Leita í fréttum mbl.is

Menningarlegur viðsnúningur

capAnsi eru það góð tíðindi að drullumallararnir frá McDónalds séu horfnir á braut. Hingað til hefur það þótt óbrigðult merki um hnignadi menningu hvers þjófélags þegar ljósaskilti með McDónalds hafa farið sjást og menninguni hnignað þaðan í frá með hverju nýju auglýsingaskilti. Það verður því að teljast allnokkur menningarlegur viðsnúningu í jákvæða átt að Ísland hreinsist af hakkijukkinu frá amrísku Donnunum. Ef að kókakóla færi sömu leið og McDónalds þá færi landið loks að rísa af einhverju marki uppúr öldudal hinnar menningarsnauðu ómennsku.

Um bragðgæði McDónaldshamborgara þarf ekki að fjölyrða: öðru eins bölvuðu trosi hefur aldrei, hvorki fyrr né síðar, verið haldið að íslendingum. Og ekki kæmi mér á óvart þó ég fengi óyggjandi upplýsingar um að tættum dagblaðapappír væri blandað saman við hakkið í þessari einkar bragðvondu og fráhrindandi matvöru, ef matvöru skyldi kalla. 


mbl.is McDonald's hættir - Metro tekur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, borðum bara öll svið og bergvatn í öll mál. Bönnum allan innflutning... og jafnvel bara öll fyrirtæki.

Næsta skref er svo að banna allar vörur frá Reykjavík úti á landi, því flestallt sem kemur frá Borginni er slæmt eins og margir á dreifbýlinu vita.

Bönnum svo mjólk, því það er hægt að búa til rjómaís úr mjólk og hann er óhollur. Þá fara reyndar mjólkurbændur á hausinn en þeir bera ábyrgð á þessari óhollustu þannig að það verður að hafa það.

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 11:25

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hva, ósköp langar þig til að banna margt, Bragi Þór. Eða er þér máske dulítið íllt í vömbinni?

Jóhannes Ragnarsson, 26.10.2009 kl. 11:48

3 identicon

Þú ert þá meðal þeirra 80% nautheimsku Íslendinga sem hata Bandaríkin og veit ekki af hverju, bölvar Bush (þótt hann sé hættur), ert á móti stríði (þegar þú hefur sjálfur lúbarið einhvern á sveitaballi), kallar Ameríkana feita (þegar þú ert kannski sjálfur með bumbu), finnst Amerískar vörur drasl en ekur um á Firestone-dekkjum, átt Kitchen Aid hrærivél,þykist afneita öllu Amerísku en fýlar Marylin Monroe, Humbrey Bogart, ferð á amerískar bíómyndir og kaupir amerískar snyrtivörur fyrir konuna þína og hvað var í kvöldmatinn í gær, ok, kannski íslenskur hamborgari en tómatssósan VAR KANNSKI HEINZ??!!!, fórst í bíltúr svo kannski í gærkvöldi og tókst bensín hjá Shell, komst heim og fékkst þér Snickers-ís á meðan þú horfðir á Jay Leno fyrir svefninn

....og svo burstaðiru tennirnar með Colgate tannkremi manifactured by Johnson & Johnson industry, New Jersey, amen i rest my case




I I (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 11:51

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Helvíti góður þessi l l. Hann lætur sér ekki muna um að hjóla í Braga Þór með látum.

Jóhannes Ragnarsson, 26.10.2009 kl. 13:07

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að það að finnast McDonalds-hamborgarar ekkert góðir, hafi afskaplega lítið að gera með það að fólk sé með eða á móti Bandaríkjunum - heldur er þarna um að ræða smekk eða smekkleysi manna á hamborgurum að ræða.  Ég gleymi því seint þegar ég var á ferðalagi í Þýskalandi árið 1988, ásamt nokkrum kunningjum, við vorum stödd í Munchen en þá æpti einn ferðafélaginn upp yfir sig "þarna er McDonalds staður förum þangað og fáum okkur að borða" og þangað stefndi öll hersingin og innan skamms komu þessir "guðdómlegu" hamborgarar, sem var búið að lýsa fyrir okkur "sveitamönnunum", sem ekki höfðum komist í kynni við þessa sælu, þvílík vonbrigði ég verð að segja að þessir hamborgarar voru hreint og beint vondir og svo þunnir voru þeir og "ólseigir" að maður hefði alveg eins getað "japlað" á spilum og það hvarflaði að manni að það hefði gleymst að flá nautið og við værum að éta skinnið.  Tvisvar sinnum hef ég komið inn á McDonalds hér á landi og ekki get ég sagt að ég yrði neitt yfir mig hrifinn hamborgararnir á Holtanesti í Hfnarfirði eru ódýrari og betri.

Jóhann Elíasson, 26.10.2009 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband