Leita í fréttum mbl.is

Liggja milli heims og heljar

boy3.jpgÍ kvöld var hringt til mín og tjáð að hjónin Kolbeinn Kolbeinsson og frú Ingveldur liggi bæði tvö í rúmi sínu milli heims og helju af svínaflensu. Í hart nær fjóra daga hafa þau ekki haft fótavist enda að mestu meðvitundarlaus. Ekki bætti úr skák að Kolbeinn romsaði uppúr sér í óráði einhverju kvennafarssvalli af sjálfum sér svo frú Ingveldur heyrði og uppskar að launum kinnhest svo vel úti látinn að hann lá í öngviti af þeim sökum, auk svínaflensunnar að sjáfsögðu, í rúman hálfan sólarhring. Í gærdag vitjaði læknir þeirra hjóna og dældi í þau miklu magni af tamiflu, sem því miður virtist hafa þveröfug áhrif við það sem ætlað var, því sjúklingunum elnaði svo sóttin við inntökuna að líf þeirra hékk bókstaflega á bláþræði fram eftir nóttu en þá komst Kolbeinn í koníakið sitt, drakk sig dauðadrukkinn á augabragði og lognaðist útaf í forstofunni, þá búinn að míga á sig eins og sönnum drykkjumanni sæmir. Seinnipartinn í dag var svínaflensan líka komin í sálina á frú Ingveldi, sem lýsti sér því að hún talaði tungum í fimm stundarfjórðunga um markaðsaðstæður fyrir sölu á beinhreinsuðum fiskflökum í Austurríki. 
mbl.is Greiningar takmarkaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Zhnilld !

Steingrímur Helgason, 22.7.2009 kl. 01:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband