Leita í fréttum mbl.is

Stundum verður að gera meira og fleira en gott þykir

dvgrvvm.jpgÞað var viðbúið að starfsmannahópur DV myndi þynnast við djöflaganginn í fjárglæframönnunum og öfgapóltíkusunum undanfarið kringum blaðið. Fjárglæframenn og öfgafullir frjálshyggjuspjátrungar vilja bara góða umfjöllun um sig í fjölmiðlum þar sem hlutur þeirra er umvafinn glimmer og glæsileik. Því miður barst DV, undir stjórn Reynis Trausta, inná vafasama braut uppljóstrana um nafntogaða athafna- og peningamenn og baktjaldamakk og ruddaskap virðulega stjórnmálasnata. Og því fór sem fór.

Ef heldur sem horfir mun strfsmannahópur DV þynnast enn meir, uns starfsmannaþurrð blaðsir við stjórn útgáfufélagsins. Það verður þrifalegur andskoti, ef leiknum lýkur með því að Sigurður lögmenni G., frú Skaftason og Hanna Birna verða að eyða hluta af sínum dýrmæta og merkilega tíma í að skrifa uppbyggjandi fréttir í DV, ásamt auðvitað nýfenginni búrtík þeirra, ritstjóranum, sem þau réðu til starfa í gær af einstakri óeigingirni sinni, mannkærleika og ást á frjálsri fjölmiðlun. Guð gefi að þetta elskulega fólk þurfi ekki að fara standa sjálft í rannsóknarblaðamennsku og fréttaskrifum. En það verður víst stundum að gera meira og fleira en gott þykir þegar frelsið, lýðræðið og orðspor aðalsins er í veði. 
mbl.is Fleiri starfsmenn DV hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Siggi löglegi ætti ekki að pissa í skóinn sinn, því lögmannapiss á það til að kólna rétt eins og annað piss.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.9.2014 kl. 20:54

2 Smámynd: Jörundur Þórðarson

Mitt mat er að blaðamenn DV þrífist best á að ala á öfund og sundurþykkju. Fréttir og frásagnir af ríkisstjórn yfirleitt skrumskældar og teknar úr samhengi. Þurfum við fólk til að mata okkur á lygi og ósannindum? Þessir blaðamenn hafa ekki sagt frá hroðalegum mistökum síðustu ríkisstjórnar sem kosta okkur hundruð milljarða. Sjálfsagt eru margir ósammála mér í þessu. En þetta er mín skoðun.

Jörundur Þórðarson, 8.9.2014 kl. 20:58

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Segðu mér eitt Jörundur: Hafa Morgunblaðið, RÚV, Stöð 2, eða aðrir fjölmiðlar greint okkur frá þessum meintu hroðalegu mistökum síðustu ríkisstjórnar?

Og annað: Hver eru þessi hroðalegu mistök, sem þú kallar svo?

Jóhannes Ragnarsson, 8.9.2014 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband