Leita í fréttum mbl.is

Gráskeggur jólasveinn er ekki neinn smákalli og íslandsmann

kol29.jpgHann er sko ekki neinn smákalli og íslandsmann hann Gylfi gráskeggur (áður rauðbrúnskeggur) fremur en Pétur Þríhross forfaðir hans. Gylfi hefur erft frá Pétri afa sínum í ríkum mæli, að vera nútímavæddur í hugsun, aðhyllast skynsemiskristindóm af þeirri tegun sem kallast sosialist á erlendum málum auk þess að vera einstaklega hyggin, aðgætin og á mála hjá auðvaldinu.

Og nú hefur Gylfu g. Þríhross og hans skynsemiskristnu sósíalistar gert enn einn tímamótasamninginn fyrir ,,hina lægst launuðu", ,,þá sem minnst mega sín", ,,þá sem verst eru settir." Og víst er um það, að hinir lægst launuðu, sem minnst mega sín og verst eru settir, munu fitna samkvæmt venju eftir tímamótasamninga eins og púkafjandar á fjósbitanum í Framsóknarfjósinu.

Það er nú hreint meira meira hvað honum Gylfa tekst alltaf að töfra fram mikið af péníngum í vasa hyskisins sem minnst má sín og verst er sett. Fyrir það skulum við þakka af öllum lífs og sálar kröftum.

En Gylfi gráskeggur Þríhross og litlu þríhrossin sem dingla í halanum á honum, þeir Björn á Akureyri, Kristján í Keflavík og Sigurður í Eflingu, auk hóps annarra rindilmenna og veslínga, eru líka miklir sjakalar, skrifstofusjakalar, með flugbeittar tönnur og tilbúnir að rífa almennt verkafólk á hol ef það er vanþakklátt og rífur kjaft. Það er nefnilega til leiðindafólk, sem hefur enga náttúru fyrir kjarasamningakraftaverkum Gylfa og félaga, en það er auðvitað lið, sem ekkert á annað skilið en að éta það sem úti frýs, en það er sem kunnugt er bæði maðkar og mýs og auk þess mannaskítur og færilýs, en það er alltsaman fullgóður kostur í kjaftinn á grindhoruðum vanmetaskepnum

En við, við sem heyrum til stéttar betri borgara íslenska lýðveldisins hrópum margfalt húrra fyrir Gylfa gráskegg og segjum sem svo, að það sem hann gefur verkalýðnum í skóinn fyrir þessi jól er meir en nóg og gott betur fyrir þennan skrílkynjaða verkalýð. Við betri bogararnir og Gylfi verkalýðsforstjóri viljum nefnilega ekki verðbólgu fremur en skoðannabræður okkar í hinum vestræna heimi (ESB og USA) sem aðhyllast skynsemiskristinn sósíalism á sama hátt og við.
mbl.is Stefnt að undirritun í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jamm. Sorglegt.

Var ekki gervi-Guð-almáttugur falskristninnar líka auglýstur sem "ekta" falskur Gráskeggur (John D. Rockefeller), sem dæmdi saklausa, rænda og svikna, samkvæmt fals-Biblíutúlkunum Kauphallar-Jesú-morðingjanna.

Það er ekki öll vitleysan falskristna eins, hjá vaxtaokurs-prédikurum Páfanna í Djöflagarði.

Það er ekki sopið kálið, þótt í ausuna sé komið.

Hugsið ykkur hvað myndi gerast, ef Hitler gæti sagt okkur hvernig hann var blekktur vegna síns menntaleysis og andlegrar vanheilsu!

Það er aldrei að vita nema kallinn Hitler geti frætt okkur um hvernig aðferðir voru notaðar í den, hjá falkristna Heimsmafíu-Páfavítinu?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.12.2013 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband