Leita í fréttum mbl.is

Karlremburnar klæmast við konur á netinu

skrattaskrifÞað er ljótt hjá InDefence-körlunum, ef þeir eru farnir að senda Ólínu Þorvarðardóttur tölvupóst, uppfullan af skítugum orðaleppum og rakalausum svívirðingum. Mér leikur hugur á hvað blessaðar jakkafatakarlremburnar voru að klæmast við frú Ólínu, - við verðum að vita í smáatriðum hve langt þeir hafa gengið í ósómanum.

Nú, svo getur líka verið að hinir óskammfeilnu tölvupóstar séu ekki frá InDefence, heldur frá ungum jabnaðarmönnum, eða geðvondum framsóknarmönnum, eða púkastóðinu í Heimdalli. Það má andskotinn vita hvaðan allir þessir tölvupóstar koma nú orðið. En Guð forði okkur frá því að það hafi verið Ólína sjálf sendi þennan dónalega fjöldapóst í allar áttir. Sem betur fer fæ ég engann fjöldapóst nema frá kaupahéðnum sem vilja óðir og uppvægir selja mér víagra á @visir.is. Það eru mjög viðbjóðslegir póstar, sem sýna fremur en allt annað forkastanlegar ranghugmyndir sendenda um mig. 


mbl.is Kannast ekki við fjöldapóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband