Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Amfetamín eflir stafsþrek og eyðir sorg

Á erfiðum tímum, þegar þjóðin gengur gegnum sorgarferli, þynglyndi og depurð, þarf á ölla að halda sem blásið getur fólki bjartsýni og athafnasemi í brjóst.

Nú er það löngu sannað, að amfetamín er búið þeim dýrmætu eiginleikum að gera fólki glatt í geði, lyfta því uppúr öldudal sálarinnar, efla starfsþrek þess. Auk þess er amfetamín ódýrt í framleiðslu og meðfærilegt að öllu leyti.

Nú vill svo vel til að nægar birgðir amfetamíns eru til í landinu, svo er hafnarfjarðarverksmiðjunni fyrir að þakka. Það er því ekki eftir neinu að bíða fyrir stjórnvöld, að puðra öllu þessu amfetamíni, og meiru til, uppí nasirnar á þjóðinni, svo hún rakni með hraði úr bankakrísurotinu og bretti upp ermarnar sem aldrei fyrr. Það blasir við Íslandi að hlunkast aftur aftur á sextándu öld, ef réttu náðarmeðölin verða ekki brúkuð. Og amfetamín er að sönnu töfrandi náðarmeðal sem getur auðveldlega lyft grettistaki. Oft var þörf fyrir íslendinga að grípa til öflugra aðgerða, ekki síst á sautjándu og átjándu öldinni, en nú er það algjör nauðsyn.


mbl.is Framleiðslugeta fyrir milljónir evra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skammt stórra högga á milli

Heldur virðist vera að saxast á limi íslendinga í lyfjaframleiðslu. Í gær lét íslenska valdsstjórnin lögregluna ráðast á afkastamikið lyfjafyrirtæki í Hafnarfirði og loka því. Í dag berast fregnir af því að töflu- og mixtúrufirmað Aktavis sé til sölu.

Þetta er afar hryggilegt því lyfjaframleisla gefur vel í aðra hönd, en það er einmitt það sem íslendingar þurfa mest á að halda í augnablikinu.

Árásin á lyfjaverksmiðjuna í Hafanrfirði í gær var náttúrlega forkastanlegt athæfi. Þar fór vinnstaður sem skapaði miljóna, og aftur miljóna, verðmæti. Og þegar við bætis hugsanlegur útflutningur fyrirtækisins á afurðum sínum, verður málið mun alvarlegra. Eins og á stendur ætti gjaldeyrisskapandi iðnaður að vera friðhelgur að öllu leyti, og það ætti valdsstjórnin og lögreglan að vita. En sumum virðist því miður fyrirmunað að sjá sóma sinn á erfiðum stundum.

Ógæfu Íslands virðist verða allt að vopni þessa dagana.


mbl.is Segir Actavis hugsanlega til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir fiska sem róa frá Cayman eyju

Þeir fiska sem róa frá Cayman eyju. Það vita sæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson, en þau röru 12 vetrarvetíðar frá Cayman eyju við góðan orðstýr. Net sín lögðu þau vítt og breitt umhverfis eyjuna og lentu oft í góðum aflahrotum.

Í lok 12 vertíðarinnar sigldu þau því miður upp á sker og brotnaði þar skip þeirra í spón, en þau björguðust við illan leik frá borði og mátti víst ekki tæpara standa. Síðast fréttist af frú Ingveldi og Kolbeini eiginmanni þeirra hvar þau bjuggu við sult og seyru í einhverju alræmdasta fátækrahverfi Lundúnaborgar og höfðu framfæri sitt af því að éta uppúr sorptunnum.


mbl.is Ingibjörg hannaði lystisnekkjuna 101
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaskafatið

Uppúr hálffertugu fór Sigurveig, þessi stóra, spengilega kona, að gildna; rassinn og brjóstin tóku stökkbreytingu, björgunarhringir settust á kviðinn og innan skamms tíma voru farin að sjást merkjanleg drög að undihöku. Daginn sem Sigurveig varð 38 ára var hún hreinlega orðin digur. Ef hún hreyfði sig, titraði líkami hennar og skalf eins og hún væri búin til úr ávaxtahlaupi eða frómas. 

Svo var það einhverju sinni, þegar við félagarnir vorum að fylgjast með Sigurveigu hvar hún kjagaði eftir gangstéttinn handan við götuna, að Villi raftur gat ekki orða bundist: - Að sjá helvítis manneskjuna, sagði hann hneykslaður, - hún er orðin eins og vaskafat. Allar götur síðan hefur Sigurveig aldrei verið kölluð annað en Sigurveig vaskafat. Og ef ég segi eins og er, þá ber kerlingarhólkurinn viðurnefni sitt ákaflega vel, stendur undir nafni eins og sagt er. Að sama skapi hefur Eyjólfur bóndi hennar dregist saman, er orðinn óttalegt nástrá, eiginlega ekkert nema nefið og starandi augun. En af hverju karlgreyið hefur þróast svona inní sig veit ég ekki og mér er raunar alveg sama hvernig á því stendur.  


mbl.is Fatið niður fyrir 70 dollara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klæddur lörfum með (betli) staf í hönd

Aumingja karlinn hann Gunnar I. borgarstjóri Kópavogs, sérlegur elskhugi steinsteypu og mótatimburs, að lenda í þessum fjanda. Ef fer sem horfir mun Kópavogur glata sjálfstæði sínu og verða innlimaður í Reykjavík eða jafnvel Seltjarnarnes. Og hvað verður um Gunnar I. þá? Sjáið þið karlstráið fyrir ykkur sem beiningamann, vappandi á Hamraborgarsvæðinu, með staf (betlistaf) í hendi og íklæddur lörfum? Það verður saga til næsta bæjar ef svo fer. En annað eins hefur nú gerst, eins og blessuð dæmin sanna.

Svo bárust landslýð þau kátlegu tíðindi í dag, að nokkur sveitarfélög hefðu tapað stórfé á peningasukksgambli með eigur útsvarsgreiðenda sinna. Það held ég séu ljótu andskotans apakettirnir sem stjórna þeim bæjarfélögum. Ég sé ekki betur en slíkir sveitarstjórnarmenn séu fullboðlegur tukthúsmatur og rúmlega það.

Ég spái því að það verði þröng á þingi í fangelsum landsins bráðlega því stórir hópar pólitískra og fjármálalegra angurgapa þurfa innan tíðar sárlega á langþráðri hvíld að halda bak við lás og slá. Til að bregast við brátt aðsteðjandi húsnæðisvanda tuktúslima, verður ríkisstjórnin að taka 2 - 3 reiðhallir eða hundraðmilljóna hesthús eignarnámi. Í slíku fangahesthúsi fengi hver fangi sinn stall, en fyrrverandi íbúar hesthússins, hrossin sjálf, færu að sjálfsögðu öll sem eitt beint ofan í saltketstunnur.  


mbl.is 4-5 milljarðar vegna lóðaskila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjöllusauður

Þegar frá leið fannst okkur það mikið lán að hafa kynnst Alla bjöllusauði. Samt sem áður erum við algjörlega sammála um að Alli sé líklega leiðinlegasti maður sem við höfum umgengist á lífsleiðinni. Við erum t.d. sammála um að það hafi verið algjör viðbjóður að mæta í vinnuna mánuðina sem við vorum samtíða Alla bjöllusauði í vinnu. Þetta helvítis gerpi var ekki fyrr vaknaður en hann setti upp þetta velgjandi hrokaglott, sem vék síðan ekki af trýninu á honum allan daginn. Og ekki stóð á kvikindinu að brúka kjaft, ljúga, gorta og hreyta ónotum í okkur hina. Í tæpa þrjá mánuði létum við Alla bjöllusauð vaða yfir okkur með öll sín leiðindi; umbárum dýrið af ofurkristilegri þolinmæði í þeirri bjargföstu trú, að öll él taki einhvern tímann enda.

Svo kom að því einn morguninn, að Alli bjöllusauður mætti ekki til vinnu. Við félagarnir gengum að okkar störfum eins og ekkert heðfi í skorist. En uppúr klukkan 10 kom Hafliði verkstjóri þjótandi út úr frystiklefanum og tilkynnti óðamála að Alli bjöllusauður væri steindauður, hann lægi beingaddaður inni í frystiklefa. Svo þagnaði Hafliði allt í einu og hugsaði sig um. - Hann hlýtur að hafa lokast inni í klefanum í gær og ekki komist út, sagði hann síðan og leit ásakandi í kringum sig. Svo bætti hann við, með þjáningargrettu á andlitinu: - Vitið þið eitthvað um það, strákar, hvernig það gat gerst að Aðalsteinn lokaðist inni í frystiklefanum í gær? Ónei, við vissum ekkert um tildrög þess að Alli bjöllusauður lokaðist inni í frystiklefa með þeim afleiðingum að hann fraus í hel. Og enn þann í dag er er það óleyst gáta hvernig á þessu gat staðið. En við félagarnir, sem næst stóðum þessum undarlega atburði, vitum manna best hvað þegjandi samstaða getur áorkað.

 

 


mbl.is Ekki persónugera viðfangsefnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir sjóræningjar og sómalskir

Þeir eru lítið skárri sómölsku sjóræningjarnir en starfsbræður þeirra á Íslandi - og þó. Íslensku sjóræningjarnir létu sér ekki minna nægja en alla fiskveiðiauðlindina innan íslenskrar landhelgi, meðan þeir sómölsku gera sér að góðu að ræna einum ryðdalli frá Úkraínu.

Ójá, þeir hafa verið stórtenntir burgeisarnir á Íslandi hin síðari ár.


mbl.is Sjóræningjar gefa væntanlega lengri frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íhaldsgeiturnar eiga að halda sér saman fyrst um sinn

flokkurinn,,Þjóðin hefur ekki efni á stjórnmálamönnum sem setja reglur um umhverfismál sem tefja ferli framkvæmda." Eitthvað á þessa leið mæltist íhaldsþingmenninu Jóni Gunnarssyni á Alþingi í dag.

Nú er það svo, að það er öldungis fráleitt að einhverjar íhaldsgeitur séu yfirleitt að hafa hátt, hvað þá í sölum Alþingis, eftir öll þau axasköft sem þær hafa framið síðastliðin 17 ár. Þeim verður að fara að skiljast, að þjóðin vill engin afskipti af þeirra hálfu, eftir það sem á undan er gengið.

Og hvernig er það með ykkur, siðvædda samfylkingarfólk, ætlið þið ekki, hvað líður, að taka á ykkur rögg og keyra íhaldinu, ásamt öllum þess frjálshyggjurósum, beinustu leið í Sorpu? 


mbl.is Allt í fína á Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrifstofusjakalar ASÍ

feiturÞeir verða eflaust gáfulegir skrifstofusjakalarnir hjá ASÍ þegar þeir fara að leiða verkalýðinn útúr ,,óvissuástandinu" sem nú ríkir.

Nú er það svo, að skrifstofusjakalar ASÍ voru í reynd mikilir áhangendur frjálshyggjukapítalismans sem dó fyrir skemmstu úr bráðauppdráttarsýki. Aldrei heyrði ég hina vel launuðu patríarka ASÍ vara nokkurn mann við siðlausri hrægammapólitík sjálfstæðis- og krataflokka heimsins. Öðru nær. Þessum endemum var ljúfara að hamast við að græða öll sín mein á kapítalismanum en að berjast gegn aukinni stéttaskiptingu, óréttlæti og borgaralegri úrkynjun.

Því miður er ASÍ einungis skinin bein og skjátan ein og þar með óbrúklegt baráttutæki fyrir verkafólk og aðra láglaunahópa.

Það besta sem launafólk gæti gert fyrir sjálft sig væri að endurbyggja samtök sín frá grunni, án atbeina Gylfa Arnbjörnssonar, Skúla Thoroddsen og annarra skrifstofusjakala, að maður minnist nú ekki á Stjána í Keflavík og Bjössa á Akureyri. Verkafólk á Íslandi á annað og betra skilið en að hafa slíka blágrána á fóðrum.


mbl.is Aðgerðarstjórn ASÍ vegna efnahagsástandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirrt siðleysi í uppsiglingu

fokk júÉg er þess fullviss, að bögubósunum, sem dettur í hug að lífeyrissjóðirnir fari að reka banka, er ekki sjálfrátt. Og það þarf meira en meðal veruleikafirringu, að ég ekki segi ósvífni, að nefna svona fjarstæðu á nafn.

Það þarf enginn að velkjast í neinum vafa um, að Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmmanna, og lífeysissjóðastómenni af hans kalíberi, hafa ekki minnsta snefil af tilfinningu fyrir þeirri staðreynd að það eru þeir sem greiða í sjóðina eiga þá, - aðrir ekki. Ef lífeyrissjóðirnir eiga að fara reka banka, eða aðra atvinnustarfsemi verður að spyrja eigendurna fyrst í almennri kosningu féagsmanna í viðkomandi lífeyrissjóði. Annað væri siðlaust, jafnvel glæpsamlegt í eðli sínu. Nauðsynlegast af öllu er að frelsa lífeyrissjóðina að fullu og öllu úr klóm braskarahyggju og rotinnar hagsmunagæslu fyrir auðvaldið.

Um bankana er það að segja, að þeir eiga að vera ríkisreknir, vera í eigu fólksins í landinu. Og starfsemi þeirra á að vera sem mest gagnsæ, þannig að spillingarlýðurinn eigi sem minnsta möguleika á að olnboga sig áfram innan bankakerfisins.

En vitfirringum sem ætla að gera tilraun til að þvæla lífeyrissjóðunum inn í bankarekstur ætti að sparka út í hafsauga. Og það strax. 


mbl.is Lífeyrissjóðir skoða Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband