Leita í fréttum mbl.is

Burt með Egil Helgason af RÚV

undFuss og svei, það koma nákvæmlega ekkert fram hjá þessum Rogeri Boyes, sem fjölmargir Íslendingar hafa ekki gert sér grein fyrir frá því löngu fyrir hrun. Þeir sem ekki hafa gert sér grein fyrir því sem Boyes var að mala, er sjúkt fólk í alvarlegri afneitun. Annars minnti Boyle einna mest á smjörlíkisklessu, svo ófrumlegur sem hann var í sjónvarpinu með Agla vini sínum.

Það er alveg dæmalaust hvað 101-geltinum Agli Helgasyni tekst að draga mikið af sjálfumglöðu undanrennuliði í þetta yfirborðskennda og útvatnaða silfur sitt. Reyndar er um of að tala um ,,mikið af sjálfumglöðu undanrennuliði" því satt best að segja er þetta mestu leyti sama fólkið upp aftur og aftur sem kemur í þáttinn, þá aðallega fólk sem einhverntímann hefur fengið þá hlálegu grillu í hausinn, að það sé svo undur gáfað, þrátt fyrir að hafa í hæsta lagi meðal gripsvit. En auðvitað draga gestirn dám af gestgjafanum, nema hvað.

Ég er kominn á þá skoðun, að RÚV ætti að afþakka starfsframlag Egils Helgasonar frá og með deginum í dag, þar eð stofnunin hefur sengin efni á að hafa fólk á fóðrum, sem engu skilar öðru en yfirborðsmennsku, froðu og kjaftæði. 


mbl.is Boyes: Of mikil áhersla á ál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Egill er ekki að virka nógu vel..ekki nógu beittur og það fer of mikill tími og orka í það hjá honum að reyna að vera gáfulegur..

Það er til fjöldi manns sem væru færari í þetta verkefni.

hilmar jónsson, 6.12.2009 kl. 18:38

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Algjörlega sammála Hilmar.

Jóhannes Ragnarsson, 6.12.2009 kl. 18:59

3 identicon

Eru menn eitthvað sárir?

Valsól (IP-tala skráð) 6.12.2009 kl. 21:05

4 identicon

Maður sem fer í taugarnar á kverúlöntum hlýtur að vera gera eitthvað rétt.

En ég geri ráð fyrir að menn sem dirfast að efast um Davíðssálmanna hafi framið dauðasynd sem ber að refsa fyrir. 

Magnús Bjarnason (IP-tala skráð) 6.12.2009 kl. 21:07

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekkert hlandbrunnið kratakjaftæði hér, Valsól.

Jóhannes Ragnarsson, 6.12.2009 kl. 21:09

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mángi Bjarna, er ósköp utan garna.

Ég verð víst að hryggja þig, Magnús minn, með því að þessi síða er aðeins fyrir fullorðið fólk.

Jóhannes Ragnarsson, 6.12.2009 kl. 21:12

7 Smámynd: Rauða Ljónið

Mér finnst Egil alltaf góður þegar hann kveður.

Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 6.12.2009 kl. 21:16

8 Smámynd: hilmar  jónsson

Það er eins með Egill og Spaugstofuna; Báðir þættirnir orðnir þreyttir.

hilmar jónsson, 6.12.2009 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband