Leita í fréttum mbl.is

Hlandsprengjan og morðvargurinn

fat_1244424.jpgVart væri í frásögur færandi hér á landi þótt einhver villuráfandi kvenmannsbelgur, trúlega hlandsprengja, sé orðin bálskotin í morðvargnum Breivik, ef ekki kæmi til sú nöturlega staðreynd, að hið ástfangna kvendi er rammíslenskt. Ekki sakar heldur að geta þess, að Victoría, en það er dulnefni konunnar, er að sögn gróflega pólitísk, hatar komma, krata, anarkista og múslíma. Hvar hún skipar sé í flokk verður ekki tíundað hér, en menn geta auðveldlega getið sér rétt til um það ef þeir kunna að ríma.

Ást Victóríu hlandsprengju á morðingjanum er bæði holdleg og andleg, enda er Breivik myndarlegur og háarískur á velli. Og það sem meira er: Morðvargurinn ku heimsækja hana á hvurri nóttu og sinna henni af alúð og natni, eins og Gvendur sálugi á eyrinni kindunum sínum 18. Þó segist Victóríu svo frá, að draumaprins hennar hafi í einni heimsókn sinni til hennar gert sér lítið fyrir og kukkað á gólfið í einu herbergishorninu. Það sem henni þykir einkennilegast við þann atburð er, að kukkurinn var enn í horninu þegar hún fór á fætur.

Ef heldur fram sem horfir, þá mun Victóríu verða komið fyrir á geðveikrahælinu á næstu vikum, því ófært er að láta þessa afmynduðu hlandsprengju engjast í rúmi sínu allar nætur með alræmt skrímsli milli hnjákollana; skrímsli, sem skirrist ekki við, að skíta í herbergishorn ástmeyjar sinnar!


mbl.is Segir Breivik sinn besta vin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband