 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, Ásthildur, við eigum þó nokkuð samansafn af framagjörnum bitvögum og uppskafningum í VG. Því er nú miður.

Jóhannes Ragnarsson, 15.12.2008 kl. 11:44

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Óskar!

Ég þekki vel til í Svíþjóð.  Dóttir mín býr þar. ásamt eiginmanni og þremur börnum og þau segja í dag, Guði sé lof og þakkargjörð fyrir að við búum ekki í þessu bananalýðveldi sem Ísland er.

Íslendingar þurfa að hafa reglur sem verðurað fara eftir.   Við erum soddan bölvaðir bjánar að við þurfum yfirboðara.  Þó ekki Davíð Oddson og aðra fábjána heldur ráðvant og reglusamt fólk sem hefur allavega snefil af réttlæti um jöfnuð í sér.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.12.2008 kl. 13:08

13 Smámynd: Óskar Arnórsson

Hej Ingibj+rg! 

Alla mina barn är är i Sverige. Jag kom enbart till Island för att ta hand om min mor.

Det blev mistak.

Medicin jag gav henne, gjorde att hun dog. Deför vill jag inte till Island mer.

Jag har bott her sen 1988 och vill inte vara någon annanstans.

Óskar Arnórsson, 15.12.2008 kl. 13:22

14 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Det var fint at du liker deg, så du gjorde narr altså.  Det finns da humör i deg, selv om du som regel virker gannski jævli.  Orsaken er kanskje og finni i det du gjorde mot din mor.  Hvad ved jeg?????

Island inn i ESB og ikke et jævla ord om de mer.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.12.2008 kl. 21:26

15 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ok ok Ingebjörg!

Jag vill inte bråka med dig! Men varför inte Cosa Nostra! Dom är ju mer människor och stöttar sina. Men ESB..blah...sälja bara landet till högstbjudande!...va säger du om det 

Óskar Arnórsson, 16.12.2008 kl. 01:37

16 Smámynd: Héðinn Björnsson

Mér finnst nú annsi maklega vegið að Sóley og Svandísi í þessum pistli og að telja þæt til hægriarms vinstri grænna finnst mér frekar fyndið. Þú talar hér án stuðnings nokkurra gagna og í berhögg við öll þau gögn sem til eru. Sóley hefur unnið í mikilli samvinnu við Þorleif og Svandísi og ekki veit ég betur en að þær hafi stutt hann í þessu rugli öllu saman. Það eru hópar í öllum flokkum sem reyna að kvetja til ófriðar og hafi þeir erindi sem erfiði spilla þeir öllu starfi. Í guðanna bænum ekki vera að styðja þann hóp. Það hefur ekkert upp á sig.

Héðinn Björnsson, 16.12.2008 kl. 09:51

17 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Oskar,  Vi måste sluta.  Det blir bare mere bråk hvit vi fortsettar med dette her.

Kanskje du vil stötta Fremskrittspartiet. er det kanskje det du vil?

Liker deg når du er bare bli og god!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 16.12.2008 kl. 11:16

18 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Oskar, er jag ikke flink i skandenavisk?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 16.12.2008 kl. 11:16

19 Smámynd: Óskar Arnórsson

Det är du Ingibjörg! Verkligen!,,

Óskar Arnórsson, 16.12.2008 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband