Leita í fréttum mbl.is

Óskemmtilegur anskoti

auð3Eftir 18 ára samfellda villimennsku svokallaðra ,,sjálfstæðismanna" í Stjórnarráðinu er þjóðarbúið rofabarð eitt, rétt eins og þar hafi búverkað sturlaðir drykkjurútar og eiturætur. Félagi Steingrímur J. er því sannarlega ekki öfundsverður af þeim óskemmtilega anskota að þurfa að taka til í kotinu eftir að græðgisdrukknar glæpakreðsur Sjálfstæðisflokksins eru loks úr húsi. Það er t.d. óhjákvæmilegt að skattar hækki eitthvað hjá þeim greitt geta hærri skatta. Fólk verður að átta sig á, einkum þessi 20% sem enn styðja Sjálfstæðisflokkinn, að dagar ránsherferða auðvaldsins eru taldir, sem betur fer. Það mun kosta sitt að koma hér upp samfélagi siðaðra manna að nýju. Villuráfandi sauðum, sem þegar eru byrjaðir að væla undan fyrirhuguðum skattahækkunum, skal bent á að beina harmagrát sínum beint að Sjálfstæðisflokknum því að vegna glæsilegrar frammistöðu hans síðustu 18 árin er óhjákvæmilegt að hækka skatta á þessum tímapunkti.
mbl.is Komið að skuldadögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Liberal

Þú ert greinilega ekki vanur því að borga skatta, enda er það nú þannig að þeir sem fagna mest skattahækkunum eru þeir sem sjá sér leik á borði að skammta sér af fé annara í gegnum lög.

Þessi ósómi sem skattafyllerí VG er að verða má ekki verða að raunveruleika - það er skylda millistéttarinnar að koma í veg fyrir að svona galnar hugmyndir nái fram að ganga og þá gildir einu hvað hinir þjófóttu skattheimtumenn og klappstýrur þeirra vilja.

Liberal, 27.3.2009 kl. 15:09

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ef þú hefur þörf fyrir að kveinka þér undan skattahækkunum, Líbéral, þá skaltu snúa þér forystu Sjálfstæðisflokksins og skamma hana, þar er brennuvargana að finna.

Og hverjir hafa verið duglegastir við að skammta sér tekjur? Svar: Að sjálfsögðu sjálfstæðismenn!

Jóhannes Ragnarsson, 27.3.2009 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband