Leita í fréttum mbl.is

Fólskuaðför úr Eyjafjarðarsveit

drunk5_1055369.jpgÞeir geta verið gamansamir húskarlar gömlu Framsóknarmaddömunnar þegar þeir eru búnir að fá sér neðan í því, og þeir eru þeim mun spaugilegir eftir því sem þeir eru minni og pervislegri. Það er auðséð á öllu, að framsóknafélagið í Eyjafjarðarsveit hefir verið augafullt við kvöldmjaltirnar og í því ástandi dottið í hug að gjöra aðsúg að Sigurði Inga formanni. Það sýnir best hve drullufullir þeir voru þessir fjósapúkar í Eyjafirðinu er að þeir voga sér að bregða Sigurði Inga og hans fólk um siðleysi, soleiðis leyfir enginn ófullur framsóknarmaður að segja um annan framsóknarmann. Hins vegar er þessi bíræfna árás á Sigurð Inga beinlínis yfirlýsing þeirra eigið ótakmarkaða siðleysi, siðblindu og siðvillu.

Auðvitað hefir gamla Framsóknarmaddaman ekki haft hugmynd fyrirfram um þetta forkastanlega fólskuspark Eyfirðingana í Sigurð Inga, enda mun það hafa verið af hennar frumkvæði sem Sigmundur Dávíð var settur af með skömm. Sú gamla veit hvað hún syngur, þó hrum sé og karlæg, og hún vissi hvað hún söng þegar hún ákvað að leiða Sigmund litla á hinn pólitíska höggstokk því henni var ofboðið og það ekki af ástæðulausu. Nú standa vonir til að Maddaman refsi hinum ærslafullu ódámum í framsóknarfélagi Eyjafjarðarsýsu fyrir voðverkið með því að stinga þeim á hausinn ofan í Framsóknarfjóshauginn eins og hvurjum öðrum sígarettustubbum. Eftir þá yfirhalningu verða þeir landlausir og verða að leita á náðir Viðreisnar eða Björtu framtíðarinnar eftir sáluhjálp.

Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni brá að vonum heiptarlega í brún er hann las um fólskuverka Eyfiringanna, því hann var hroðalega timbraður er hann fékk áskorunina dæmalausu í hendur. Og svo varð Kolbeini um þennan ófögnuð að hann hljóp beint á náðir ÁTVR og þaðan hljóp hann í einum blóðspreng heim til sín með fullt fangið af bjargræði hins timbraða manns og lokaði sig inni í herbergi og aflæsti. Á meðan hann svalg bjór, létt og sterkt til skiptis las hann skilaboðin frá hinum ósvífnu kollegum sínum í Eyjafjarðarsveit upp aftur og aftur. Og því oftar sem hann las og því meira sem hann drakk þeim mun alsgáðari varð hann uns hann fór að velta því fyrir sér í alvöru að hengja sig úti í bílskúr, en þar þóttist hann eiga nothæfan snærisspotta til verksins. En þegar ein báran rís er önnur vís og þá staðreynd fékk Kolbeinn Kolbeinsson nú að reyna á eigin skinni. Í bílskúrnum mætti Kolbeini ófögur sjón, síst til þess fallin að líkna örvæntingarfullum manni. Þar voru nefnilega fyrir Brynjar Vondalykt ásamt hjónunum Máríu Borgargagni og Indriða Handreði í fremur viðustyggilegri beðju og lyktin af þeim minnti Kolbein á bölvaðan þefinn af bréfinu frá óþokkunum í framsóknarfélaginu í Eyjafjarðarsveit.  

 


mbl.is Vill kjósa um nýja forystu flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: rhansen

það er ekkert i kringum þessi mál sem minnir á drykkjuskap nema ef vera skyldi pistlahöfundur sjálfur , og skrifað i ölæði !!!

rhansen, 10.5.2017 kl. 18:22

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú segir nokkuð, frú R. Hansen. En það er auðvitað kolrangt hjá þér að höfundurinn hafi skrifað pistilinn í ölæði. Og ég þykist viss um að þú þekkir drykkjulæti framsóknarmanna í Eyjafjarðarsveit af eigin raun, enda er það víst ekki neinn smá-gauragangur.

Jóhannes Ragnarsson, 10.5.2017 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband