Leita í fréttum mbl.is

Íslenskur borgari lenti í hinu sama í Reykjavík

kol1Fjarri fer því að menn þurfi að fara alla leið til Tailands til að lenda hremmingum af sama tagi og mannleysan sem taldi sér trú um í hita leiksins að hann væri þriggjakvenna maki. Að minnsta kosti þurfti Kolbeinn vinur okkar Kolbeinsson annað en að bregða sér niður í miðbæ Reykjavíkur til að þefa uppi kvenfólk sem í engu eru eftirbátar þeirra tailensku sem svírtu landa okka þar ytra.

Þannig var mál með vexti, að Kolbeinn vinur okkar hitti fyrir fám mánuðum síðan þrjár íslenskar kérlíngar á alræmdri knæpu í höfuðborg Íslands. Umsvifalaust leiddu þessar vondu konur hann heim til einnar þeirrar þar sem þær véluðu ofaní hann eiturlyf, misbuðu blygðunarkennd hans mjög gróflega og rændu hann síðan öllum eigum hans, að meðtöldum öllum fötunum sem hann hafði verið í. Þegar Kolbeinn vaknaði aftur eftir eitraðan svef voru gálurnar á bak og burt, nánar tiltekið komnar á vertshús, með reiðufé hans og greiðslukort, til að éta og drekka sér til heilsubótar. Því miður fann Kolbeinn ekkert annað en kvenmannsföt í íbúðinni þar sem hann var strandaglópur. En þegar hann hafði drukkið í sig fulla vodkaflösku, sem hann var svo heppinn að finna bak við sófa í stofunni, klæddi hann sig í himinbláa buxnadragt af frúnni sem átti heimilið. Reyndar var dragtin nokkrum númerum of lítil á Kolbein, en honum var fjandans sama um það, þetta voru þó föt, fjandinn hafi það. Og þannig til fara pantaði Kolbeinn sér leigubíl og lét aka sér heim til frú Ingveldar, eiginkonu sinnar, sem tók á móti honum með sínum bráðsvæfandi hnúum og hnefum. 


mbl.is Kvensamur Íslendingur rændur í Taílandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Já víða þarf að varast kvenfólkið.Ekki síst ef þær sjá glitta í nokkra aura.

En vesalings Kolbeinn. Var hann illa leikinn af sinni heittelskuðu???

Sveinn Elías Hansson, 17.1.2010 kl. 13:46

2 Smámynd: Sigrún Óskars

Á maður nokkuð að vorkenna Kolbeini??

Ég er samt ekki að taka upp hanskan fyrir þessar konur - þetta er auðvitað glæpur að gefa öðrum svefnlyf og ræna það síðan - er ófyrirgefanlegt !!

Sigrún Óskars, 17.1.2010 kl. 14:00

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ja, Kolbeinn sagði sjálfur, að eiginkonan hefði rifið utanaf honum dragtina í tveimur handtökum og barið hann í klessu. Svo hafði hún uppá konunni sem átti dragtina og veitti henni verðskuldaða ráðningu.

Jóhannes Ragnarsson, 17.1.2010 kl. 14:03

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Kolbeinn á alla mína samúð, Sigrún, hann er sem maður segir: leiksoppur örlaganna í viðskiptum sínum við kvenþjóðina.

Að byrla fólki svefneitur, nauðga því síðan og ræna er glæpur sem slagar hátt í morð.

Jóhannes Ragnarsson, 17.1.2010 kl. 14:09

5 Smámynd: Agla

Frábært og tengist ekki, að ég best sé, Icesave eða neinu öðru af þessu vanalega sameiginlega ólánsbasli okkar!ra.

Þakka þér innilega fyrir, Jóhannes. Alltaf gaman að geta hlegið að óförum annara!

Agla, 17.1.2010 kl. 15:28

6 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ef  Kolbeinn væri kona sem hefði hitt þrjá karlmenn litið málið talsvert öðruvísi út

Víðir Benediktsson, 17.1.2010 kl. 17:08

7 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

he he hörmung er að heyra ? Fekk hann ekkert fyrir aurana ?

 Er hann nokkuð í handboltanum ???

Erla Magna Alexandersdóttir, 17.1.2010 kl. 19:09

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég veit ekki til að hann hafi fengið nokkurn skapaðann hlut fyrir aurana, enda stálu kerlingarnar þeim af honum og keyptu sér steik og brennda drykki fyrir þá. Dragtin, sem Kolbeinn fól nekt sína með til að komast heim, var það eina sem hann hafði uppúr krafsinu af veraldlegum verðmætum. 

Jóhannes Ragnarsson, 17.1.2010 kl. 19:28

9 Smámynd: Huldukonan

hann fékk þó vodkaflösku ;)

Huldukonan, 17.1.2010 kl. 21:53

10 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, alveg rétt, Huldukona, ég gleymdi vodkaflöskunni. Hún skrifast að sjálfsögðu tekjumegin hjá Kolbeini.

Jóhannes Ragnarsson, 17.1.2010 kl. 22:01

11 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hvernig borgaði Kolbeinn svo fyrir taxann - kanski með glerinu undan vodkanu en dugað skammt

Jón Snæbjörnsson, 18.1.2010 kl. 11:26

12 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Jóhannes, veistu Kolbeinn hefur leitað álits hjá Femínista félaginu um það hvort viðbrögð frú Ingveldar hafi verið  við hæfi?

Magnús Sigurðsson, 18.1.2010 kl. 12:20

13 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ef ég hef skilið rétt, þá stökkti frú Ingveldur leigubílstjóranum á flótta með óbótaskömmum og hótunum.

Hræddur er ég um að Kolbeinn hefði lítið uppúr að leita á náðir Fémínístafélagsins því að í Fémínístafélaginu á frú Ingveldur fjölmarga aðdáendur og stórvini. 

Jóhannes Ragnarsson, 18.1.2010 kl. 20:41

14 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

hennar helsti aðdáandi er Sóley Tomm Filibomm bomm bomm

Sveinn Elías Hansson, 18.1.2010 kl. 21:23

15 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það þarf enginn að ganga að því gruflandi, Sveinn, enda eru Fílíromm-bomm-bomm og frú Ingveldur náfrænkur.

Jóhannes Ragnarsson, 18.1.2010 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband