Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2013

Erindi í Feministafélaginu Sumargjöf

Fyrir skemmstu flutti frú Ingveldur snoturt erindi um þvagfæraónot á aðalfundi Feministafélagsins Sumargjafar. Sem við var að búast kom frú Ingveldur víða við í umfjöllun sinni um málefnið og bað feminista þess lengsra orða, að vara sig sérstaklega á bölvaðri blöðrubólgunni. - Þið megið, sagði frú ingv24.jpgIngveldur, - ekki undir neinum kringumstæðum skeina ukkur öfugt, munið það, því þá er voðinn vís. Vinkona mín ein, sem tók uppá að skeina sig öfugt, fékk hastarlega blörubúlgu (frú Ingveldur segir einlgt blörubúlga í staðinn fyrir blöðrubólga) og var nærri dáin. Þvagrásin stíflaðist bara alveg. Og þegar hún kom á spítalann var hún næstum hlandsprunginn, - gerið ykkur grein fyrir því? Í annan stað er best fyrir ukkur, að muna eftir að hafa ekki kynmakalegt samneyti við skítugan aðila, því skítugur aðili getur verið með allskonar bakteríur og vírusa á sér, sem hlaupið geta upp þvagrásina á ukkur og og gert ukkur alveg spól. Og munnmök skuluð þið varast að hafa við slíkan aðila. Já. Svo ættuð þið að varast að leggja lag ykkar við framsóknarmenn, því þó þeir séu ekki með blörubúlgusora þá eru þeir örugglega með flatlús og flatlúsin ferðast útum allan líkamann á ukkur, bæði utan og innan, fjölgar sér þar og kukkar í ukkur. Og nú er erindi mínu lokið freðýsurnar mínar.

Að svo búnu fór frú Ingveldur inná sig, dró fram rommflösku og staupaði sig vandlega á henni. Síðan leit hún brosandi yfir hinn fróðleiksfúsa feministahóp og mælti: - Til að gulltyggja ukkur fyrir blörubúlgu mæli ég með því að þið drekkið romm á hverjum degi, gerir ekkert þó þið drekkið mikið af því. Ein til tvær flöskur af rommi á dag kemur kirtlunum í ukkur í lag og þið fáið aldrei blörubúlgu og fladdaraskrattinn lifir ekki á þeim sem drekkur mikið romm á hverjum degi, því þann eðaldrykk kunna þessar leiðindaskepnur ekki að meta.
mbl.is Svona áttu að forðast blöðrubólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Máría Borgargagn með áspennibúnaðinn og Kolbeinn í rasslausu leðurbrókinni

ingv23.jpgÍ Gleðigöngunni miklu í sumar var til þess tekið hve frú Ingveldur, Kolbeinn Kolbeinsson, Máría Borgargan, Indriði Handreður, Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur báru af öðrum þar í göngunni. Öll voru þau vel drukkin, mjög ögrandi í klðaburði og klæmdust svo hátt og snjallt, að ekki var viðlit að hafa börn nálægt þeim.

Máría Borgargagn þókti bera af í próssíunni. Að ofan var hún í þunnum bleikum gúmmíjakka og bröndóttum nærbuxum að neðanverðu, auk þess sem hún flaggaði forkunarfögrum og gerðarlegum plastsköndli sem festur var við belti, en þessháttar þing er kallaður áspennibúnaður af fagmönnum. Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri var afturámóti eldrauðri og níðþröngri leðurbrók þar sem rassskykkinu hafði verið kippt úr. Þessutan var hann ber að ofan og óhreinn á bringunni og maganum eftir bjórslef og munntóbak.

En þó var munnsöfnuðurinn á þessum fríða flokki sér kapítuli, því annað eins andskotans svívirðilegt og samansúrrað klám hefir aldrei heyrst á götum Reykjavíkur. Á meðan Brynjar Vondalykt pissaði á miðja götuna inna um annað göngufólk söng hann fullum hálsi drápuna um ,,ráðskonuna á Holtavörðuheiðinni og hnussaði eins og kýr við jötu í hvert sinn sem hann þurfti að draga andann.

Þó var eins og frú Ingveldur og hennar fólk samsamaði sig öðrum deildum göngufólks á einhvern ísmeygilegan hátt því þau öktuðu eins og innfæddir á staðnum og rúmlega það.

Nú ber svo við, að enn má furðulýðurinn að fara á kreik, því framundan eru borgarstjórnarkosningar. Viðbúið er að fimm flokkar af svona kynjaskepnum bjóði fram lista sína hvern öðrum álappalegri svo saklaust fólk fær aulahroll við að sjá þvílíkar skrípamyndir. Það mun því bera vel í veiði fyrir borgarbúa, að gefa þessum rækalls öfuguggaflokkum voldugt fokkmerki í borgarstjórnarkosningunum í vor. Það væri mun gáfulegra og umfram allt huggulegra að kjósa Máríu Borgargagn með áspennibúnaðinn og Kolbein Kolbeinsson í rasslausum gleðigöngubuxum í borgarstjórn en helvíska gnarríhaldsflokkana, sem Reykvíkingar hafa mátt sitja uppi með í bráðum fjögur ár.
mbl.is Besti flokkur stærstur á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirheit um bjarta framtíð.

ingv.jpgÓsköp er nú notalegt, að lesa fréttir af því, að nýjir framhaldsskólanemar hefji nám sitt með því að koma saman á dansleikjum til að taka inn stóra skammta af alkóhóli, kannabis og amfetamíni, slást svolítið og eðla sig, æla bak við gardínur, á gólfin og ofaní blómsturpotta. Það gefur fyrirheit um bjarta framtíð þjóðarinnar.

En þó gerast sorglegir viðburðir á framhaldsskóladansleikjum eins og þeim sem fram fóru í gærkvöldi og nótt.

Útúr runna, bak við eitt dansleikjarhúsið, heyrði saklaus vegfarandi vonsvikna stúlkurödd segja: - Elsku Palli minn, þetta gengur ekki, þér stendur ekki vinur.
Þegar saklausi vegfararndinn kíkti inní runnann blasti við honum einkar hjáleg sjón: Tvo ungmenni, akfeit af hamborgara og sósuáti, lágu þar í grasinu næstum nakin og fálmuðu á hverju öðru eins og draugfullir blindingjar. - Þau vóru eins og svín á litin og vaxtarlagið í samræmi við það, sagði vegfarandinn konu sinni þegar hann kom heim.
mbl.is Talsverð ölvun á dansleikjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kóngurinn sem fannst dauður úti á víðavangi

king1.jpgHér um árið fannst kóngur nokkur dauður úti á víðavangi. Þeir sem komu auga á hinn fallna kóng, héldu fyrst að þetta væri dauður hrútur. En svo komust þeir að því, að þeir höfðu á röngu að standa, því þarna lá steindauður kóngur með mórauða skikkju ofaná sér. Í þokkabót kom í ljós að kógurinn hafði verið veginn með spjóti eða jafnvel atgeir og við hlið hans lá bútík hans höfuðlaus.

Enn þann dag í dag hefur enginn gefið sig fram fram, sem vill kannast við kóng þenna. Og það kom meira að segja í hlut mannanna, sem fundu hann á víðavangi, að grafa hann og bútíkina með ærinni fyrirhöfn. Nú er þessi konungsgröf týnd eins og allt annað sem kóngi þessum viðkom.

Ef svíakóngur heldur áfram á þeirri braut, sem hann hefir valið sér og greint er frá í fréttum, mun hann finnast dag nokkurn finnast dauður úti á víðavangi eins og hver annar landshornaflækingur og verða urðaður á staðnum, til hægðarauka þeim mönnum, sem kunna að rekast á hann fyrir tilviljun.

En svo geta örlögin hagað því þannig til, að kóngshræið finnist aldrei, og hrafn og úlfur sjái um útför hans samkvæmt þeim sið er hrafnar og úlfar hafa við slíkar athafnir.
mbl.is Svíakonungur harðlega gagnrýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handrukkarar heimsóttu frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson

meme.pngSem betur fer er víðar rætt um alvarlega stöðu en á Landspítalanum.

Nú er komið upp mál, sem veldur sæmdarhjónunum, frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjórna, þungum og alvarlegum áhyggjum. Forsaga þess máls hófst á miðvikudagköldið í síðustu viku er drepið var á útidyrnar, að heimili þeirra hjóna. Það kom í hlut Kolbeins Kolbeinssonar að fara til dyra þar eð frú Ingveldur var teppt á toiletinu.

Þegar Kolbeinn lauk upp útidyrahurðinni, stóðu þrí rdógar útifyrir, hver öðrum stærri og þrútnari, ljótir mjög í andliti og skuggalegir. Kolbeini brá að vonum við þessa sjón; varð eiginlega lamaður og gat hvorki hreyft liði sína né leggi.

Risarnir þrír fylltu uppí dyrnar og virtust þess albúnir að ryðjast inn eins og skriðdrekar og mala allt undir sig mélinum smærra. Allt í einu viku tveir af berserkjunum eins og rúmlega hálft skref til vinstri og þriðji félaginn álíka langt til hægri. Kom þá í ljós örlítið manntetur, grindhoraður á stærð við dverg. Þessi náungi var með hatt og í brúnum frakka og tók þegar í stað til máls:

- Jæja, þá erum við komnir að finna ykkur hjón í fjöru og sú fjara er dýpri en svo, að þið náið nokkurn tíma þar til botns. Þú hefir, Kolbeinn Kolbeinsson aumingi, og uppskafningsvargurinn, sem á að heita eiginkona þín, komið ýmsu óþrifalegu til leiðar með baktjaldamakki, lygum, ódrengskap og hefnigirni. Þá eru óaðskiljanlegir vinir ykkar, Máría Borgargagn, Óli Apaköttur, Brynjar Vondalykt og Indriði Handreður á lista yfir þá, sem verða heimsótt næstu dægur. Einnig munum við líta til Sigurveigar Beyglu, þeirrar andstyggilegu hýenu, sem illa gerðir óþokkar eins og þið, hafa komið til þjóðfélagslegra metorða. Þessi heimsókn er aðeins forsmekkurinn að því sem koma skal. Við gefum ykkur eitt tækifæri til að lagfæra vissan hlut, sem þið hafið á samvisku ykkar, sé einhver samviska fyrir hendi í heilabúinu á ukkur. Þið vitið hvað ég á við, og þið skuluð vera búin að kippa þessu máli í liðinn innan sjö daga.

Nú gerðist það, að frú Ingveldur kom eldrauð í fram af toiletinu. Hún hafði hlerað, meðan hún sat á salernisskálinni, að tíðindi voru að gerast við útidyrahurðina. Og frú Ingveldur er grimm eins örn og flaug hálfgyrt fram ganginn, fram í forstofu og hugðist hremma litla karlinn, rífa hann upp á hálsinum og hrista hann þangað til hann væri hálfdauður og myndi slaga eins og drukkinn á brott. Því miður hafði frú Ingveldur ekki tekið eftir hinum ægilegu, bláþrútnu steratröllum, sem stóðu sitt hvoru megin við þann litla. Í þann veginn, sem frú Ingveldur ætlði að grípa dverginn kverkataki, stigu berserkirnir fram og gripu hana heljartökum.

-Kastið henni í hann, bauð sá litli og þandi út nasavængina, sem voru ívið í stærra lagi. En dólgarnir hófu frú Ingveldi á loft og köstuðu henni eins og heypoka í Kolbein svo bæði endastungust í óformlegum faðmlögum inná gang.

- Svo skuluð þið muna hvað ég sagði, hrópaði litli maðurinn á þau, - annars eigið þið á hættu að missa eyrun og nefin, þegar við komum næst.

Þegar frú Ingveldur hafði áttað sig á hvað gerst hafði, þaut hún fram í dyr, en þá voru dvergurinn og heljarmennin horfin útí myrkrið.

Það sem eftir lifði kvölds, var mikið uppnám á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar með miklu bölvi og ragni og hringingum í allar áttir. Þau bruddu  diazepam og hvolfdu í sig hverju viskýglasinu af öðru. Skömmu síðar voru Máría Borgargagn, Indriði Handreður, Óli Apaköttur og Brynjar Vondalykt öll mætt til frú Ingveldar og Kolbeins og jókst bölvið, ragnið og gráthrinurnar þá enn til muna, að viðbættum hroðalegum klámkjafti, heitingum og urri. En Sigurveig Beygla sat viti sínu fjær af hræðslu og reiði úti í bíl.

Nú er að sjá hvort sæmdarhjónin Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og frú Ingveldur og þeirra vinir, lagfæri það sem þeim ber að lagfæra, eða hætti á að fá heimsókn þess litla og berserkja hans ella.
mbl.is Ræða alvarlega stöðu á Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband