Leita í fréttum mbl.is

Steinbarn andlegra aumingja

eudajpk.pngAðvitað er það gleðilegt að Jón Bjarnason skuli hefa einurð í sér að spyrna fótum við sjúklegu ESB-æði landsölugemsana í Samfylkingunni. Það ætti ekki að dyljast nokkrum sem á annað borð hafa einhverja týru milli eyrnanna, að afarir Samfylkingarinnar eiga ekkert skylt skynsemi hvað þá gáfur. Þar er á ferð vitfirrt einstefna sem stjórnast af steinbarni í maga fólks sem á sér engar pólitískar hugsjónir í grunninn. Að vilja fórna sjálfstæði og fullveldi þjóðar sinnar fyrir eitthvert loft úr görnunum á evrópsku auðvaldi er að sjálfsögðu lítilmennska og vanmáttarkennd á hæsta stigi, sem einungis andlegir aumingjar leyfa sér að hafa um hönd.

Og ekki stóð á viðbögðum eyðimerkurfanna í Samfylkingunni við aðvörunarorðum Jóns Bjarnasonar: Einhver kvenkyns þingmannsnefna úr Samfylkingunni var umsvifalaust send á vettvang fréttastofu Ríkisútvarpsins til aða hafa í hótunum við Jón ráðherra og VG. Að mati þingmannsnefnunnar, hvers nafn ég ekki man, á Jón Bjarnason að segja af sér, sennilega af því samfylkingarræflunum líkar ekki að hann skuli hafa sjálfstæða skoðun gagnvart ESB-steinbarni landsölulýðsins. 

Og samfylkingareigunum kemur akkúrat ekkert við hvaða fólk Vinstrigrænir velja úr sínum röðum í ríkisstjórn, ekki fremur en VG kemur við hvaða sperrileggi og amlóða Jóhanna Sig. leggur til með sér í ríkisstjórnarbúið. 


mbl.is Vill fresta umsóknarferli ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband