Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2013

Hann er farinn í hundana en henni var hafnað

ingv4.jpgAuminginn svorni kann ekki fótum sínum forráð. En það verður að hafa það. Hverjum og einum er frjálst að skrapa botninn að eigin vild, bæði andlega og líkamlega. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við formann Bændasamtaka Íslands, en hann dó formlega inn í Sjálfstæðisflokkinn í dag. En okkur hinum sem eftir lifa er fjandans sama um svona andlát. Ef menn vilja endilega fara verri í staðinn, þá styðjum við heilshugar þá ákvörðun þeirra og styðjum þá til að þeim verði að ósk sinni.

Hinsvegar hörmum við að frú Ingveldi hafi ekki verið tryggt skárra sæti á framboðslista en raun ber vitni. Það er hneyksli. Eins og hún var líka búin að leggja hart að sér. Í allt haust og fram á veturnætur reyndi hún sitt ýtrasta að lifa skikkanlegu lífi og lagði áherslu á að búa eiginmanni sínum, Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni, fallegt og þægilegt heimili. En á hverjum laugardagsmorgni á þessu tímabili vaknaði hún upp við að vera grúttimbruð, og í sumum tilfellum jafnvel nærbuxnalaus, auk timburmannana, í einhverju framandi húsi.

Og ekki var stuðningur Kolbeins Kolbeinssonar við framboðsbrölt frú Ingveldar af verri endanum. En skjaldan launar kálfur ofeldi - ekki síst þegar í hlut eiga illa artaðar skepnur með annarlegar hvatir. Stuðningur Kolbeins við pólitískan frama frú Ingveldar fólst nefnilega að megninu til í aðdáun hans og ástundun á því sem hann kallar ,,þróttmikilli kynvillu." Lagðist hann á þessum örfáu mánuðum margsinnis með Indriða Handreði líkt og sá armi þrjótur væri kynþokkafull kona. Auk þess segir sagan, að sambýliskona Indriða, Máría Borgargagn, hafi kunnað æfingum þeirra félaga fjarska vel og slegist með í leikinn þegar svo bar undir.

Af fyrrgreindum orsökum rýrnaði álit uppstillingarnefndar flokksins á frú Ingveldi til allnokkurra muna og því fór sem fór. Því stjórnmálaflokkur, vandur að virðingu sinni, vill ekki undir neinum kringumstæðum flíka bersyndugu fólki á framboðslistum sínum ef lestir þess eru ekki þeim mun betur umluktir leynd og þöggun.
mbl.is Hættir sem formaður Bændasamtakanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Máría Borgargagn

ing13_1187373.jpgOkkur er öllum andskotanssama þótt þeir drýgi nautahakkið með smá slettu af hrossaketi við og við. Enn betra er að hræra hvalketshakki saman við nautagromsið, eins og í gamla daga, ef elda skal ætan hamborgara.

En víkjum að öðru:

Um síðustu helgi, árla morguns, veltist Máría Borgargan fram úr rúmi sínu og skall með nefið í gólfið. Um kvöldið var hún áberandi rauðnefjuð, krumpuð undir augunum og venju fremur vergjörn. Á knæpunni Svarti sauðurinn í miðborg Reykjavíkur byrjaði hún á því að hafa með veitingamminum inni á karlaklósettinu. Þegar það verk var afstaðið var mætti Máría Borgargagn Kolbeini kunningja sínum utan við klósettdyrnar.

Og þar sem Máríu Borgargagni og Kolbeini er vel til vina, smugu þau eins og hreysikettir inná karlasalernið og höðu þar ástarlífsmök og viðhöfðu tiltektir sem fáir myndu samþykkja nema geðsjúkir menn og langdrukknir fylliraftar. Síðar viðurkenndi Kolbeinn, að honum hefði hlaupið kapp í kynn við verknaðinn þegar hann áttaði sig á rauðu og bólgnu nefi Borgargagnsins. Eins og það væri honum einhver afsökun.

Fréttist nú ekki meir af Máríu og Kolbeini, eftir að þau yfirgáfu veitngarhúsið Svarti sauðurinn, fyrr en undir Range Rover bifreið Kolbeins og frú Ingveldar, en bifreiðin sú var vistuð í bílskúr þeirra hjóna. Nú vildi svo illa til, að Máría Borgargagn sparn við fæti í leiknum og festi hann svo illa milli drifskafts og einhvers annars járns að hún gat engu til þokar, varð það sem kallað er ,,blýföst." Hún bað Kolbein hjálpa sér, en hann var þá orðinn svo hæ-skæ að hann hringdi í föður sinn, gamla Kolbein Kolbeinsson heildsala og fjáraflamann.

Þegar gamli Kolbeinn mætti í bílskúrinn og sá hverskyns var, reiddi hann staf sin og lúbarði með honum Kolbein yngri með bölsóti og styggjandi klámmælgi. Svo sókti hann frú Ingveldi.

Frú Ingveldur var í fasta svefni þegar tengdafaðir hennar krækti með staf sínum í blessað klofið á henni og bað hana lengstra orða að koma sér á fætur og gæta að hvað fram færi í bílskúrnum.

Frú Ingveldur spratt upp og hljóp á nærhaldinu einu fata útí bílskúr, en gaf sér þó tima til að slá tengdaföður sinn bylmingshöggi utanundir um leið og hún þaut fram hjá honum.

Í bílskúrnum blasti við ófögur sjón: Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri kraup kviknakinn við hlið Range Roversins og var að basla við að toga eitthvað nakið undan honum. Frú Ingveldi varð fyrst fyrir að kasta Kolbeini, eins og hann var á sig kominn, út í horn og henda steðja á eftir honum. Því næst skreið hún sjálf undir bílinn og hóf að bjarga hinni bágstöddu, sem þar lét fyrir berast. Ekki er að orðlengja, að frú Ingveldur sleit Borgargagnið laust með snörpum rykk og dró hina slösuðu konu fram á gólf.

- Nú, það er þú, helvítis froðuláfan þín, argaði frú Ingveldur þegar hún bar kennsl á mannveruna sem hún hafði dregið undan bifreiðinni. - Mér er algjörlega um megna að skilja hvað fram fer dags daglega í andskotans rassborunni á þér, hélt frú Ingveldur áfram og þrýsti þéttingsfast með hægri fæti ofaná nef Borgargagnsins, sem lá blásandi á gólfinu. - Það er best þú fáir það sem þú átt skilið brókarsóttarrollan þín, sagði frú Ingveldur ákveðinni röddu og dró Máríu Borgargagn eins og dautt smáhveli inní hús. Og frú Ingveldur var ekki að tvítóla með eitt né neitt, heldur veitti vinkonu sinni þá hjálp í viðlögum, sem allar konur af sama kalíberi og Máría Borgargagn þrá svo innilega, en Kolbeinn Kolbeinnsson skrifstofustjóri og Kolbeinn Kolbeinsson horfðu dolfallnir á aðfarirnar með lamaða kjálka og lafandi tungu og struku annað slagið blíðlega um hreðjar sér.
mbl.is Engar tölur um innflutta borgara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurður vinur frú Ingveldar og Kolbeins.

ingv12_1187076.jpgAllir sem eitthvað þekkja til alminnilegra útrásarvíkinga, vita að Sigurður Einarsson er mikill heimilisvinur frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra. Einkum eru þeir Sigurður og Kolbeinn nánir, enda báðir góðir framsóknarmenn.

En burtséð frá vinskap Sigurðar Einarssonar og þeirra hjóna, Kolbeins og frú Ingveldar, þá hefur verið furðu hljótt um þau sæmdarhjónin að undanförnu.

En ekki er sem sýnist.

Um miðjan september, síðast liðinn, fóru frú Ingveldur og Kolbeinn í heilsubótareisu til Flórída, en þar eiga þau hús með öllum búnaði. Á leiðinni vestur um haf gerðust þau flugdólgar af sverustu sort. Skemmtunin hófst á því að þau slógust dálítið og viðhöfðu ljótan munnsöfnuð í hvors annars garð. En allt í einu reis Kolbeinn uppúr sæti sínu og mé viðstöðulaust framan í konuna í næsta sæti fyrir framan, en hún var svo óforsjál að hafa beint sjónum sínum að viðureign sæmdarhjónanna.
Eins og við mátti búast, varð fjandinn laus: Eiginmaður hinnar ólánssömu konu rauk upp eins og naðra og ætlaði að hremma Kolbein og veita honum ráðningu, en frú Ingveldur varð fyrri til og rotaði manninn strax með einu stórkostlegu höggi, og var maðurinn þar með úr sögunni. Nú þurstu að þrjár fílelfdar flugfreyjur og einn flugþjónn og ætluðu að kveða frú Ingveldi og Kolbein niður með snöggu áhlaupi. Ekki vildi betur til en svo, að hjónin höfðu flugfreyjurnar og flugþjóninn undir og misþyrmdu þeim á einkar svínslegan og dónalegan hátt; til dæmis tók frú Ingveldur flugþjóninn slíku fauta hreðjataki að hann féll í  ómeginn og komst ekki til meðvitundar fyrr en á leiðarenda.
Þegar frú Ingveldur og Kolbeinn höfðu hrundið árásinni með glæsibrag þókti þeim staða sín allgóð og hótuðu nú öðrum farþegum og áhöfn vélarinnar dauða og djöfli. Því til áréttingar mé Kolbeinn enn og nú yfir hjón nokkur og dóttur þeirra, sem sátu skammt þaðan frá er Kolbeinn og frú Ingveldur höfðu bækistöð sína.

Þegar flugvélin lenti á Flórída, tók sveit lögreglumanna og hermanna á móti frú Ingveldi og Kolbeini. Þau brugðust til varnar, en voru yfirbuguð þrátt fyrir harðvítuga mótspyrnu og sett í fangelsi innan um fjölskrúðugan glæpalýð.

Það sem vekur samt mesta undun varðandi þetta mál, er að hvergi hefur verið á það minnst í fjölmiðlum; kringum það hefur verið hlaðið tólfföldum þagnarmúr - því Kolbeinn og frú Ingveldur teljast þrátt fyrir allt til stéttar bestu borgara á Íslandi.
mbl.is Sigurður samdi við Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband