Leita í fréttum mbl.is

Sauðnaut eru þetta og fémínísk útrýming á sílamávi

mavurMikil þó endemis sauðnaut geta hönnubirnu-krakkarnir í XD Reykjavík og frú Sóley Tomm fílí-romm-bomm-bomm verið. Gera þau sér ekki enn grein fyrir að meirihlutinn í hreppsnefnd Reykjavíkur ætlar ekki að gera neina fjárhagáætlun, hvorki fyrir næsta ár né þau næstu þar á eftir. Það er nefnilega úr móð að gera fjárhagsáætlanir, meðal annars hafa færustu hagfræðingar fellt þann úrskurð að fjáhagsáætlanir séu algjörlega gagnslausar, í mesta lagi til stórskaða, og öllum til raunar og leiðinda sem að koma gerð slíkrar fíflsku. 

Nú hafa gnarristarnir og pissudúkkurnar frá Samfylkingunni sem sé afráðið að stampa ölllum tilfæringum í átt að fjárhagáætlunum út þetta kjörtímabil og jafnvel lengur ef Guð lofar. Þetta eru góð tíðindi fyrir Reykvíkinga enda er mikill sparnaður fólginn í að gera ekki fjáhagsáætlun.

Úr því að engin fjárhagsáætlun verður gerð á næstunni í Reykjavík verða hönnubirnu-krakkarnir og frú Fílí-romm-bomm-bomm að finna sér eitthvað annað til að fjasa útaf, til dæmir gætu þau efnt til rifrildis við Gnarrana um fémínískar áherslur varðandi útrýmingu á sílamávi í miðborginni.  


mbl.is Engir fundir vegna fjárhagsáætlunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: einhvur

Við lifum svo sannarlega í leikhúsi fáránleikans.

Og þá kannski vel við hæfi að trúður leiki aðalhlutverkið.

Á meðan sitjum við almenna launafólkið - útsvars- og fasteignagjaldagreiðendur –og bíðum milli vonar og ótta eftir reikningnum fyrir herlegheitin.

Andskotinn!

einhvur, 12.8.2010 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband