Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2022

Þið eruð ekki hæfar í húsum verkafólks

efling3Já, það er tími til kominn að Ólöf Helga og Agníeska hætti þessu kjaftæði og hætti í leiðinni alfarið að láta skuggaliða úr verkalýðshreyfingu, samtökum atvinnurekenda og pólitík spila með sig og hafa sig að brjóstumkennanlegum fíflum. Þið ættuð, stúlkur mínar, að hafa vit á að setja skottin ykkar milli lappanna og hafa ykkur á brott úr húsakynnum Eflingar og láta aldrei sjá ykkur þar aftur. Þið hafið fyrir löngu gert nóg af ykkur gagnvart félagsmönnum Eflingar og flestum er orðið fullljóst að þið eruð ekki í hæfar í húsum verkafólks.

Það er eins og hvur önnur lýgi að félagsfólk í Eflingu sé reitt vegna einhvers dularfulls fordæmis, sem uppsagnir á óhæfu skrifstofustarfsfólki eiga að vera samkvæmt Ólöfu Helgu. Ég trúi mikið frekar að félagsmenn Eflingar séu, eftir allt sem á undan er gengið, upp til hópa samþykkir ákvörðun stjórnar um að segja öllum skrifstofusjakölunum upp á einu bretti. Það þjónar ekki hagsmunum eflingarfólks, að leyfa skrifstofuliðinu að vaða uppi lengur með þeim hætti sem við höfum séð; hagsmunir Eflingar og verkalýðshreyfingarinnar krefjast þess að óvitum, illþýði, eineltishrottum og verkfærum auðvalds og krataeðlis á skrifstofunni verði sópað út, - og út skal þessi ófénaður! Ef ný stjórn Sólveigar Önnu hefði látið undir höfuð leggjast að taka á skrifstofulýðsvandamálinu með þeim hætti sem hún gerði hefði hún verið að bregðast félaginu og svíkja það sem lofað var í aðdraganda stjórnarkosninganna.

Það er ósköp hlægilegt að sjá Ólöfu Helgu, sem Sólveig Anna bjargaði frá hremmingum á Reykjavíkurflugvelli, að hún vilji ,,hætta þessu kjaftæði og fara að vinna fyrir félagsmenn okkar" eins og hún orðar það. Fyrir það fyrsta eiga þær Agníeska og Ólöf Helga enga félagsmenn innan Eflingar og í öðru lagi höfnuðu eflingarfélagar fyrir stuttu síðan að þær og skrifstofuliðið stjórnuðu félaginu. Að öllu eðlilegu hefðu Agníeska og Ólöf Helga átt að segja sig frá öllu innan Eflingar um leið og úrslitin í stjórnarkosningunni lágu fyrir; en þær höfðu auðvitað hvorki reisn né vit til þess, ekki heldur siðferði, hvað þá hugsjón virkrar verkalýðsbaráttu.   


mbl.is „Ég vil bara hætta þessu kjaftæði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glamrar silfurpungurinn

Læsis glæsis ræsis dræs,
draugfull hlussast Dollý gæs.
Grenis slenis venis sen;
sjáið, nú mælir Bjarniben.
Bullum vullum drullu sull,
hvurt orð hans vegur á við gull,
gengur hann svo í garðinn inn;
glamrar silfurpungurinn.

monni2.jpgHvur er Bjarniben? Er hann við öll eða útfrymi með pípuhatt? Eða er hann sá Giljagaur sem gefur bjargálna belgjum brauð. Nú er hún Bánkasýsla dauð. Kampavín og klæðin brún, karlfjandinn mígði út um tún. Nú skal segja, maður meyja, Freyja treyja pissubleyja. Beit í brýnið, bruddi svínið og snöri sér svá í ring. Nei, við erum öll Katrín, hugsjónarýr, skoðanasljó, hlandvot, sannleiksdauf. Okkar heimili er miðstöðvarkompan með Brynjari Vondulykt og Kolbeini.

Þegar öllu þessu er lokið hreystin leitar upp í kokið og í flest skjólin er fokið. Þá kemur krataeðlið uppskafninganna til skjalanna og bjargar Bjarnaben frá fári með einmuna gaspri og fáráðlingshætti hins brauðfætta bjölluseyðs. Svo sameinast þeir í pútínshatri, rússahatri, kínahatri, kúbuhatri, og bænir sínar helga þeir Mammóni, Kólumkilla, NATÓ, ESB, USA og FÍAH. 


mbl.is Arður greiddur rétt fyrir útboðið orsakaði verðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er einhver endurborinn nútímajésús að ónáða musterispresta valdsins?

jes.jpgSkyndilega hefir Moggi gamli öðlast lifandi trú á verkalýðsmálum, en einkum þó og sér í lagi á einu verkalýðsfélagi og formanni þess, þ.e. verkalýðsfélaginu Eflingu og Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni þess. Samkvæmt Mogga gamla mætti halda að Sólveig Anna sé Jésús endurborinn, og að hún hafi ráðist með ofstopa á fræðimenn og Farísea auðvaldsmusteranna og rekið þá á dyr með barsmíðum og hastarlegu orðbragði.

Sem betur fer er Moggi gamli ekki einn í baráttunni gegn þessum endurupprisna nútímajésúsi sem segir auðvaldi, græðgi og kauphallarhéðnum til syndanna. Í sveit Mogga má finna auk Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og Ríó Tintó, ekki minni samherja Mogga en jómfrú Drífu Snædal og vinkonur hennar þær Katrínu Jakkó og Höllu Títu, gömlu Framsóknarmaddömuna, krataeðlishyskið og SALEK-systkinin Björn Snæ og Halldóru á Ölfusárbakkanum. Af þessu má ráða, að sá er hefir framangreinda snillinga í samherjavinahópi sínum eru allir vegir færir og hann mun sigra alla og mylja alla undir sig, að nýendurbornum jésúsum meðtöldum, eins og óvinnandi tvöhundruð tonna jarðýta.

Nú skal og enn upphafið kjörorðið mússólíníska ,,stétt með stétt" því efrimillistéttarfémínístar, yfirstéttin veraldleg og geistleg, útgerðarsamherjar, krataeðlispóstar og gifturíkir kaupfélagsstjórar verða að sameina, eða öllu heldur samherja, krafta sína gegn öllum nútímajésúsum sem ætla sér að reka góða menn út úr helgidóminum eins og einhvern ræningjaskríl. Nei, soleiðis þræla af jésúættum vilja Grímur Loðinkinni og Viðreisnarfélagið ekki hafa, hefðu þeir Pétur Þríhross og Júel J. Júel sagt á sínum velmektardögum. Og við vitum öll hverjir eru afkomendur þeirra heiðurspilta, Péturs og Júels, hér í allri viðreisninni og velferðinni.


mbl.is Ekki órofa samstaða innan ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fámennt og illmennt á Eflingarkontórnum í dag

fool3.jpgÞað var fámennt og illmennt á Eflingarkontórnum í dag. Mannskapurinn meira eða minna á generalfylliríi og mætti ekki ekki eða lá í slagsmálum í borðsalnum og neitaði að koma á dekk. Hvað á góður skipstjóri annað að gera en að kasta slíkum óreglumannskap í land eða í sjóinn? Upp úr hádegi var Gabríel Benjamín trúnaðarhrútur í skrifstofustíunni kominn á beit á Guðrúnartúninu og kroppaði í sig sinurudda og sveppi, og það stóð blár eldstrókur aftan úr berendanum á karli. Sú sjón dró að sér allnokkra vegfarendur sem dáðust allir af Gábríjeli og tóku af honum margar ljósmyndir. Svo fóru sveppirnir að gjósa upp úr hausnum á trúnaðarhrútnum og eftir það var gamanið búið.

Þá er og um það talað að sjúkleiki Eflingarkontóristanna sé alvarlegs eðlis, sumir legið í kör svo mánuðum skiptir en aðrir legið í stormasömum drykkjuskap og orðið að bera að þeim og frá. Ein kérlingin, fyrrum skrifborðssjakali, sem breyttist í bjöllu eða kakkalakk þegar Sólveig Anna mætti á alþýðusetrið í Guðrúnartúni, fuðraði bókstaflegu upp þar sem hún sat við bættan rauðvínsdrukk í stofunni heima hjá sér. Er að var komið dulítil öskuhrúga á stólnum og fyrir framan hann það eina sem eftirvar af hinum fyrrum knáa skrifstofusjakala.

Allt hefir verið eftir þessu og hefir krankdæmi eftirlifandi skrifstofusjakala á Eflingarkontórnum vakið athygli vísindasinnaðra lækna, Vatnsmýrar-Kára og Landlæknisembættisins. Þykir líklegt að krataeðlisvírusinn á Eflingu hafi, illu heilli, stökkbreyst og komist í fugla himinsins, sem veikjast hver um annan þveran og liggja nú margir dauðir úr drepsóttinni um eyjar, víkur og voga; þeir verða allir blessunarlega fallnir frá í haust. Af þessu má ljóst vera að krataeðlisvírusinn er hættulegur, sem sést best á því að aumingja karlinn hann Sigurður Há, sem er afar rótækur í kratamenningunni og gengur um í verkamannabúningi, fékk vírusinn í hausinn og á ekki afturkvæmt til vits né heilsu; hann hefir nú stundað linnulausar árásir á Sólveigu Önnu í fjögur ár og er löngu orðinn vágestur á öllum netsíðum á Íslandi.


mbl.is Ná varla lágmarksþjónustu á skrifstofu Eflingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítil saga úr hversdagslífinu

ing11.jpgBölvuð kerlingarboran, sem bæði var hrokafull og montin, varð fyrir því óláni á torginu, að ósvífnir götustrákar komu aðvífandi og höfðu af henni nærbuxurnar fyrir allra augum. Þegar svona var komið greip konuboran til þess ráðs að setjast niður á kaffihúsi eins og hún var á sig komin. Fólk sem sá á þennan sjálfumglaða kvenmann undraðist smekkleysi hennar og fyrirlitningu á öðru fólki stóð upp frá borðum í kaffihúsinu og hafði sig þegjandi á brott.

Götustrákarnir, aftur á móti, fóru með nærbuxur montnu og hrokafullu borunnar heim og suðu sér úr henni súpu. Þeir bættu fáeinum negulnöglum út í nærbuxnapottinn, einnig niðurskornum tómati og gúrkubita; sósulit þurftu þeir ekki og þeir hresstust mjök af súpunni og urðu fjörugir eins og kettlingar. Þá súpan var soðin og etin, var svo komið fyrir konuborunni, vinkonu okkar, á kaffihúsinu, að starfsstúlkurnar innan við diskinn höfðu kallað lögregluna á vettvang til að fjarlægja þennan annarlega gest, sem vissulega hafði gjörst sek um dónaskap í fordæmalausari kantinum.

Nú voru götustrákarnir komnir aftur niður í bæ, saddir og sælir, og það vakti athygli vegfarenda hvað þeir sleiktu mikið út útum og slefuðu af einhverjum innri unaði, sem fólk á förnum vegi gat ekki áttað sig á. Þeir stóðu hinumegin götunnar, beint á móti lögreglustöðinni, þegar vikapiltar Hálfdáns Varðstjóra báru boruna okkar á milli sín inn á stöð. Konan sýndist afar ósamvinnufús við lögregluprjónana og reyndi hvað hún gat að losa fætur og höndur úr greipum þeirra til að geta barið þá og sparkað í þá. Með þessu fylgdust götustrákarnir með glýju í augum svo auðsýnt mátti vera að þessi kynlegi ungdómur var gott efni í öfugugga framtíðarinnar. Sagt er að viðkomandi kvenpéningur heiti annaðhvort Ingveldur eða Borgargagn, ef ekki bara hvort tveggja.


mbl.is Bankasýsla ríkisins verði lögð niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir kunnu á svona jarðvöðla fyrir vestan og vissu hvað bar að gera

traktorÖ hö hö h höhö-haujj-ö. Þeir kunnu nú að meðhöndla svona jarðvöðla fyrir vestan í gamla daga. Það var dásamlegt að heyra sögurnar af því. Einn þrællinn klöngraðist upp á fjall á dráttarvélinni sinn, það var Massey Ferguson, og spólaði allt í tætlur þar sem hann fór um. Auðvitað misbauð heimamönnum þetta, - karluglan á Fergusoninum var aðkomugemsi sem hafði erft jörð eftir afa sinn og ömmu. Nú, Vestfirðingarnir höfðu aungvar vífilengjur á og hengdu bölvaðan sóðann eins og hund utan á súrheysgryfjunni hjá oddvitanum. En traktorinn gerðu þeir upptækan; gáfu hann fátækum útvegsmanni í kaupstaðnum. Einhverjir gerðu athugasemdir við að hræið af karlinum glataðist og aunginn vissi neitt hvað af því hefði orðið. Mörgum árum síðar fundust bein á botni súrheysgryfjunnar þegar hreinsað var upp úr henni.

Svo var þarna drykkfelld kona, sem stundaði útreiðartúra og hafi einlægt mörg hross til reiðar. Nótt eina að vori til þegar jarðvegur var blautur og gljúpur fékk kérlíng sér neðan í því og þaut svo á tíu hrossum fram og aftur sveitina með tilheyrandi jarðraski og eyðileggingu. Þá kom aftur til kasta oddvitans, sem mundaði riffilinn sinn út um eldhúsgluggann hjá sér og skaut kerlinguna. Hún þeyttist af baki og hafnaði klofvega á rakstrarvél og skondraðist þaðan niður í læk sem stíflaðist þegar. Um morfuninn sauð oddvitinn kerlínguna ofan hundana, sem gjörðu góðan róm af kræsingunum.

Reyndar féll oddviti þessi fyrir björg fyrir atbeina fjárhundsins Snata, en það er önnur saga. Á Barðaströndinni, þar sem þeir hengdu Svein heitin Skotta fyrir kynferðisafglöp og áreiti, þurftu þeir að taka til sinna ráða vegna umgengnirillra ferðamanna. Þetta voru andstyggileg hjón frá Austurríki. Þeir þarna fyrir vestan kölluðu bónda konunnar Hitleringsbjána og fullyrtu að hann væri áreiðanlega náinn ættingi austurrísks stjórnmálamanns sem komst til metorða í Þýzkalandi. Eitthvað hafi fólk þetta verið með skóflu uppi í fjallshlíð, en það gátu Barstrendingar ekki þolað og réðu hjónin af dögum með aðstoð dýraboga og þungra timburlurka. Stuttu síðar, þegar farið var að svipast um eftir þessu ólánsfólki frá Austurríki, kom í ljós að hjónin voru fornleyfafræðingar með heimild yfirvalda til fornleifarannsókna á Vestfjarðakjálkanum. 



 


mbl.is „Ótrúlegt að menn skuli gera þetta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar heitir að Lekandastöðum

Ísis frýsis lýsis trýs, -
hýsis grís og dauðar mýs.
En þegar helvítis holdið rís
er helkaldur lekandinn þegar vís
og upp fransós og fladdari gýs.

Svona orkti skáldið Tjón um reynsluna af fyrstu æskuást sinni.
Hann féll fyrir indælli stúlku, sem reyndist svo ekki öll þar sem hún var séð. 
Telpan hafði nefnilega ýmsa sjúkdóma, bæði innan skinns sem utan, illvíga og skæða.
Hæst allra hættulegra kvilla í hennar ranni var þó brókarsóttin,
svo undur krónísk og ólæknandi.
Skáldið Tjón ætlaði í örvinglan sinni að skera sig á háls - lífið var óbærilegt -
en það missti rakhnífinn á leyndarlim sinn er sneiddist hálfur af.
Lauk þar æskuást skáldsins Tjóns.
Svo kom í ljós að æskuástin heitir Máría Borgargagn.

Lekandagráninn Indriði Handreður getur ekki orkt,
en hann gat kvænst Borgargagninu.
Hjá þeim heitir að Lekandastöðum.
Syndriði, Bandriði, Grindriði, Hlandriði.
Hvað viljið þér fleira frú mín góð?

ingv4_1240251.jpg


mbl.is Ekki fýsilegt að bíða lengur eftir ríkisstjórninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örvita taðkarl í þjónustu Maddömunnar æpir upp úr framsóknarmyglunni

verko2Það var aldrei að taðkarlinn fyrir norðan skriði ekki upp nærbuxum gömlu Framsóknarmaddömunnar talandi tungum eins og tunglsjúkur hlandprestur aftan úr miðöldum. Þessi kunni norðlenski leppalúði, kalónaður og sósaður af samherjafrygð og framsóknarmyglu, er í svo góðu skapi í dag, að hann heldur að hann sé þess umkominn að hreyta krataeðlis- og framsóknarauðvaldsdrullu í andlitið á heiðarlegum verkalýðsforingjum eins og Sólveigu Önnu, Skaga-Villa og Aðalsteini á Húsavík. Já, þeim munar ekki um, taðkörlum eins og Bjössa Snæ að þykjast vera verkalýðssinnar þókt þeir nái varla andanum við að sleikja rassinn á auðvaldssamherjum, Framsóknarmaddömunni og bankaræningjunum.

Það væri gustukarverk, ef Sólveig Anna og þau hin gerðu sér ferð í Eyjafjörðinn og frelsuðu heilaþveginn verkalýðinn þar undan taðkarlinum mikla úr Framsóknarfjósinu, Bjössa Snæ. Það tæki ekki nema dagspart fyrir þau Sólveigu að hleypa karltruntunni á flótta, en trúlega tæki lengri tíma til að laga til í höfðinu á aumingja verkafólkinu þar nyrðra eftir framsóknarvírusinn og krataeðlissjúkdóminn sem fengið hafa að grasséra á blessuðu verkafólkinu.

xbJá, taðkarlinn fyrir norðan er svo vel að sér, að hann leyfir sér að fordæma hluti, sem hann virðist ekki hafa kynnt sér né hefir nokkurt hundsvit á. Heldur hann virkilega að Mái samherjakonungur mundi láta líðast á skipum sínum, ef karlarnir færu að vinna gegn honum með ósvífni og dylgjum og gera sér að leik að skemma veiðarfærin og vélarnar til að koma honum á hausinn? Nei, nú er tímabært fyrir þennan gatslitna þjón gömlu Framsóknarmaddömunnar þvo sér í framan og stinga sér eins og hrökkáll ofan í Framsóknarfjóshauginn eða pilla sig aftur niður í nærbrók þeirrar gömlu og halda sig þar uns yfir lýkur. 


mbl.is Uppsagnirnar skaði verkalýðshreyfinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo birtist hún á páskadagsmorgun eins og peðfullur kaþólskur kirkjuhöfðingi

verko5Já, hún er smekkleg, eða hitt þá heldur, hún frú Snædal, sem aldrei hefir dýft hendi í kalt vatn, að nota páskadagsmorgun til að hella úr tómum skálum fúlyndis síns yfir Sólveigu Önnu, verkalýðsfélagið Eflingu og heilbrigða verkalýðsbaráttu. Ef mér skjöplast ekki, þá hefir jómfrú D. Snædal verið peðfull í morgun eins og kaþólskur kirkjuhöfðingi, sem er nýkominn af kvennafari. Það er aungvu líkara en kerlingaranginn hafi etið óðrarkonu kukk, en það kvað vera nóg um þessháttar krásir hjá auðvaldssleikjunum í VG; þetta sendi Katrín í forsætisráðuneytinu frú Drífu Snædal Höllu Títu sér til halds og trausts og gottgjörelsis.

Þannig er það nú. Svo er sérkennilegt, svo ekki sé meira sagt, að kvensniptir, sem aldrei hafa dýft höndum í kalt vatn, hvað þá mígið í saltan sjó, skuli leggjast upp á alþýðuna og láti borga sér stórfé fyrir. Þeim aurum er illa varið. Svo gasprar þessi kérlíngardraugur eins og digur frenja um ómenninguna á Eflingarkontórnum og gerir lítið úr einelti og sviksemi ódámanna sem ráðnir voru þar inn í góðri trú að þar færi skikkanlegt og siðlegt fólk. Og jómfrú Snædal, sem aldrei hefir unnið alþýðuvinnu með alþýðufólki á alþýðlegum vinnustað þykist ofan á allt annað vera dómbær á ,,vinnuframlag" eineltishrottanna sem safnast höfðu saman á skrifstofu Eflingar.

En inni í höfðum frú Snædal og Höllu Títu glymur SALEK svikasymfónían Fjandanum og auðvaldinu til dýrðar. Sannleikurinn er sem sag sá, að frú Snædal er hrædd, skíthrædd. Það á nefnilega að leiða hana út í anddyri ASÍ hallarinnar í haust og sparka henni eins og hana, dauðum úr foglaflensu, út á strætið og Höllu Títu með henni. Og það verður nú farið að traktéra starfslokasamningum á þær dömur upp úr tómum vösum stritandi alþýðu. Ónei. Þær verða að láta sér nægja gott drag í rassgatið, en það er það eina sem svona kerlingarspjátrungar verðskulda.   


mbl.is Hægt að gera umbætur án þess að ráðast í hreinsanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógeðsleg útgerð á illa greindum niðurrifsseggjum

xvg3Hvaða dárar eru að eiginlega sem gera bjánana Ólöfu Helgu og Agníesku út? Þessi grey eru svo víðáttu heimsk, að þær virðast með engu móti skilja að þær hafa með öllu fyrirgert rétti sínum sem starfsmenn Eflingar. Það er ljóst hverjum manni með meðalgreind og þar yfir, að félagsmenn Eflingar höfnuðu Ólöfu þessari og Agníesku, og það verða einhverjir góðgjarnir einstaklingar að taka að sér að leiða þeim fyrir sjónir að nærveru þeirra er ekki óskað lengur hjá félaginu.

Varla ætti að þurfa taka fram, hve ljótt að er og andstyggilegt að etja fíflum út í aðstæður sem þau ráða engan veginn við og hafa ekki annað upp úr en að verða sér til skammar.Hins vegar er gott að sjá, að Sólveig Anna ætlar að taka á óhæfu starfsfólki á skrifstofu Eflingar af alvöru eins og alvörukona. Eftir að Sólveig komst loks inn á Eflingarkontórinn aftur hefir hún og hennar fólk látið höndur standa fram úr ermum, sagt vitfirringunum á skrifstofuvitfirringahælinu upp, lokað innra neti Eflingar fyrir niðurrifsrottum og undiróðurslýð og auglýst eftir nýju starfsfólki, því ekki verður sagt að á skrifstofu Eflingar hafi verið raunverulegt starfsfólk á undanförnum árum, aðeins sjálfhverf, ágjörn, hugsjónalaus og undirförul undirmálsfífl.

Já, félagar, það er þyngra en tárum taki, að hafa mátt horfa upp á gerpi á launum hjá Eflingu stunda blygðunarlausa skemmdarverkastarfsemi gegn stjórn og almennum félagsmönnum Eflingar, íslensku og erlendu verkafólki af fordæmalausri óvirðingu og illmennsku. Svo kemur þessi illa greindi villulýður fram í fjölmiðlum og rífur kjaft og er með hrokabelging eins og það hafi hreinan skjöld. Sérkennilegastur er þó söfnuðurinn sem stendur að baki kontóristanna hjá Eflingu; sá óþverrafénaður er undarleg blanda af krataeðliaumingjum, harðlínu hægri groddamennum, forseta og framkvæmdastjóra ASÍ og silkiklæddu háskólamenntuðu efrimillistéttarhyski. Það er margur auðvaldsúlfurinn í sauðargæru um þessar mundir kringum verkalýðsfélagið Eflingu.  


mbl.is Sólveig Anna losar sig við Agnieszku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband