Leita í fréttum mbl.is

Glæpajurtirnar eru lúsiðnar og unna sér engrar hvíldar

hannez2_877292.jpgHinar sjúku glæpajurtir, illgresið mikla í Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarklíkunni, - já, og Samfylkingunni, sem sótt hafa næringu sína fyrst og fremst í dauníllt frjálshyggjuskólpið sem runnið hefur frá samfélagsfjandsamlegum eiturpöddum eins og Miltóni Fríedman og öðrum ámóta skítakleprum, eru ennþá að í íslensku samfélagi.

Þrátt fyrir að hafa hrundið af stað þjóðargjaldþroti með herfilegum uppátækjum sínum, halda frjálshyggjuómennin áfram hvað þau geta að grafa undan samfélaginu, sjálfstæði þess og framtíð. Nú skal öllu til kostað í að svíkja sameign þjóðarinnar sem felst í orkulindum landsins í hendur einkaaðila og það meira að segja erlendra einkaaðila.

Framganga af þessu tagi er ekki aðeins framúrskarandi lítilmennska heldur fyrst og fremst forhert glæpamennska af síðustu sort. Hvað verðskulda þær aumu persónur sem hafa dregið allt sem hönd á festir á Íslandi ofan í svaðið? Af hverju eru þessar skepnur ekki stoppaðar af í eitt skipti fyrir öll? Af hverju eru illkynja meinvörp eins og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn ekki bannaðir með lögum eins og hverjar aðrar hættulegar glæpaklíkur? Íslendingum stafar nefnilega ógn af fleiri glæpasamtökum en Hells Angels og öðrum þvíumlíkum.


mbl.is Endurskoðendur í svaðið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Gaman að lesa þennan pistil; tí,hí,hí

mbk

Dóra illgresi

Dóra litla (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 14:17

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekki trúi ég því að svona litil stúlka eins og þú, Dóra litla, sért illgresi af nokkru tagi. Þú ert ekki einusinni njóli eða haugarfi, hvað þá meir.

Jóhannes Ragnarsson, 15.9.2009 kl. 15:21

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Ha ha ha ha góður þessi .......................og Dóra litla skelli hlær að öllu saman.

Þetta minnir mig á brandarana um Önnu litlu sem mér voru sagðir þegar ég var strákur.

Níels A. Ársælsson., 15.9.2009 kl. 15:29

4 Smámynd: Sigurbjörg Jónsdóttir

Ég sé ekki betur en að  VG og Samfylkinginn nærist á sömu sjúku glæpajurtum og skólpi.Það eina sem þau hafa gert er að bjarga þeim sem stálu úr baunkaunum.Það  skildi þó ekki vera að glæpaklíkurnar leyndist meðal þeirra.

Sigurbjörg Jónsdóttir, 15.9.2009 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband