Leita í fréttum mbl.is

Stórbrotin þingkona

femma4Í aumri fávísi minni lagðist ég svo lágt uppúr hádegi að fara að fylgjast með umræðunni um Icesave í sjónvarpinu. Eftir u.þ.b. hálftíma hlandaulaþrugl framsóknar- og sjálfstæðisbuxna um störf þingsins, af því að þeir nenna ekki að vera í vinnunni í kvöld, að því mér skildist, skreiddist Gangna-Gutti í ræðustól og mærði aðgöngumiða Samylkingarinnar að ESB, Icesave-samninginn þangað til hann var orðinn náhvítur í framan og stóð varla á löppunum, en Þór Saari svaraði að bragði með því að rakka aðgöngumiðann niður. Á eftir ræðum Gangna-Gutta og Saari brustu á ,,andsvör" í ansans hreint órólegum og hávaðasömum stíl. Í þessum svokölluðu ,,andsvörum" bar framsóknar-smádaman Vigdís Hauksdóttir af líkt og gull af eir, ljómaði eins og slípaður demant á óhrjálegum skítahaugi. Þessi errilega smádama, sem á langt í að verða undirframsóknarmaddama, fór hreint og beint á kostum í ,,andsvörunum" og á vissum augnablikum lá við sjálft, að hún mölvaði ræðustól Alþingis í spón með berum hnefunum. Við að sjá þessi ósköp hinnar stórbrotnu þingkonu fór ég ósjálfrátt að biðja Drottinn um að forða fjölskyldu hennar frá því að hún stundaði annan eins svarragang heimafyrir.

En mikið helvíti er nú samt gaman að horfa á þessa blessuðu framsóknar-smádömu í hastarlegum ræðuham, það er algjörlega óborganlegt.   


mbl.is Vilja vísa Icesave frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband