Leita í fréttum mbl.is

Merkar heiðurspersónur í fylkingarbrjósti

GlæpamennHalldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Valgerður Swerriz, Siv Friðleifs, Björn Ingi, Ólafur bóndi á Miðhrauni, Sigurður Einarsson, Alfreð Þorsteinsson, Sígmúndör Kögunar, Framsóknarflokkurinn.

Ekki þarf að orðlengja til hvers refirnir eru skornir þegar ofantalda heiðurspersónur eru annarsvegar. Að minnsta kosti verð ég ekki sérlega upprifinn yfir blaðrinu í Kögunarstráknum, svo mikið er víst. Það er nefnilega full ástæða til að taka ekki mark á einu einasta orði, sem fram gengur af munni slíkra leppalúða.


mbl.is Gagnrýnir viðbrögð Steingríms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Við vitum nú samt báðir að ekki átti hann við neinn af þessum mönnum sem þú taldir upp.

Léleg leið til að draga athyglina frá raunverlulega málinu sem er í raun grafalvarlegt.

 Um leið og einhver kemur með málefnalega gagnrýni á eitthvað sem virðist ekki henta ríkisstjórninni þá er reynt að gera sá hinn sama eins ótrúverðugan og hægt er með öllum mögulegum leiðum.

Alveg ótrúlegt orðið að horfa upp á þetta hvað þessi ríkisstjórn virðist vera heilög.

Carl Jóhann Granz, 4.12.2009 kl. 21:10

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Gangnrýni sjálfstæðis- og framsóknarmanna á ríkisstjórnina í Icesave-málinu helgast ekki af umhyggju fyrir þjóðinni almennt heldur af hræðslu við að þeir séu að missa hin raunverulegu völd, sem byggjast á helmingaskiptareglunni frægu.

Það má aldrei gerast að þessi þjóðhættulegu öfl komist aftur í ríkisstjórn.

Jóhannes Ragnarsson, 4.12.2009 kl. 21:32

3 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Bull og vitleysa!

Það varð þverpólitísk sátt um fyrirvarana við Icesave frumvarpið í sumar.
Þessi ríkisstjórn þín hefði betur staðið í lappirnar þá þar sem stjórnarandstaðan studdi það.

Icesave er ekki flokkspólitískt mál og einungis Jóhanna hefur gert það að slíku.

Carl Jóhann Granz, 4.12.2009 kl. 21:49

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það var a.m.k. engin þverpólitísk sátt eða samstaða í iceseivinu þegar kom að atkvæðagreiðslunni í þinginu í sumar. Ég er ansi hræddur um, að útboruháttur stjórnarandstöðunnar þá hafi ekki verið til góðs, heldur þvert á móti.

Nú, Icesave-málið er ekki flokkspólitískt nema að því leiti, að það er holdgetið afkvæmi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks.

Jóhannes Ragnarsson, 4.12.2009 kl. 22:06

5 Smámynd: Umrenningur

Sæll Jóhannes.

Gerir þú þér grein fyrir að þú, magnús helgi, lára hanna, varabæjarfulltrúi akureyrar og fleiri eruð langt komin með að gera orðið félagshyggja að skammaryrði með ykkar ótrúlega stuðningi við erlenda árás á Íslenskt þjóðfélag. Ef þið haldið þessu svona áfram þá endar á að hægri menn fara að vísa í ykkar skrif til að sína fram á að félagshyggjufólki sé ekki treystandi. Þið verðið að fara að skilja að það að fórna Íslenskum hagsmunum bara til að klekkja á hægri mönnum er rangt gagnvart þjóðinni.

Íslandi allt

Umrenningur, 4.12.2009 kl. 22:34

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hmmm ... Hvar í fjáranum hefi ég lýst yfir stuðning við erlenda árás á Íslenskt þjóðfélag? Ég man a.m.k. ekki eftir neinu slíku. Reyndar hefi ég verið að hnýta smávegis í þau öfl sem stóðu að og leyfðu Íslenskum fjárglæfralýð að fara ránshendi um nágrannaríki okkar. Þeim óþjóðafénaði kem ég ekki til með að fyrirgefa. Ef að slík afstaða kemur óorði á félagshyggju þá veit ég því miður ekki hvernig hægt er að koma þeirri kenningu heim og saman.

Jóhannes Ragnarsson, 4.12.2009 kl. 22:54

7 Smámynd: Umrenningur

Það hefur þú margoft gert með því að níða niður þingmenn og aðra sem reyna að halda uppi andófi gegn erlendri kúgun hér að því er virðist eingöngu vegna þess að þeir hafa ekki rétta flokksskírteinið í vasanum. Fólk þarf að taka höndum saman og vinna gegn nýfrjálshyggjustefnu ríkisstjórnarinnar og asg. Ef þessari stefnu er ekki snúið þá verður ólifandi hér.

Umrenningur, 4.12.2009 kl. 23:02

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, nú skil ég blessaðan Umrenninginn. Hann á auðvitað við NATO-dindlana, sem hann heldur að séu reyna halda uppi andófi gegn erlendri kúgun.

Nei, piltur minn, góðu körlunum í samtökunum sem kenna sig við sjálfstæði og framsókn er ekkert í mun að andæfa erlendri kúgun, slíkar undirlægjur sem þeir eru þegar alþjóðlegt auðvald er annarsvegar.

Hinsvegar eru kvikindin logandi hrædd við, að þau séu að glata helmingaskiptavöldunum, sem þau hafa haft hingað til, fyrir fullt og allt. Það er nú öll umhyggjan sem þau þykjast hafa fyrir þjóð sinni.

Á skinhelginni munuð þér þekkja þau.

Jóhannes Ragnarsson, 4.12.2009 kl. 23:48

9 Smámynd: Umrenningur

Það er svona svar sem ég er að tala um Jóhannes þegar ég segi að þið séuð að fórna Íslandi til að sanna að hægri menn séu slæmir. Það má vel vera að hægri menn séu slæmir en þegar svokallaðir félagshyggjumenn framfylgja sömu stefnu þá hljóta þeir líka að vera slæmir, það er nefnilega enginn munur á kúk og skít nema nafnið.

Umrenningur, 5.12.2009 kl. 00:00

10 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Það var þverpólitísk sátt um fyrirvarana og það eru akkúrat þeir sem er verið að breyta.

Best hefði verið að þau hefðu ekki gefið undan svona hratt og vísað frekar í að Alþingi stóð sameinað gagnvart þessum fyrirvörum.

Carl Jóhann Granz, 5.12.2009 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband