Leita í fréttum mbl.is

Landsfundartillögur frú Ingveldar

exd-ghrein-tverks_926085711.gifAð sjálfsögðu vill Sjálfstæðisflokkurinn leggja jöfnunarsjóð sveitarfélaga niður, því Sjálfstæðisflokkurinn er án skilyrða ójafnaðarflokkur og liðsmenn hans ójafnaðarmenn að öllu leyti. Þess vegna kemur þessi tillaga engum á óvart.

Þá hefur hin þróttmikla sjálfstæðiskona og háttvirtur landsfundarfulltrúi, frú Ingveldur, samið nokkrar ágætar þjóðþrifatillögur, sem hún mun leggja fyrir landsfund flokksins um næstu helgi. Þar bera hæst tillögur hennar um að heilbrigðis- og menntakerfið verði einkavætt undir eins og Sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur í ríkisstjórn. Þá ætlar frú Ingveldur að leggja til, að atvinnuleysistryggingasjóður verði lagður niður, því hún telur að ríkið eigi ekki að moka dýrmætum péníngum í atvinnulausa aumingja, sem engum öðrum geti um kennt að vera atvinnulausir nema sjáfum sér. Ennfremur mun frú Ingveldur bera upp tillögu þess efnis, að áfengisgjald ríkisins verði aflagt með öllu, ÁTVR verði lagt niður og matvöruverslunum, og jafnvel herrafataverlunum, verði falið að sjá um alla áfengissölu. En síðast en ekki síst, ætlar frú Ingveldur að leggja til við landsfundinn, að nektardans verði leyfður að nýju og vændi verði lögformleg atvinnugrein og þeir sem þá vinnu stundi fái lögvernduð starfsheitin vændismaður og vændiskona.

Ef ég þekki sjálfstæðismenn rétt, munu þeir samþykkja allar tillögur frú Ingveldar með lófataki, blísti og fótastappi. 


mbl.is Vilja leggja niður Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Það má telja nær örugt af frú Ingveldur slái í gegn á landsfundinum og hljóti að launum sæmdarnafnbótina "Sómi Íslands sverð og skjöldur".

Níels A. Ársælsson., 14.11.2011 kl. 11:10

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já einmitt, ef þeir leggja niður jöfnunarsjóð sveitarfélaga, þá legg ég til að landsbyggðin haldi því fé sem hún aflar.  Málið er nefnilega að landsbyggðin heldur uppi höfuðborginni en ekki öfugt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.11.2011 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband