Leita í fréttum mbl.is

Frú Gnarresen er ótvírætt tímamótahvalreki

reið konaÞað skoðast, sem einn sérdeilis lukkulegur búhnykkur fyrir Alþingi og Íslendinga alla, Heiða Kristín Gnarresen orðin þingmaður með fullan tillögu- og atkvæðisrétt á Alþingi. Annar eins hvalreki hefir vart rekið á fjörur löggjafarsamkomunnar síðan Árni Johnsen var fyrst kjörinn á þing. Og þvílík andlitslyfting fyrir Björtu framtíðna hans Gvöndar Steingríms, að fá frú Gnarresen í þingflokkinn, ekki síst vegna þess að hin virðulega frú var, að eigin sögn, hætt í pólitík (eins og hún hafi einhvern tíma verið í stjórnmálum)útaf lekandi fýlu útí Gvönd formann.

Eins og öllum er ljóst, þá er afrekalisti Björtu framtíðarinnar á Alþingi mjög langur; raunar svo langur, að manni dettur ekki minni mælieining í hug um þessi ósköp en ljósár. Til frekari glöggvunar, þá lítur listinn í heild sinni svona út: 1.) Tillaga um að breyta klukkunni annað hvort afturábak eða áfram um klukkustund. 2.) Um fleiri atriði á þessum lista er ekki að ræða. Til að lengja afrekalistann um að minnsta kosti 100%, hefir litla frú Gnarresen gripið til þess örvæntingarúrræðis, að leggja til við þingheim, að hann hundskist til að leggja bílum sínum skikkanlega í ,,nærumhverfi Alþingis." (Afskaplega gáfulegt og langskólalegt orð ,,nærumhverfi" og heppilegt til notkunnar fyrir nútímastjórnmálaskörunga).

En í meirihluta hverjum starfa þessi fáu bæjarfulltrúar Björtu framtíðarinnar hans Gvöndar og hennar frú Gnarresen í sveitarfélögum utan Reykjavíkur?


mbl.is Lagasetning eða bílasala?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hvumpinn

Þessi "kvenskörungur" er einnota alþingismaður. Hverfur eftir næstu kosningar. Þangað til bullar hún þarna.

Hvumpinn, 6.10.2015 kl. 19:08

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ha? Áttu virkilega við, að litla frú Gnarresen, sé það sem maður kallar ,,einota rusl?"

Jóhannes Ragnarsson, 6.10.2015 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband