Leita í fréttum mbl.is

Nokkur ódæðisverk illa artaðra hunda

dog6Samkvæmt frægum bókum eru rottuhundar dásamlegir hundar, sem sé: hundar af terríerkyni. En þeir éta menn, eins og jólakötturinn, ef lítið matarkyns er til á heimilinu. Og rottuhundurinn á Bretlandi, sem át eigenda sinn, er ekki einn um að hafa tekið það til bragðs. Nú, það eru ekki allir morðhundar því marki brenndir að hafa deytt húsbónda sinn með því leggja hann sér til munns. Ólafur bóndi á Akurfjöllum beið bana þegar hundurinn hans, íslenski fjárhundurinn Snati, hratt honum fyrir bjargbrún þegar þeir vóru í fjárleit að hausti. Þetta var 90 metra beint fall og undir eggjagrjótsurð. Ólafur bóndi var, þegar hann fannst fáeinum dögum síðar, fjarlægður af sveitungum sínum í nokkrum aðskiljanlegum pörtum. En þegar hann fannst, höfðu skarfar etið af honum bæði eyrun og nefnið líka, því þetta er sjávarbjarg með mörgum sjófuglum.

Þá er ekki úr vegi að minnast á búrtíkina, sem snörist gegn húsmóður sinni á búrgólfinu og beit hana til dauðs. Síðan át búrtíkin allt sem tönn á festi í búrinu og leið fjarska vel á eftir. Eftirlifandi mannfólki á bænum kom sér saman um að þetta hefði verið kattarins verk, enda hafði kattarafmánin áður flogið á fólk, þar á meðal blessaða húsmóðurina. Svo var kötturinn hengdur og konan jörðuð, en búrtíkin hélt velli því húsbóndinn hafði á henni miklar mætur. Önnur búrtík, á öðrum bæ, sem framdi fáheyrt ódæðisverk var afturámóti verðlaunum með því að vera kosin á þing. Og þannig mætti lengi telja afrekin búrtíkanna.

hundsbit2Einusinni beit bálgrimmur hundur Kolbein Kolbeinsson skrifstofu stjóra og framsóknarmann þegar hann var að slangra heim til sín síðla nætur. Kolbeini varð so um árásina, þó hann væri útúrmökkfullur, að hann gerði bæði meira og minna í buxurnar. Þegar brækjustybban gaus upp af Kolbeini varð hundurinn svo hræddur að hann tók til fótanna og kom ekki heim til sín í þrjá daga, og þegar hann kom heim hafði hann ekki lyst á mat heldur lagðist í þunglyndi og ýlfraði allar nætur. Það er af Kolbeini að segja, að þrátt fyrir hrakfarinar þá var ekki öll nótt úti fyrir honum. Hann kom á harðaspretti heim til sín, hratt upp útidyrahurðinni og kastað sér blóðugur og illa þefjandi inní gang. Þar tók á móti honum frú Ingveldur, og hélt áfram því verki er hundurinn hafði frá horfið, og misþyrmdi Kolbeini so harkalega að hljóðin í honum heyrðust í næstu hús. 


mbl.is Berjast fyrir lífi mannætuhunds
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband