Leita í fréttum mbl.is

Á hvaða ferðalagi er Læmingjabandalagið í VG?

flokkseigendur_786424.jpgVegna viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar til AGS, sem er til umfjöllunar í grein mbl.is, og viðbrögð Steingríms J. við fyrirspurn um hana á Alþingi, læt ég hér fylgja athyglisverða grein eftir Ara Matthíasson, sem birt var á Smugunni, um sama mál, ásamt athugasemdum lesenda:   

,,Ef einhvern lærdóm má draga af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, fyrir utan þá staðreynd að sú þjóð sem afhendir þjófum aðgang að fjárhirslum þurfi ekki að láta koma sér á óvart að verða rænd, er að oddvitaeinræði er vísasta leið til glötunar. Þetta mátti sjá í valdaátökum oddvita ríkisstjórnar Geirs Haarde við fyrri oddvita sem urðu til þess að annað hvort voru engar ákvarðanir teknar eða þá þær sem urðu til þess að hámarka tjónið. Þannig var upplýsingum kerfisbundið haldið frá almenningi eða ósannindum haldið að honum og þeir sem gagnrýndu stefnuna voru sagðir illkvittnir ídjótar, en um þetta allt má lesa í skýrslunni góðu þar sem RNA hefur sent  fyrrverandi oddvitum ríkisstjórnar bréf um afglöp þeirra í starfi sem oddvitarnir hafa aftur svarað með gamalkunnum afsökunum og fyrirslætti: Ég bar ekki ábyrgð, ég vissi ekki,  ég skildi ekki.

Þeir sem þá stjórnuðu skildu ekki hversu mikið frelsi er í því fólgið að hafa almenning upplýstan um hinar erfiðu aðstæður og að kallaðir séu þannig til allir sem nenna að hafa skoðun á málum auk þeirra sérfræðinga í hverjum málaflokki sem okkur hefur auðnast að koma upp. Þá verða teknar upplýstar ákvarðanir og lýðræðislegar sem þjóðin ber ábyrgð á.

Ríkisstjórn Íslands, sú sem nú situr, stendur frammi fyrir mörgum erfiðum ákvörðunum við endurskipulagningu samfélagsins.  Hún hefur t.d. á lofsverðan hátt, reyndar fyrir baráttu nokkurra  þingmanna VG sem vegna andófs síns verið kallaðir kettir til aðgreiningar frá læmingjabandalaginu, ákveðið að birta allar upplýsingar um hið illræmda Icesave-mál á vefsíðunni Ísland.is, en áður en andófsmennirnir skelltu hurðum svo stjórnarráðið nötraði stóð einungis til að menn fengju að kíkja á gögnin undir eftirliti í sérstöku herbergi.

Sem sagt: Gott.

En það er allt annað má sem mig langar að benda á hér. Nú hefur verið afgreidd önnur endurskoðun AGS og  á heimasíðu sjóðsins má lesa viljayfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands um aðgerðir.  Þar kemur fram að ríkisstjórnin mun ekki styðja Íbúðalánasjóð til að mæta afskriftum skulda. Yfirlýsingin segir jafnframt að ekki standi til að framlengja frestun á nauðungarsölu frekar en nú er orðið og að þau úrræði sem skuldugum standa  þegar til boða verði látin duga.

Hér eru sem sagt stórpólitísk tíðindi á ferðinni og ákvarðanir sem tilkynntar eru án þess, svo séð verði, að fram fari upplýst umræða. Við erum að fá staðfestingu á því að þau úrræði sem þegar voru fram komin fyrir kosningar séu sú skjaldborg um heimilin sem boðið verður upp á þrátt fyrir að fjöldi fjölskyldna sem teljast til öreiga hafi meira en tvöfaldast frá árinu 2008.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um greiðslu- og skuldavanda heimilanna segir m.a.:

  • Skuldastaða heimila, greiðslu- og framfærslugeta verði til stöðugs endurmats sem og nauðsynlegar aðgerðir til að koma til móts við heimili í vanda.
  • Heildarmat á þörf fyrir frekari aðgerðir og tillögur í því efni verði unnar í kjölfar úttektar Seðlabanka Íslands á skuldum og tekjum heimila sem áætlað er að liggi fyrir í síðari hluta maímánaðar. Ákvarðanir um frekari aðgerðir og tillögur verði teknar í samráði við aðila vinnumarkaðarins.

Það umboð sem ríkisstjórnin fékk frá flokksráði byggir á þessari stefnuyfirlýsingu. Ef hverfa skal á svo veigamikinn hátt frá henni þannig að ekki verði gripið til frekari aðgerða tilhanda skuldsettum verður að koma til upplýstrar umræðu um þau mál. Vel getur verið að niðurstaðan yrði hin sama, en munurinn væri sá að hún væri okkar allra að vandlega ígrunduðu máli.

Eigum við að ræða þetta eitthvað?"

Til bakaPrenta grein Senda grein Facebook

Athugasemdir (14)

  1. marat skrifar:

    Þetta er nú að verða aumur flokkur.

    23.4.2010, kl. 9:45 | #

  2. Ólöf skrifar:


    Oddvitaeinræði segir þú: Steingrímur J.skrifaði einn og sjálfur undir samning, fór með samning inn í Alþingi sem hans eigin þingflokkur fékk ekki að sjá, vitandi að hann hefði ekki meirihluta og krafði svo alla um að hósta ekki á gjörðina því hann væri heilagur sjálfur.

    Öll mál eru afgreidd milli SJS og Jóhönnu.

    Er VG að líta í eigin barm?

    23.4.2010, kl. 11:04 | #

  3. Doddi D skrifar:

    Þetta er góð grein og nú þurfa allir alvöru lýðræðissinnar að þjappa sér saman. Berjast gegn ofríki og einræðistilburðum.

    23.4.2010, kl. 11:17 | #

  4. Kristján Hreinsson skrifar:

    Frábær grein Ari.
    Mikið væri nú yndislegt ef einhver ráðherra gæti sýnt okkur þá döngun að svara því sem þú ert hér að pæla. Staðan er kannski ekki beint í anda þess sem VG lofar ef ríkisstjórnin ætlar að framfylgja því sem þú nefnir: ,,En það er allt annað má sem mig langar að benda á hér. Nú hefur verið afgreidd önnur endurskoðun AGS og á heimasíðu sjóðsins má lesa viljayfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands um aðgerðir. Þar kemur fram að ríkisstjórnin mun ekki styðja Íbúðalánasjóð til að mæta afskriftum skulda.\"
    Hvað er eiginlega að gerast á stjórnarheimilinu? Flýtur VG að feigðarósi?

    23.4.2010, kl. 15:06 | #

  5. Haraldur Ingi Þorleifsson skrifar:

    Það er merkilegt að okkar góði flokkur hafi tekið upp tvíræðisvinnubrögð gömlu stjórnanna sem við gagnrýndum svo harkalega.

    Hvernig getur það verið að við séum svo samdauna ástandinu að það þyki bara sjálfsagt mál að einn maður geti skrifað undir samkomulag við AGS án nokkurrar umræðu? Samkomulag sem getur haft mjög svo víðtækar afleiðingar í för með sér þegar kemur að vanda heimilanna.

    Það er tvennt í þessu sem stenst enga skoðun. Í fyrsta lagi vinnubrögðin, þ.e.a.s. að það sé alltaf þannig að okkur sé kynntur gerður hlutur án allrar umræðu. Hitt er svo náttúrulega samkomulagið sjálft sem virðist fela í sér algjöran viðsnúning frá svokallaðri skjaldborg heimilanna.

    AGS virðist hafa ákveðið að þessa skjaldborg mætti ekki reisa. Steingrímur virðist síðan hafa samþykkt niðurrifið án þess að ræða við ríkisstjórn, þingflokk, alþingi eða þjóðina sem hann á víst að vera að vinna fyrir.

    Ég hélt að flokkurinn minn væri betri.

    23.4.2010, kl. 15:26 | #

  6. TH skrifar:

    Spurt er: Flýtur VG að feigðarósi? Svar: Nei, þeir sigla þangað hraðbyri með utanborðsmótor.

    23.4.2010, kl. 15:58 | #

  7. Pétur Örn Björnsson skrifar:

    Frábær grein hjá þér Ari.

    Og ég spyr í framhaldinu í forundran:
    Hvað er Vinstri?
    Hvað er grænt?

    Í svari Steingríms og læmingjabandalags hans er bara kerfislægur ná-kuldi.

    23.4.2010, kl. 18:37 | #

  8. Gunnar Skúli Ármannsson skrifar:

    Sæll Ari, mjög góð grein.

    Ég er sammála þér að skuldugir einstaklingar eru á leið út í kuldann. Að sjálfsögðu hefði átt að ræða þetta á opinberum vettvangi. Það sem er verst að enginn virðist ætla að vara fólk við og reyna að draga upp mynd af því sem muni gerast.

    Ein lausn er að allir lausagangskettir á Alþingi sameinist um bætta starfshætti og stefnur.

    23.4.2010, kl. 20:09 | #

  9. Jóhannes Ragnarsson, Ólafsvík skrifar:

    Athyglisverð og upplýsandi grein, Ari.

    Það er ekki nema von að fólk staldri við eftir lestur slíkrar greinar og spyrji sig á hvaða ferðalagi VG sé eiginlega. Ég er nefnilega nokkuð viss um, að þegar Vinstrihreyfingin grænt framboð var stofnuð, hafi fáum dottið í hug að þeir ættu eftir að standa frammi fyrir vinnubrögðum af hálfu formanns flokksins í líkingu við það sem fram kemur í greina Ara. Það mætti ætla, að formaðurinn og læmingjabandalag hans, vinni að því öllum árum að ganga svo fram af flokksmönnum og kjósendum VG, að þeir sjái sér ekki annað fært en að yfirgefa samkæmið og skilja flokkseigendafélag Svavars, Álfheiðar og Steingríms eitt eftir í klónum á Jóhönnu, Össuri og Steinunni Valdísi.

    Það verður fróðlegt að fylgjast með hvað Steingrímur, Jóhanna og Gylfi ,,fagráðherra\" hyggjast fyrir með fólkið sem á yfir höfði sér að verða borið út á Guð og gaddinn með haustinu. Það mun varla vefjast fyrir þessum stórmennum ákveða örlög þess á lokuðum formannafundum þegar þar að kemur, rétt eins og þau skvetta frágengnum og undirrituðum samningi við ASG eins og keytu úr hlandkoppi framan í þjóðina, án þess svo mikið að leggja hann fyrir þingflokka sína áður, hvað þá aðra.

    23.4.2010, kl. 22:09 | #

  10. Ágúst Valves Jóhannesson skrifar:

    Það er algjörlega óviðunandi að ríkisstjórn sem kennir sig við hið ágæta vinstri dirfist til að gefa leyfi á það að skuldsettar fjölskyldur séu settar út á gaddinn og möguleikinn á leiðréttingu skulda og afskriftum heimila er útilokaður.

    Vinstri? Hvað er vinstri? Sá einstaklingur sem kennir sig við vinstri hugsjónir vill jöfnuð í samfélagi, vilja réttlæti fyrir fátæka og almennilegt velferðarkerfi svo eitthvað sé nefnt. Sú staðreynd að AGS verði hér áfram brýtur á þessum þremur dæmum. Er það vinstri? Nei.

    Ég ætla hér með að biðja ríkisstjórnina okkar að hætta að kalla sig vinstri sinnaða því með því er hún bæði að segja ósatt og skaða vinstrið.

    24.4.2010, kl. 1:12 | #

  11. Jóhannes Ragnarsson, Ólafsvík skrifar:

    Að gefnu tilefni biðst ég velvirðingar á að hafa láðst að skrá nafnið mitt við athugasemd sem ég sendi inn í gærkvöldi við grein Ara Matthísassonar hér að ofan. Umrædd athugasemd er númer 9.

    Jóhannes Ragnarsson.

    24.4.2010, kl. 3:34 | #

  12. Jón Torfason skrifar:

    Er ekki einfaldast að taka bara upp gamla nafnið á flokknum, Alþýðubandalagið. Það mætti þá við núverandi aðstæður tala um Alþýðubandalagið og óháða, eins og á árunum 1995-1999. Stefna flokksforystunnar er vægast sagt sveigjanleg og tekur ekki mið af málefnaskránni.

    24.4.2010, kl. 9:34 | #

  13. Pétur Örn Björnsson skrifar:

    Alþýðubandalagið/Læmingjabandalagið. Hvort heldur er, þá er það staðreynd sem Ágúst Valves bendir hér á, að þetta bandalag er að koma óorði á vinstri-stefnu og alla þá sem til vinstri hneigjast og hafa hneigst.

    Vinni Sjálfstæðisflokkurinn einhvern tíma aftur stóra sigra í kosningum, þá mun sá stóri sigur vinnast vegna þess, að fátt er venjulegu fólki verr við,

    en það sem Læmingjabandalagið hefur í þessari ríkisstjórn gert sig sekt um, sem er skinhelgi, loddaraskapur og kosningasvik,

    framið af aumingjaskap og jafnvel illgirni Læmingja bandalagsins.

    24.4.2010, kl. 15:59 | #

  14. ES skrifar:

    http://www.youtube.com/watch?v\=EyulGXF0_wQ

    25.4.2010, kl. 14:49 | #


mbl.is Nauðungaruppboðum ekki frestað frekar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hamarinn

Þetta er allt of langt til þess að ég nenni að lesa það.

Hamarinn, 28.4.2010 kl. 20:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband