Leita í fréttum mbl.is

Hagfræddur falsspámaður öskrar sinn falsspámannlega áróður

pre1Þeir hjá LÍÚ gera mikið með það sem Ragnar Árnason segir. Enda héldu þeir ekki vatni þegar téður Ragnar kunngerði þá merku kenningu sína, skömmu fyrir hrun, að nú væri svo vel komið efnahag þjóðarinnar, að Íslendingar gætu hæglega látið eftir sér að veiða ekki einn einasta þorsk í að minnsta kosti þrjú ár. Og var á Ragnari spámanni að skilja að eftir svo góða friðun yrði sjórinn umhverfis landið einn iðandi þorskökkur frá yfirborði og niður á botn. Nú, LÍÚ legátar gerðu, sem vonlegt var, góðan róm að kenningu spámannsins, en tímdu ekki að hætta þorskveiðum í þrjú ár. Skömmu eftir þessa snjöllu hugljómun hagfræðingsins Ragnars Árnasonar hrundi efnahagskerfi landsins.

Og nú, tæpum þremur árum eftir gjaldþrot frjálshyggjuóra Ragnar Árnasonar og Hannesar Hólmsteins, er svo komið að stjórnvöld eru staðráðin í að afhrópa þá tegund fiskveiðistjórnunarkerfis, sem hér hefur ríkt í alltof langan tíma, og Ragnar hagspámaður hefur um árabil mært og tilbeðið af allri sálu sinni, öllum huga sínum og öllu hjarta sínu.

Annar spámaður, sem uppi var fyrir miðjarðarhafsbotum fyrir tvöþúsund árum, bað mannkynið lengstra orða að vara sig á falsspámönnum. Það er ljóst að núverandi ríkisstjórn hefur, að loknum guðspjallalestri, ákveðið að taka orð litla sósíalistans frá Nasaret trúanleg og afráðið að sparka falsspáfuglinum Ragnari Árnasini og falskenningum hans fyrir borð. Og er það vel.

Hinsvegar vefst fyrir mér, og eflaust mörgum fleiri, hvernig í ósköpunum það má vera að ,,spámaðurinn" Ragnar Árnason skuli, og það á sjálfann Sjómannadaginn, vera dreginn á stélinu uppí ræðupúlt á Grandagarði til að öskra sinn falsspámannlega áróður yfir saklaust fólk sem þangað var komið til að njóta hátíðardags sjómanna. Þessháttar guðleg LÍÚ-ráðstöfun er hvort tveggja í senn: frámunalega heimskuleg og ósmekkleg.

Ég vona innilega að tilheyrendur hagfræðispámannsins hafi tekið hann sér til handagagns, sér til hátíarbrigða, og fleygt honum í höfnina. 


mbl.is Atlaga að sjávarútvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Grétar Sveinsson

þessi prófessor se er á launum hjá okkur alþýðunni í HÍ er öfga talsmaður LÍÚ eins og hannes hólmsteinn íhaldsins. við skulum muna útkomu frjálshyggu hannesar og taka eftir heimsenda spá ragnars. hann er búinn að reikna fiskinn við ísland niður í 0 fisk jafnvel þó kvótin verði aukinn um þúsundir tonna . geta prófessorar bullað svona mikið, hvaða anskotans mentunarstig er þetta ég legg til að líú borgi honum laun og hann veriði tekinn af launaskrá alþýðunnar nú þegar þá geta þeir félagar bakað sína drullukökur  mér og mínum að meinalausu utan háskóla íslands

björn grétar sveinsson (IP-tala skráð) 5.6.2011 kl. 16:16

Björn Grétar Sveinsson, 5.6.2011 kl. 16:37

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.6.2011 kl. 17:15

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Fer það eitthvað í taugarnar á bloggara að úr ræðustólum landsins sé ekki fluttur einhliða áróður úr smiðju ríkisstjórnarinnar?

Geir Ágústsson, 5.6.2011 kl. 17:35

4 Smámynd: Björn Grétar Sveinsson

má ég minna á að ég er ekki að tala um ríkistjórnina helduer svara þeirri gengdarlausu áróðursmaskínu sem nú malar ú öllum ræðustólum landins og líú og þú gangast fyrir ætlar þú fyrir hönd líu kanski að halda því fram að það kerfi sem við búum við í dag og það kerfi sem verið er að afskrifa þúsundir miljóna vegna skuldasöfnunar sé í góðu lagi og hafræðilega til fyrirmindar einnig að önnur og þriðja kynslóð  og jafnvel afnotahafar séu að færa tugir miljarða á miljarða ofan úr kerfinu jafnvel til london eða tortola ætlar þú að verja þetta sem gott kerfi ef svo er þá er trú þín mikil og blind

Björn Grétar Sveinsson, 5.6.2011 kl. 17:55

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég veit ekki, Geir, hvort það fer í taugarnar á mér að Ragnar Árnason sé fenginn til að halda ræðu á hátíðardegi sjómanna. En það er að mínu mati hrein svívirða við sjómenn, fiskverkafólk og aðra alþýðu manna að slíkur falsspámaður og grillufangari sé látinn grenja sínum ósvífna boðskap yfir fólk á sjómannadaginn 2011, í boði sjómannadagsráðsins í Reykjavík.

Jóhannes Ragnarsson, 5.6.2011 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband