Leita í fréttum mbl.is

Henni veitir ekki af að hvíla sig fyrir páskabyltinguna

x2qfapo.jpgÆjá, ég held henni Hönnu Birnu okkar veiti ekki af að hvíla sig dulítið eftir allt atið sem hún hefir þurft að standa í, að ekki sé nú minnst á hina ruddalegu beinasna sem lögðu hana í einelti mánuðum saman eins glorhugruð úlfhundahjörð. Það er auðsjáanlegt, að Hönnu Birnu nægir ekki að liggja undir sæng á dívani með lattebolla í hönd og tærnar uppí loft fram í mars, hún þarfnast mikið lengri hvíldar. Þyrnirós róaði útjaskaðar taugar sínar með því að blunda í eina öld - Hanna Birna þarf nauðsynlega, heilsu sinnar vegna, á jafnlagri hvíld að halda.

En meðan okkar elskulega Hanna Birna er þreytt, svo undur þreytt að hún fylgir vart fötum, valsar Bjarni Ben um eins og styggur lambhrútur og lætur sér ekki muna um að vera í slagtogi með öðrum eins erkiskelmi og litla húskarli Framsóknarmaddömunnar, Sigmundi Davíð, og hans voðalega púkastóði. Já, þeir geta leyft sér það sem eru á mála hjá Engeyingum og gifturíka kaupfélagsstjórnanum á Sauðárkróki fyrir norðan land.

Nú ku vera í uppsiglingu hrikaleg mótmæli gegn ríkisstjórninni og er stefnt að því að steypa henni af stóli um páskaleytið. Skulu þá margir, sem ekki eiga sér neina upprisuvon, verða krossfestir, borðum víxlara ausið um koll og auðmönnum skipað að skríða gegnum nálarauga annars skuli þeir fá að vita hvar Davíð keypti ölið; en auðmenn eiga það allir sameiginlegt, að þeir vilja síst af öllu vita hvar Davíð keypti ölið, þeir vilja bara fá það ókeypis og selja það aftur á okurprísum. Standa vonir til, að Hanna Birna verði orðin það hress þegar nær dregur páskum, að hún geti tekið þátt í með byltingarfólki að velta andskotum sínum, þeim Bjarna Ben og Sigmundi Davíð, úr sessi og hrekja þá útúr helgidómi stjórnarráðsins.


mbl.is Hanna Birna áfram í fríi frá þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já blessunin ekki veitir af.  Enda held ég að hún komi ekki aftur til þings.  Það getur oft verið erfitt að horfa upp á mistök sín ekki síst ef þau eru á almanna vitorði.  laughing

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2015 kl. 20:52

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

,,Æ það það er búið að vera óttalegt fargan á henni" hefði sennilega verið sagt í Brekkukoti um raunir hennar.

Jóhannes Ragnarsson, 8.1.2015 kl. 21:16

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Haha já, þau eru ekki best sjálfsskaparvítin svo sannarlega.  En batnandi konu er best að lifa. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2015 kl. 21:51

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

cool

Jóhannes Ragnarsson, 8.1.2015 kl. 22:01

5 Smámynd: corvus corax

 "Mér finnst ég þurfa að vinna bet­ur úr þeirri reynslu og því sem ég hef að und­an­förnu lært um stjórn­mál, stjórn­kerfið, ís­lenskt sam­fé­lag og sjálfsagt bara lífið sjálft. Ég mun því, líkt og áður hef­ur komið fram, taka mér nokk­urra vikna hlé frá þing­störf­um. Ég ætla að nýta þann tíma vel..."

Fær maður veikindaleyfi út á svona ákvörðun? Get ég sem ríkisstarfsmaður bara ákveðið að nú ætli ég að taka mér nokkurra vikna hlé til að pæla í hinu og þessu ...og haldið fullum launum með því að kalla þetta veikindaleyfi? Hvaða læknir er tilbúinn til að skrifa upp á vottorð til þess arna? Eru slík læknisvottorð marktæk?

corvus corax, 9.1.2015 kl. 11:12

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þegar ríkisstarfsmaður er bugaður á sál og líkama eftir hrottalega og illviðrasama vertíð er sjálfsagt að dæma hann óvinnufæran.

Svo má reikna Hönnu Birnu til takna, að hún hefir svarið við skegg spámannsins, að draga fremur jákvæða en neikvæða lærdóma af svaðilförinni sem hlaust af þorparanum Tona Ómos.

En versta ólán hennar er samt að hafa rekist á Stefán Eiríksson, þau eiga ekki saman, hafa erfiða strauma sem ganga á misvíxl. Því fór sem fór.

Jóhannes Ragnarsson, 9.1.2015 kl. 11:23

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

En nú skilur maður all.  Hún er að bíða með að koma þangað til umboðsmaður er BÚIN AÐ SKILA INN ÁLITI SÍNU.  Hún er sem sagt að KOMA SÉR UNDAN ÁBYRGÐINNI. Ja Svei attann!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.1.2015 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband