Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2016

Kverúlant á kné Kára

fleng_1051843.jpgKári karlinn var ekki lengi að hafa endaskifti á blessuðum sjálfstæðisflokkskverúlantinum honum Pavel litla í Kastljósinu í kvöld. Þvílíka risaflengingu fær fólk því miður alltof sjaldan að sjá í beinni útsendingu. En þar eð sjálfstæðisflokkskverúlantar sem ekki eru komnir nema úr annarri stuttbuxnaskálminni hafa mikla nautn af því að vera hýddir fyrir framan alþjóð þá er ekki nema sjálfsagt að óska Pavel til hamingju með ráðninguna sem Kári veitti honum.

Einusinni var lúskrað á svona sjálfstæðisflokkspilti fyrir framan heilt kvenfélag af því hann var staðinn að því að gægjast innum glugga hjá kvenfélagskonum þegar þær voru að funda. Þegar kvenfélagskonurnar fóru að tala um þennan atburð sín á milli kom í ljós að það sem þeim þótti undarlegast við þetta allt var hvað drengnum þókti gott að vera rassskelltur. Sumar kvennanna voru á því að strákfjandinn hafði sært blygðunarkenn þeirra gróflega þegar hann var hýddur en aðrar lögðu áherslu á að allir af hans sauðahúsi sýndu þessi merki við sömu aðstæður.

Þegar fram liður stundir varð drengurinn, sem flengdur var fyrir framan allar kvenfélagskonurnar, gildur limur og eftirsóttur. Hann komst snemma í vinfengi við frú Ingveldi og Kolbein eiginmann hennar Kolbeinsson og hefir síðan verið eins og viðhengi á heimili þeirra og unnið mörg stórvirki í anda þess hugsjónaheimilis. Að sjálfsögðu er það Brynjar Vondalykt sem við er átt hér og misbauð, þá hann var æskumaður, 150 grimmum kvenfélagskerlingum með lostafengnum tiltektum undir dynjandi barsmíð á beran bossann.


mbl.is Pawel segir tölur Kára ekki réttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrifstofusjakalar og hagfræðidraugar hafa rænt samningsrétti launafólks

asiEf ég skil rétt þá er þetta SALEK samkomulag einungis samkomulag nokkurra auðvaldssinnaðra verkalýðsrekenda við auðvaldið þar sem óbreyttir félagsmenn stéttarfélaganna, sem þó hafa samnigsréttinn alfarið í sínum höndum, komu hvergi nærri, voru ekki spurði né virtir viðlits fremur en dauðu skordýrin í gluggakistum kontórista ASÍ. Með þessu hafa skrifstofusjakalarnir og hagfræðidraugarnir hjá ASÍ rænt verkafólk samningsréttinum, sem að er nokkuð sem aldrei má líða undir nokkrum krigumstæðum. Ef þessar subbur fá að komast upp með þetta rán er tilgangur stéttarfélaganna í uppnámi og eins gott að leggja þau niður sem fyrst.

Það er vísu haft eftir yfirsjakalanum á ASÍ kontórnum að farið verði í atkvæðagreiðslu um ,,vinnumarkaðsmódelið" sem hann er þó farinn að vinna eftir á næsta ári! Hverskonar ruddaskapur og ráðbrugg er þetta eiginlega? Er manngarmurinn galinn eða er hann einfaldlega svona ófyrirleitinn? Af hverju á andskotanum er ekki búið að fleygja þessum þrifagemlingi og hinum auðvaldssleikjunum á kontórnum úr fyrir lifandis löngu? Á fátækt erfiðisvinnufólk skilið að þurfa að halda þessum gripum uppi á margföldum launum verkafólks; það getur sem best lifað án leiðsagnar þessara leppalúða.

Og heldur yfirsjakalinn virkilega að launafólki sé það sérstakt baráttumál að auka greiðslur í lífeyrissjóðabáknið? Ef svo er þá er það mesti misskilningur hjá sjakalanum. Það hefir verið að koma æ betur í ljós á síðustu árum að ,,lífeyrissjóðirnir" atarna eru fyrst og fremst hugsaðir sem fjárfestingasjóðir fyrir hið kapítalíska hagkerfi sem allrahanda gamblarar og penigapervertar geta sótt í. Réttast væri að launafólk gerði þessa fjárfestingasjóði Andskotans upptæka notaði þá til að byggja upp mikið réttlátara samfélg en við búum við núna.


mbl.is „Sýnilegt með hærri launum í veskið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjöguðu skrefstuttir og vambsíðir um völlinn eins og dauðans ráðleysingjar

ball1_1276144.jpgMörgum þókti býsna skelfilegt að horfa uppá strákana okkar í handboltalandsliðinu fyrir fám dögum á Evrópumótinu í Pólandi. Þarna kjögðu þeir um völlinn vambsíðir og skrefstuttir og veltust á hliðina af minnsta tilefni. Gamall maður sem var svo ólánssamur að setjast fyrir framan sjónvarpið þegar einn þessara leikja stóð yfir spurði í forundran hvaðan úr fjáranum þessir drengir hefðu verið dregnir því það væri eins og þeir hefðu verið geymdir árum saman á hæli. Og kona hans bætti við að fótaburður þeirra væri eins og mörgæsa en þó væru mörgæsirnar mun spengilegri.

Það er auðvitað ekki við góðu af búast af landsliði sem dragnast áfram eins og þreyttur og þunglamalegur forsætisráðherra á leið í bólið. Enda vóru drengirnir rassskelltir þvers og kruss eins og þeir höfðu til unnið, kjöldregnir og tættir í sundur af útlenskum ribböldum sem höfðu aungva meðaumkun með srtákunum okkar, sem ekki eru lengur strákarnir okkar heldur ólánsdelar og ruslahaugamatur.

Meira að segja frú Ingveldur varð foxíll yfir frammistöðu drengjanna og kallaði þá öllum illum nöfnum meðan á útsendingum frá leikjunum stóð og orðum sínum til áréttingar sló hún Kolbein mann sinn í rot þar sem hann sat sætkenndur í húsbónastólum sínum. Af þessu má sjá að hrakfarir handboltalandsliðsins hratt af stað heimilisofbeldi með tilheyrandi ónæði fyrir áfallahjálparteymi þjóðarinnar.


mbl.is Þráðurinn er slitinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baldur að Bessastöðum að því tilskyldu að ...

sveit.jpgAuðvitað væri verulega skæslegt að fá blessaðan öðlinginn hann Baldur Þórhallsson á Bessastaði, að því tilskyldu að þar sé rekinn voldugur og þjóðlegur búskapur. Það væri ekki minna en dásamlegt fyrir höfuðborgarbúa, sem og aðra landsmenn, að taka sér lystitúr útá Álftanes um helgar og sjá hinn vaska ESB-pilt úr háskólanum stunda gegningar að vetrum, dreifa taði um velli, slóðadraga eða berja taðið með kláru að vori og sveifla orfi og ljá eins dansmær um hásláttinn. Að hausti tæki svo við smalamennska, réttir og heimaslátrun ásamt sláturgerð og blóðpönnukökum. Þá væri Baldur trúboði orðinn þjóðlegur framsóknarkrati með tóbaksdósir og neftóbaksklút uppá vasann.

Eflaust væri auðvelt að selja ferðamönnum aðgang að því að sjá ,,stjórnmálafræðinginn" sem breyttist í einagraðan bóndadurg utan ESB og alls heimsins mjalta kýr uppá gamla mátann, hleypa til ánna á aðventunni, sparka hænsnunum af eggjunum í hænsnakofanum eða leiða yxna kú undir griðunginn. Hinsvegar er ómögulega að segja hvað gæti orðið um hann Felix ef Baldur gerist húskarl og smali að Bessastöðum með öllum þeim flórmokstri og hlaupum eftir rolluskjátum sem þeirri vegsemd heyrir til. Felix er óttalega óbóndalegur og hætt við að blessaðar skepnurnar verði sturlaðar af hræðslu ef Baldur færi með hann með sér í fjós og fjárhús.

Svo fer velferð Baldurs og Felixar auðvitað mikið eftir því hver verður húsbóndi að Bessastöðum eftir að félagi Ólafur Ragnar bregður þar búi. Nú ku Framsóknarmenn og Sjálfstæðishetjur leita dyrum og dyngjum að hæfilegri persónu til að stýra búi og þá væntanlega Baldri húskarli að Bessastöðum. Leit þessi gengur að vonum illa því að bæði er að framsóknar- og íhaldsjálkar eru einkar illa búmannlega vaxnir nú til dags og þá er ekki síður til trafala að þeir hafa leiðindaorð á sér fyrir bánkarán og aðrar ófélegar tiltektir. Er örvæntingin orðin svo mikil í leitarflokknum að þegar leitarmenn eru drukknir tala þeir fullum fetum um að vekja löngu liðnar sjálfstæðishetjur uppúr gröfum sínum með forsetaframboð í huga; eru þar ekki minni persónur nefndar til sögunnar en byskubbarnir Brynjólfur Sveinsson og Jón Vídalín ásamt þeim Gretti Ásmundarsyni, Jónasi Hallgrímssyni og Njáli bónda Þorgeirssyni að Bergþórhváli, en hvort nefdir heiðursmenn hafi verið hallir undir íhaldsframsóknarmennsku er síðan annað mál.


mbl.is Baldur og Felix á Bessastaði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því þambaði hún ekki bjórinn áður en hann féll á tíma?

cat3_1276141.jpgÞað er sorglegra en tárum taki að Brynhildur Pétursdóttir skuli ekki hafa þambað allan jólabjórinn sem gekk af fyrst henni þykir svona mikil sóun af því að hella honum niður. Þessístað rambar hún eins og vofa uppí ræðupúlt Alþingis og hrín yfir því óréttlæti heimsins að jólabjór megi aðeins drekka á jólum annars skuli honum sturtað í holræsið. Þó held ég hafi lyfts örlítið á henni brúni þegar fjármálaráðherra fór að gráta með henni þó svo hann hafi ekki, svo menn viti, reynt að dæla í sig afgangsbjórnum sem var tortímingunni að bráð.

Annars þarf enginn að hafa áhyggjur af afdrifum jólabjórsins sem landsmönnum tókst ekki að drekka sig vitlausa af. Hinn útrunni jólabjór fór nefnilega að stórum hluta í áfengisgeymslu frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns og á þeim bæ er áfengi ekki hellt niður viljandi. Afgangurinn lenti svo í öruggum höndum fólks eins og Máríu Borgargagns og Indriða Handreðs, Brynjars Vondulyktar og Óla Apakattar. Og á ýmsum útvöldum stöðum til viðbótar er enn verið að skála í jólabjór.

Já það er sannarlega hryggilegt að þingdraugum með grátstaf í kverkunum skuli ekki hafa auðnast að slafra í sig öllum þeim jólabjór sem framleiddur var fyrir síðustu jól. Það bendir til að ekki fylgi mikil einurð gráthljóðum þeirra. Sem betur fer er stutt í páskabjórinn og þá fær frú Brynhildur Pétursdóttir, sem og hinn grátbólgni fjármálaráðherra, tækifæri til að sanna hvað í þeim býr þegar baráttan verður hvað hörðust við að klára ölið áður en það fellur á tíma og hverfur klókainu á vald.


mbl.is Fáránleg sóun á jólabjór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Albúin í næsta bankaránsleiðangur

RæningiOg bankaránin halda áfram, þrátt fyrir að slangur af bankaræningjum séu nú þegar bak við lás og slá og fleiri á leiðinni, sem í kaldhæðni sinni kenna sig við sjálfstæði, eru þess nú albún að fara í næsta bankaránleiðangur, sem á þeirra máli kallast ,,sala á eignarhlut ríkisins í fjármálakerfinu." Reyndar láta húskarlar gömlu Framsóknarmaddömunnar sem þeir séu tregir til að fara þennan ránsleiðangur, en maður tekur nú mátulega mark á því enda samþykkti það lið heimild til fjármálaráðherra til að selja tiltekinn hluta af eign Landsbankans á þessu ári ásamt því að ríkið fái greiðslur af umræddri ,,sölu". Hinsvegar virðast þingmenn Björtu framtíðarinnar hans Gvöndar Steingríms og Pírataspottin til í ferðalagið því að þeir, eins og aðrir auðvaldsþrælar og frjálshyggjustuttbuxnaspjátrungar, telja að ,,ríkið eigi ekki að vera vasast í að reka banka eða yfirleitt nokkuð annað" eins og það heitir á máli þessarar manntegundar. Og menn eiga eftir að sjá Samfylkinguna setja sig í grundvallaratriðum uppámóti bankaránum af þessu tagi.

xd17.jpgVíst er að í aðdraganda bankaránsins verða settar upp margar og miskræsilegar sýningar til að blekkja kjósendur og afvegaleiða. Forsmekkinn af veislunni hafa menn þegar fengið í Borgunarsketsinum og annað verður vafningalaust í sama anda, eða ölluheldur, sama andleysinu. Það er því augljóst að kjörnir ráðamenn okkar eru þegar teknir til við að skíta í nyt almennings í landinu, svo notað sér orðalag sem hæfir varknaðinum. Það er síðan spurning sem eftir á að svara hvort sami almenningur muna láta enn eina ránsferð auðvaldsins yfir sig ganga.


mbl.is Verður að fara réttar boðleiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefir meiri áhuga á að vinna skemmdarverk á samfélaginu, helst óbætanleg

cap5.jpgÞað vita flestir sem vilja á annað borð vita að núverandi hæstvitrtur menntamálaráðherra, Íllugi Gunnarsson, hefur engann áhuga á menntamálum og hefir aldrei haft. Hinsvegar virðist þessi veslings ráðherra hafa þeim mun meiri áhuga á að vinna skemmdarverka á samfélaginu, helst óbætanleg, með einkavæðingarbraski. Það er sem sé fjallgrimm vissa Ílluga að best sé að fela Hjallastenunni og öðrum menntafúskurum af sama tagi að koma samfélagslegareknu menntakerfi fyrir kattarnef á sama hátt og hann, Bjarni Ben og Stjáni Júl bíða í ofvæni eftir að færa Ásdísi Höllu heilbrigðiskerfið.

Og auðvitað ætla húskarlar og griðkonur gömlu Framsóknarmaddömunnar að sigla einkavæðingarskútunni til hafnar með Ílluga og Bjarna og selja í leiðinni, eða öllu heldur gefa frændum og sínum og vinum, hlut ríkisins í fjármálastofnunum. Þetta er að vísu hugsjón við hæfi lágmenningardrjóla auðvaldsins sem hvergi kunna betur við sig en í haughúsum peningahyggjunnar, græðginnar og ójafnaðarins. En það er svo sem ekkert nýtt þó skrípakallar og kellingar Framsóknarmaddömunnar flaðri eins og lúsug hundstík fyrir húsbændum sínum á höfuðbóli auðvaldsins; það sama gera krataskiturnar líka hvenær sem það er í boði skríða fyrir harðsvíruðust péníngahyggjuöflunum.

En þó að núverandi ríkisstjórn standi fyrir fátt annað en aukna ómenningu, yfirgang péníngaperverta, glæpi gegn alþýðu og forheimskunarvæðingu þá eru hjónin frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður hæst ánægð með ríkisstjórnina og minnast hennar undantekningarlaust í borðbænum sínum áður en þau leggja steikina og rauðvínið sér til munns. Enda hefir frú Ingveldur lofað auðvaldsgyðjurnar Margréti Pálu og Ásdísi Höllu auk ríkistjórnarinnar í aðventuhugvekjum í kirkjum landsins og í fyrirlestrum á menningarkvöldum Heimdalls fyrir að þær ætli að frelsa þjóðina frá því að reka heilbrigðis- og menntkerfi, því soleiðis auðlindum sé best borgið í braskaraklóm fjárfesta og annarra einstaklinga sem kunna að kaupa og selja auðlindir.


mbl.is Hið opinbera fann upp kjarnorkusprengju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hasshundurinn Kölski og meinleg örlög hans

dog3_1268418.jpgÞað má svo sem vera að einhver lögregluprjónn hafi verið leystur tímabundið frá störfum. Þessháttar smáskítlegheitum skipti ég mér ekki af og er nákvæmlega sama hvort umræddur náunga er að störfum eða leystur frá störfum eða, sem langlíklegast er, að hann sé ekki til, tilvist hans sé skröksaga og uppspuni frá upphafi til enda. Þá stendur mér nákvæmlega á sama hvort persónan Sigríður Björk Guðjónsdótti, sem sögð er lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, er til í raun og veru eða einugis skáldsagnapersóna í höfðinu á einhverjum sjálfstæðismönnum.

Aftur á móti man ég vel eftir hasshundinum Kölska sem starfaði að fíkniefnarannsóknum innan lögregluembættisins á höfuðborgarsvæðinu og var loks rekinn úr starfi fyrir ýmsa glæpi, svo sem eins og spillingu, yfirhylmingu, rangar sakargiftir, líkamsárásir og mjög alvarlega kynferðislega áreitni. Til að byrja með gekk allt í haginn hjá Kölska, hann kom uppum marga eiturlyfjasmyglara, burðardýr og eiturætur. Þegar frá leið fór að bera á einu og öðru dularfullu í fari Kölska. Hann kom í veg fyrir að hroðalegar glæpabullur væru handteknar, lék sér iðulega við hundtíkur grunaðra eiturnautnamanna og reyndi ítrekað að koma sök á æðstu menn og konur þjóðarinnar, einkum á Keflavíkurflugvelli þegar þeir vóru að koma frá útlöndum. Á sama tíma fór að falla grunur á hann um að laumast aftanað málsmetandi fólki þegar aunginn sá til og misþyrma því.

Þó tók samt steininn úr þegar frú Ingveldur lagði fram kæru á Kölska fyrir ruddalega áreitni af kynferðislegum toga. Þá sá ráðherra lögreglumála sér ekki annað fært en að dæma þennan fræga fíkniefnahund til dauða. Er það eina dæmið um að sá ráðherra tæki ákvörðun í starfi. Það vóru einhver skítmenni úr götulöggunni sem fengnir voru til að myrða Kölska og það gerðu þeir af einstaklega fólskulegri varmennsku inni á klósetti knæpunnar Meyjarvölsi. 


mbl.is Lögreglumaður leystur frá störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhrifa af andláti Davíðs gætir líka á Íslandi

ingv54.jpgAndaður er sætlega í hárri elli Davíð okkar hérna Bowie frá Brixton. Hann kunni aldrei að meta davíðskuna en mat framsóknarmennsku þeim mun meir. Nú blakta 10 svartir fánar í Lundúnum, sem þó hefðu átt að vera tólf því það er auðveldara að reikna út kostnaðinn í tylftum. En hvað um það þá er Davíð okkar látinn og farinn til Guðs sem gefi honum eilífa sælu á Hymmnum með strengjaslætti og syntisæserum.

Þegar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður frétti nú í morgunsárið af andláti Davíðs svelgdist honum á afréttaranum og fékk af því svo slæmt hóstakast að hann var næstum dáinn eins og Davíð. Og afréttarinn frussaðist yfir eldhúsborðið og uppá vegg. En Kolbeinn var ekki af baki dottinn því þegar hann náði andanum aftur tók hann til við afréttarann þar sem fyrr var frá horfið; hann er nú á leið til vinnu sinnar nokkuðu ölvaður og sorgmæddur úr hófi fram, en þó ekki svo að geti ekki ekið bifreið sinni sjálfur.

Ekki var Kolbeinn fyrr horfinn úr húsi en Brynjar Vondalyk var kominn inná gólf heima hjá honum þeirra erinda að nauðga frú Ingveldi. Sem betur fer varð þessum illa skelmi ekki kápan úr þvi klæðinu því frú Ingveldur tók hraustlega á móti og tókst fljótlega að koma rothöggi á hann. Þar næst hringdi frú Ingveldur í Kolbein mann sinn og bað hann snúa aftur heim og hirða upp hræið af Vondulyktinni og koma því fyrir á öruggum stað.


mbl.is David Bowie látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð landkynning að leyfa Amríkönum að sjá fanga éta steikur og kneyfa vín

cap1.jpgÞað er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að Mikjáll Múr fái að mynda hvernig eðalfangar á Íslandi kneyfa rauðvín og éta steikur í dýflissunni til að sýna Amríkönum hvernig koma á fram við fanga. Að umboðsmaður Alþingis sé að snuðra í soleiðis hlutum er auðvitað afleitt og ber vott um átjándualdarhugarfar. Svo hefði verið ósköp gaman ef Mikjáli kvikmyndagerðarmanni hefði borið gæfa til að mynda reiðnámskeið fanga, sem illu heilli var af slegið af mannvonsku einskærri.

Vitað er fyrir fyrir víst að hvurgi er betra að taka upp menningarlegar fangelsismyndir en á Kvíabryggju þar eð birtuskilyrði þar eru slík að aumustu refsfangar líta út eins og bánkagróssérar og mikilsvirtir útvegsbændur. Svo er alltaf fróðlegt að heyra hvernig fangar tala um aðra fanga af þessum unaðslega kærleik sem brestur á þegar menn eru mettir af rauðvíni og nautasteik. Niðurstaðan er því sú, að upptaka Mikjáls á ástafari og neysluvenjum kvíabryggjufanga er ekkert minna en þjóðþrifaverk og framúrskarandi landkynning.


mbl.is Mátti Moore mynda á Kvíabryggju?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband