Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2022

Allt er þetta málum blandið og afmælistölur bæði á floti og á reiki

dans3Þetta er nú eitthvað málum blandið. Það getur ekki verið að frú Solveig hafi hafi orðið sjötug um síðustu helgi, það er mikið lengra síðan þau tímamót gengu í garð hjá kérlu. Ættfróður og óljúgfróður öldungur sagði mér, að vel stinn tuttugu og eitthvað ár séu síðan Solveig varð sjötug. En mér er svo sem fjandans sama upp á hverskonar afmæli aldraðar auðvaldsfraukur halda sér til skemmtunar. En þetta var vel heppnuð veisla, haldin í skjóli velvildar sæmdarhjónanna frú Ingveldar og Kolbeins skrifstofustjóra Kolbeinssonar, þess alræmda framsóknarmanns.

Hvað um það, þá sveif megn Hrun-stækja yfir ,,sjötugs"afmælisveislu frú Solveigar og öll gólf bónuð upp úr nýfrjálshyggjuslefu yfirstéttarinnar. Enda renndu hágöfug hrunmenni beggja kynja sér þar fótskriðu veggja á millum með tilheyrandi hvíi og ungmeyjaskrækjum. En meðan myndatökur af veisluóðum Hrunverjum í meintri sjötugsveislu fóru fram brugðu frú Ingveldur og Kolbeinn sér afsíðis með Brynjari Vondulykt, Máríu Borgargagni og Indriða Handreði. Að myndatöku afstaðinni gáfu þau frú Ingveldur sig aftur fram og mátti sá á andlitum þeirra að eitthvað hafði gengið á, því þau báru öll svipmót uppbrettum hænsnarössum og helvisku Handreðurinn blés úr nös eins og stórhveli sem er að koma upp á yfirborðið af tvöþusund faðma dýpi.

ingÞað er ungt og leikur sér, hið afgamla nýfrjálshyggju- og hrunaslekti og ber sig vel eftir atvikum. Sérstakir heiðursgestir í öllum sona veislum eru náttúrulega þau Jóhanna Sig. og Stenngrimur Johoð, en þau eru samt aldrei látin sjást á myndum og þeim eru færðar veitingar inn á vanhús veisluhúsanna. Þar japla þau á skósólum undan agentum Alþjóðagjaldeyrissjóðins og drekka brennivín með úr landatunnum sægreifanna; það er skohh gert vel við hjúin atarna þegar veisla er gjör. Í næstu viku verður svo haldið hátíðlegt áttræðisafmæli Guðlaugs a. Þórðarsonar umhverfisverndarráðherra að viðstöddum öllum stórmennum Hrunsins. Skömmu síðar verður haldið upp á aldarfjórðungsafurmæli Bjarnaben, sem reyndar er rétt nýfermdur svo sem kunnugt er. 


mbl.is Líf og fjör í 70 ára afmæli Sólveigar Pétursdóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baráttukveðja til baráttufólks

verko3Þá er búið að hafa endaskipti á Halldóru Saleksdóttur og Birni Framsóknamanni í Samherja-Einingunni á Akureyri. Þrátt fyrir langvarandi hatrammar árásir á Villa á Skaganum, Sólveigu Önnu og Aðalstein á Húsvík var öll sú óeigingjarna vinna frú Saleksdóttur, Framsóknarmannsins, Agníesku, Drífu Snædal og Höllu Títu unnin fyrir gýg, svo að nú liggja þau öll sem eitt í foraðinu eins og blindir ánumaðkar og geta ekki hamið innri sálrænar hamfarir og andverkalýðsbaráttuhvatir sínar. Þetta fólk er náttúrlega búið að vera og fer nú á ruslahaug sögunnar sem varhugaverð spilliefni.

Um leið og Starfsgreinasambandið féll í höndur verkalýðssinnum á tólfta tímanum í morgun varð um leið ljóst að ekki verður látið staðar numið og í haust verður ASÍ tekið og flugumönnum, eða öllu heldur flugkvendum, Katrínar og ríkistjórnarinnar og slepjulegum krataeðlisplöntum sem það hafa hreiðrað um sig sópað út á þingi sambandsins. Þannig er blessunarlega sól kerfismenna, krataeðlis og framsóknarmennsku mjök í sæ sigin og ,,Koníaksklúbburinn" fyrir bí. Sennilega mun aunginn maður hafa fyrir því að dysja hinn fallna ófögnuð og því síður verður honum reistur minnisvarði.

Í greni atvinnurekendasambandanna og í þjófagengi stjórnarráðsins ríkir taugaveiklun og niðurgangur vegna taps og flótta hinna meðfærilegu og andbaráttusinnuðu kerfiskalla og kérlínga í samtökum verkafólks. Áður höfðu samtök verslunarfólks sagt Sjálfstæðisflokknum að fara til fjandans og kosið sér róttækt fólk til forustu, þannig að verkalýðssamtökin eru að breytast úr undirförulu og svefndofnu lamadýri í þau stéttabaráttusamtök sem þeim ber að vera. Í dag er full ástæða til að óska verkafólki og Starfsgreinasambandinu til hamingju.


mbl.is Vilhjálmur kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérkennilegt formannsframboð hugsjónalausra andverkalýðssinna

verko2Það hlýtur að vera mikil mannfátækt hjá Samfylkingunni fyrst hún hefur ekki annað upp á að bjóða fyrir verkafólk en afdankaðan og gjörsamlega litlausan bónda í Skagafirði, hagvanan í Framsóknarfjóshaug gifturíka kaupfélagsstjórans á Sauðárkróki. Þessi náungi, sem kemur fyrir eins og illa heppnað ljósrit af Sigurði Inga framsóknarforingja, er krataeðlinu og Birni framsóknarhúskarli í Einingu á Akureyri mjög að skapi, því hann vill auðsjáanlega enga stéttabaráttu og hefir yfir innihaldslaust muldur um að sætta fólk; en líklega eru þær sættir fólgnar í að Sólveig Anna, Aðalsteinn, Villi og Ragnar í VR haldi kjafti og leyfi andverkalýðssinnunum í Starfsgreinasambandinu stunda sína svefnstefnu og undirlægjuhátt við auðvaldið, útgerðarsamherjana og braskaralýðinn.

Formannsframboð þessa svefnstefnu bónda í Skagafirði, er vægast sagt afar sérkennilegt, í ljósi þess að mjög öflugur og framsækinn verkalýðsforingi, Vilhjálmur Birgisson á Akranesi, hefir þegar lýst yfir framboði sínu til formanns Starfsgreinasambandsins. Ef maður hefði ekki dálitla innsýn í atburði síðustu mánaða í verkalýðshreyfingunni mundi maður taka framboði Samfylkingarbóndans sem hverju öðru gríni. En því miður er ekki svo. Síðustu vikur og mánuði gamla kerfisliðið á skrifstofum almennu verkalýðshreyfingarinnar, alveg upp í æðstu stjórnendur ASÍ, staðir fyrir óvenju rætinn og svínslegri herferð og glórulausu einelti á hendur þeim foringjum verkafólks, sem telja að launum og kjörum verkafólks og annars láglaunafólks verði ekki þokað upp á við án stéttabaráttu og virkrar þátttöku félagsmanna á tímum kjarasamninga.Við síðustu samninga skiluðu slíkar aðgerðir umtalsverðum kjarabótum og engin ástæða til að láta staðar numið nú.

Eitt af helstu verkefnum verkalýðsfélaga á Íslandi á næstu árum er að hreinsa þau af áhrifum krataeðlisins, sem sýkt hefur samtök alþýðunnar áratugum saman. Þessi fölsku kvikindi hafa laumast um allar smugur verkalýðshreyfingarinnar undir því yfirskini að þau séu verkalýðssinnar, sem þau eru ekki, því þetta eru úrtölufólk, undirgefið atvinnurekendum og auðvaldi almennt, nýfrjálshyggju og vestrænum kapítalisma. Það á að vera hluti af kjarabaráttu Starfsgreinasambandsins á næstu árum að gera krataeðli Samfylkingarinnar útrækt úr samtökunum, því þessi ófögnuður hefir unnið verkafólki nóg tjón, - ekki aðeins á síðustu árum, heldur nánast frá upphafi verkalýðshreyfingar á Íslandi fyrir hundrað árum.    


mbl.is Þórarinn gefur kost á sér til formennsku SGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búhnykkur á Bessastöðum

hvala2Þetta er aunginn smá-búhnykkur sem sem fallið hefir hjónunum á Bessastöðum fyrir norðanland í skaut. Að fá eitt búrhveli í fullri stærð svo að segja upp á hlað til sín þýðir, að þau þurfa ekki að hungri á næstunni eða deyða úr ófeiti. Búrhveli er sko aungin ræfilsleg grásleppa, sem aðeins melrakkar nenna að leggja sér til munns. Á söguöld hefðu kappar barist með öxum og spjótum um hvalreka sem þennan og margir fallið. Enda segja mér kunnugir, að Guðný Helga húsfreyja sé þegar farin að kynda undir pottum sínum allt hvað af tekur, því hún ætlar að sjóða hvalþjós til kveldverðar.

Víkur þá sögunni að Bessastöðum suðrá Álftanesi. Um Álftnesinga hefir verið orkt: ,,Álftnesingurinn úti liggur aldrei sefur, dregur meir en drottinn gefur, dyggðasnauður maðkanefur". Með þessum vísustubb er ég ekki að segja að hann hafi verið orktur um núverandi húsbændur á Bessatöðum, enda er það fólk varla þess eðlis að á það sé sólundað haglegum kveðskap. Hinsvegar getum við gert okkur í hugarlund hvað gerðist ef rymjandi og dauðvona búrhvalur, afkomandi Moby Dicks, öslaði upp í fjöruna neðan við Bessastaði á Álftanesi til að deyja.

Ætli frú Ellízza Rídd mundi hlaupa blaðskellandi til sjávar með pottinn og skera í hann dulitla tutlu af hvalnum? Fara svo heim og sjóða hana með spiki, hvallýsi og öllu saman ofan í bónda sinn? Má ekki gera ráð byrir að bóndinn atarna mundi bara taka fyrir nefið og gubba svolítið út um svefnherbergisgluggann? En ef kérlíngin mundi sjóða sokka af sitt hvoru tagi með hvalþjósinu? Er þá líklegra að karlinn fengi sér bita? Öllum þessum spurningum er erfitt að svara ef aunginn er hvalurinn í fjörunni. Því er það ósk okkar að hvalur, hvort heldur það væri búrhveli eða hrúfublakur, verði við fyrsta tækifæri rekinn á land við Bessastaði. Ef vel stendur á sjávarföllum þá hvalinn ber að, væri tilvalið að reka hann inn í Lambhústjörn og veiða hann þar með handskutli og draga á land, íbúum Álftaness til yndisauka. Svo mundi frú Rídd brjóta upp á pils sín og vaða út að hvelinu og skera sér í soðið. En hún verður þá að gæta þess vel að koma ekki of nálægt kjaftinum á dýrin því það gæti bitið hana.    


mbl.is Stóran búrhval rak á land við Bessastaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baráttan við drekana hefir oft snúist upp í stórkostlega óhamingju

sprengja8Það er ýmislegt sér til gamans gert, ekki vantar það. Vér, sem enn erum á lífi, munum fjarska vel þegar þegar ungir drengir gjörðu sér til gleði að varpa heimagjörðum sprengjum í erindreka atvinnurekenda; það fór eins og til var ætlast, erindrekinn sprakk í loft upp áður en honum hafði tekist að reka erindi sitt. Um kveldið voru þeir lúbarðir á toginu fyrir framan söluskála olíufélagsins. Þeir náðu sér aldrei á strik eftir þetta, strákagreyin, allir hurfu þeir á fund feðra sinna á voveiflega og á dularfullan hátt; aunginn þeirra náði að verða þrítugur.

Já, elsku vinir mínir, vér getum ekki gjört oss fyllilega í hugarlund hve vegir örlaganna, - já og péníngana - eru órannsakanlegir. Aðrir drengir tóku sér skemmtigöngur á kveldin að vetri til upp í sveiti og hleyptu búpéningi bænda út og ráku til fjalla ef ráðrúm var til. Ólafur bóndi greip einn morguninn í tómt fjósinu, er hann hugðist mjalta kýrnar sínar; allar höfðu þær, fjéregtíu að tölu, hlaupið út í náttmyrkrið eftir að drengirnir opnuðu fjósið á gátt og leystu þær af básunum og höfnuðu sumar í kviksyndi, en aðrar álpuðust fram af klettasnösum og bjargbrúnum og lágu sprungnar fyrir neðan er að var komið. Allt árið þar á eftir og lengur, var nautgripaket í hvert mál á bæ Ólafs bónda. Og áður en yfir lauk voru kona hans og börn farin að öskra og baula eins og naut. Ólafur sjálfur var orðinn reiður konu sinni undir lok kýrketstímabilsins vegna þess að hún var farin að lykta eins og roskin belja, eins og hann orðaði það.

ÓfreskjaEkki tókst betur til þegar óvætti af drekakyni gekk á land upp úr Igluvatni á Heiði. Þetta kvikindi er sagt hafa drepið fjölda manns, reyndar á nokkuð löngum tíma því drekar sem þessir verða mjög gamlir. Ofur hugar á síðustu öld einsettu sér að ráða drekann af dögum með miklum sprengingum í Igluvatni. Því miður voru þessir björtu hugsjónamenn ekki kunnir staðháttum og sprengdu mörg tonn dýnimíts við bakkann á Tangavatni, en þar á bakkanum voru þrír fullir tankar með hráolíu og bensín. Eins og við manninn mælt, brustu undirstöður tankana við svo geigvænlega ofursprengingu, en innihaldið úr þeim steyptist logandi út í Tangavatn og eitraði það alveg til frambúðar. 


mbl.is Kasta heimagerðum sprengjum í skriðdreka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann var urðaður utangarðs í móum

x-rvkÞá hefir Reykjavíkuríhaldið komið sér upp kvenmanni, og annarri til vara, til að greiða krataeðlisíhaldinu Degi Bé það rothögg sem mun duga. Í gær fór líka fram, í kyrrþey, poletisk útför Eyþórs Arnalds; hann var urðaður utangarðs í Hádegismóum, að húsabaki; ,,kalt er við kórbak, hvílir þar Eyþórs brak, allir strengir sellósins slitnir og ljósastaurinn brotinn. En blessuð dúfan hún Hildur Íhalds slapp lífs frá hildarleiknum, grett og snúin svo sem vera ber.

En Hildur er fyrst og fremst ráðin af Sjálfstæðisflokknum til að ganga milli bols á höfuðs afglapanum Degi Bé og ganga í leiðinni frá hnýflóttum smá-drýsilpúkum eins og Holu Hjalla og Heiðu, sem ekki þurfa þung högg til að fjúka út í hafsauga. En svo höfum við líka orðið vör við krataeðlistalsmáta úr skúmaskotum skinheilagra í Samfylkingunni, þess efnis að Hildur Íhaldsins sé ósköp frjálslynd, en tækifærismennska, undirferli og bakstungur heita að sjálfsögðu frjálslyndi á tungumáli krataeðlisins. Þetta frjálslyndishjal undurgóða og heiðarlega fólksins í Samfylkingunni þýðir auðvitað líka, að Samfylkingunum, samkvæmt krataeðli þeirra, finnst tímabært að bjóða Sjálfstæðisflokknum til meirihlutasamstarfs eftir kosningar, það er að segja ef þessir tveir auðvaldsflokkar fá meirihluta borgarfulltrúa í kosningunum í vor. 

Á heimili frú Ingveldar og Kolbeins ríkja þó efasemdir um Hildi Íhaldsins, því þau sæmdarhjónin eru þess fullviss að Hildur sé ekki sá baulurass sem hefir bein í nefinu og harðla ólíkleg til að standast óheilindum krataeðlisins snúning í kosningunum framundan. Upphaflega lagði frú Ingveldur til við forustu Sjálfstæðisflokksins, að í vor ætti Flokkurinn að tefla þeim Hönnu Birnu, frú S. Andersen og Vígdísihaux fram í þrjú efstu sætin. Með þeim hætti, taldi frú Ingveldur, að þrennt mundi vinnast: Fémínístarnir kæmu allir sem einn til Sjálfstæðisflokksins, íhöldin mundu gleðjast og aumingjahersveit Dags Bé legði á hamslausan flótta og hennar yrði ekki vart meir. 


mbl.is „Gott að finna svona afgerandi stuðning“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðils Jónsson, fullgildur meðlimur í Flokknum

Hálfdán1Aðils Jónsson, flokksbundinn meðlimur í Sjálfstæðisflokknum, var handtekinn rétt eftir klukkan þrjú í dag. Það var Hálfdán Varðstjóri sjálfur sem handtók Aðils og gekk í skrokk honum að yfirheyrslu lokinni. Þegar Aðils var aftur kominn út á götu, buxnalaus, orgaði hann upp svo allir nærlendis máttu heyra, að þetta helvíti hann Hálfdán hefði triggerað sig.

En að voru fleiri Aðilsar að verki í dag en Aðils Jónsson. Tveir slíkir djöflar voru teknir eftir að hafa rotað nokkrar heiðurspersónur. Aðrir tveir fengu á andskotans baukinn fyrir að keyra um blindfullir og eiturlyfjaðir um holóttar götur höfuðborgarsvæðisins; bifreið annars þeirra, þjófstolin að vísu, staðnæmdir þegar hún hrökk ofan í gjótu á miðri götu í miðborg Reykjavíkur. Allir þessir aðíljar voru færðir í klær Hálfdáns Varðstjóra sem refsaði þeim grimmilega og setti í gapastokka á varðstjóraganginum, svo hann og varðsveit hans hefðu eitthvað til að sparka í þegar þeir ferðuðust um ganginn. Þetta segir Varðstjórinn að sé frábært tækifæri og gríðarleg áskorun. Það er það.

ruslÞrír illvígir aðílja réðust nú undir kveld inn á prófkjörstað Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og höfðu á brott með sér sex úttroðna kjörkassa af greiddum atkvæðum. Hálftíma síðast fundust leifarnar af þremur kössum í sorptunnu þar sem lagður hafði verið eldur að þeim og atkvæðunum. Hinir þrír kassarnir eru ófundnir ennþá og er uggur í kjörstjórum þar eð hin burthorfnu kjörgagnaílát innihalda sérstök hernaðarleyndarmál af tagi kosningasvika og jafnvel eitthvað af péníngum sem verið var að þvo þegar illræðismennina bar að garði.  


mbl.is Handtekinn grunaður um þjófnað úr skartgripaverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frægur fyrirlestur um meydóm og meydómsrof rifjaður upp

ing23Það þókti á sínum tíma afar djörf ákvörðun af hálfu frú Ingveldar að ríða á vaðið og flytja fyrirlestur sinn ,,Hvers virði er meydómurinn" á aðalfundi félags Sjálfstæðisflokksmanna í Garðabæ. Á meðan frú Ingveldur fræddi fullt hús Sjálfstæðismanna um um meydóm og meydómsrof fyrr og nú steinþögðu fundargestir, utan hvað einstöku þungar stunur gusu við og við upp úr einum og einum búk, þær báru allar keim af frygðarstunum, auk þess nokkur langdregin og blautleg prump, sem voru eigendum þeirra til lítils sóma.

Í fyrirlestri sínum drap frú Ingveldur ótímabæra kynvillu, sem virkaði á fólk eins og það hefði gleypt steinsteypta gangstéttarhellu; einnig rakti hún hlægilegan meydómsmisst Máríu Borgargagns, sem varð þess valdandi að Máría varð hreinlega hórnum að bráð og hlaut þau örlög að verða brókarsóttargimbur, kjaftatífa og trunta. Þess ber að geta, að frú Ingveldur hafði staðið Kolbein eiginmann sinn að verki, kveldið fyrir fyrirlesturinn, í óleyfilegum ástarlífsmökum með Borgargagninu undi borði úti í bílskúr. Það kveld sló frú Ingveldur bæði eiginmann sinn og Borgargagnið í rot.

Hinsvegar var það niðurstaða fyrirlestrar frú Ingveldar, að í nútíma- frjálsu lýðræðissamfélagi væri meydómurinn einskis virði og aðeins til trafala. Karlmönnum bæri þó skylda til að sniðganga hórinn eins og drepsóttarplágu og halda árunni hreinni og leggja sig fram um að halda krumlum sínum og öllum útlimum frá kvennærbuxum og því sem innan við slíka flík kann að leynast. Ef þeir gerðu það ekki væri hætt við að þeir fengju óorðið ,,nærbuxnafémínísti" á sig og þeim óþrifnaði væri þeim um megn að þrífa af sér. Það væri því mikið í húfi fyrir karlmenn í Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ.


mbl.is Að missa meydóminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í haust verður henni og Höllu Títu varpað á dyr

ing9Það væri rétt af þessari boðflennu á heimili alþýðunnar að hafa hægt um sig og steinþegja. Henni verður nefnilega varpað orðalaust á dyr í haust. Ýmsir góðir menn og konur innan verkalýðshreyfingarinnar komu nefnilega fljótlega auga á þessi kynlega boðflenna var nefnilega nokkurskonar Trójuhestur, sem innihélt ekki aðeins fémíníska kerfiskallinn jómfrú Snædal, heldur leyndust og í belgnum á henni Katrín Jakobs og ríkisstjórn hennar með Bjarnaben og Höllu Títu Gunnarsdóttur og sæg af krataeðlissjúklingum. Þessi þrifafénaður gjörði sig auðvitað heimakominn um leið Trójuhrossið Snædal hafði truntast inn á kontór alþýðunnar og tók strax til óspilltra málanna að leggja grjót og skít í götu baráttusinnaðra verkalýðsforingja með undirróðri og öðrum viðlíka andlegum sóðaskap.

Enda hafa raunverulegir verkalýðssinnar á borð við Sólveigu Önnu, Ragnar í VR, Aðalstein á Húsavík og Villa á Skaganum mátt hafa sig alla við að halda sjó gagnvart gjörningahríð innvolsins úr Trójumerinni, sem hafa leikið listir sínar af áður óþekktum skepnuskap og slóttugheitum. Nú kemur jómfrú Snædal jarmandi um að tóna einhvern andskotann niður þegar hún og Halla títa vinkona hennar sjá fram á að leiknum muni ljúka í haust og þær muni þurfa að lurðast aftur niður í Stjórnarráð eins og veðurbarðar vofur og skríða undir fjaðralausn vænginn á hugsjóna- og skoðanaleysingjanum Katrínu Djakkó og hennar hyski í Hreyfingu Framboði. 

umun baráttuglatt verkafólkReyndar hafa tveir ágætir verkalýðsforingjar tekið jómfrú Snædal á kné sér í vikunni og rassskellt hana vel og vandlega og Sólveig Anna á eflaust eftir að láta jómfrúna hljóða og emja eins og naut áður en yfir lýkur. Fari allt eftir áætlun tekur Skaga-Villi við Starfsgreinasambandinu eftir fáeina daga og á Alþýðusambandsþingi í haust verða skuggarnir særðir og svældir út eins og melrakkar úr greni. Að vísu hefur kerfiskrataliðið í Starfgreinasambandinu komið sér saman um að bjóða fram til formanns gjörsamlega litlausan og rassbláan krataling beint úr framsóknarstíunni hjá gifturíka kaupfélagsstjóranum á Sauðárkróki. Ef sá náungi verður fyrir slysni kosinn formaður Starfsgreinasambandsins mun það hafa svipaða þýðingu og hjá þeim skipstjóra sem léti bera steindauðan mann út á dekk til vinnu á hávertíðinni.Fari svo illa að kratelsið úr Framsóknarfjóshaugnum fái kosningu á Starfsgreinaþinginu, þá verður það aðeins skammgóður vermir; jómfrú Snædal og Halla Títa fjúka loftköstum út í haust og skömmu síðar mun baráttuglatt verkafólk taka Starfgreinasambandið af krataeðlisvesalingunum, en róttækt verkafólk hefir yfirleitt fjaraska litla meðaumkun með möppudýrum krataeðlisins, sem hafa fénýtt félagsgjöld láglaunafólks aðeins of lengi og ekki til neins annars en að þjónusta auðvaldið.


mbl.is „Ég ætla mér ekki að dýpka þessar deilur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo rétti hann jómfrúnni svona assgoti snyrtilega á ranann

spark3_1045735.jpgÞað var viðbúið að það væri eins og að kaupa köttinn í sekknum að hafa góðar væntingar til jómfrú Drífu Snædal sem forseta Alþýðusambands Íslands. Enda gjörðist jómfrú Snædal fljótlega helsta vandamál sambandsins og nú mun hún komin út í skurð og aunginn í sjónmáli sem hefir lyst á að draga hana upp. Hún er með öðrum orðum, búin að vera. Það var ekki nema rétt af Ragnari að rétta jómfrúnni svona snyrtilega á ranann að hún hrataði út í skurðinn atarna, sem hún á ekki afturkvæmt upp úr.

Nú, ekki er það nema í meðallagi géðugt fyrir jómfrú Snædal að vera auglýst óheiðarleg á opinberum vettvangi verkalýðshreyfingarinnar, en það er auðvitað hennar að sanna, svo ekki verði um villt, að hún sé ekki óheiðarleg, en það kann að reynast erfitt fyrir eina jómfrú sem hefir verið innvinkluð í VG og er vinkona Katrínar Djakkó og Höllu Gunnars að bera af sér óheilindi og skítmennsku, eða öllu heldur skítkvennsku. Jómfrú Drífu Snædal eru allar bjargir bannaðar, það sér hver maður sem hefir sjón, og hennar bíða hér eftir aðeins þau störf sem henni hafa alla tíð þókt sér ósamboðin. Sjáið þið þær fyrir ukkur, Snædal, Katrínu og Höllu hræra í grautarpotti á leikskóla eða rembast við að snyrta þorskflök hjá samherjunum í himnaríki kvótans?

höggSvo þar líka endilega að rétta djöfuls krataeðlinu rækilega á andskotans auðvaldssvika-ranann þannig að það verði úr sögunni um aldur og ævi. Það væri mikið góðverk og sá er greiddi krataeðlisrassgatinu höggið sem gerði út af við það væri upp frá því kallaður velgjörðarmaður mannkyns. 


mbl.is Segir Drífu ósanngjarna og óheiðarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband