Leita í fréttum mbl.is

Drottinn blessi varðsveit stjörnusýslumannsins

polÞað ætla ég að vona innilega til Drotins Guðs Almáttugs, að pissupólísar á borð við þann rússneska Alexei Isakov fyrirfinnist ekki í röðum íslenskra lögreglumanna.

Einkum og sér í lagi bið ég almættið um að slíkur hlandprestur leynist ekki í hinni fræknu varðsveit stjörnusýslumannsins Stones á Selfossi, því nóg hefur sá merki störnusýslumaður á sinni könnu í andstreymi lífsins að hann þurfi ekki að kljást við lögregluþjóna sem gera sér að leik að míga berrassaðir á gólf embættisins.

Nú minnsit ég allt í einu Hálfdáns lögregluþjóns sem pissaði ævilega inná gólf fangaklefanna á sinni stöð ef fangar voru þar fyrir. Og ef fangi dirfðist að finna að þessu framtaki Hálfdáns, læsti hann krumlu sinni fumlaust í fangann og velti honum eins og bandhnykkli uppúr pollinum á gólfinu og hótaði honum í leiðinni með mun róttækari refsingu ef hann héldi ekki kjaftinum á sér saman.


mbl.is „Lögreglumaðurinn pissandi" er hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband