Leita í fréttum mbl.is

Góðir tímar framundan

GrýlaÞað er ekki seinna vænna að ríkisstjórnin setji lögbann á verkfallstiltektir flugumferðarstjóra. Og ríkisstjórnin á ekki að láta þar við sitja, heldur á hún fylgja banninu eftir með því að setja lög sem afnema með öllu verkfallsrétt launamanna, svo spámenn eins og Birgir þessi Jónsson tapi ekki milljörðum á verkfallslátum. Bann við verkföllum á svo að setja inn í stjórnarskrána, svo ekki fari milli mála hvernig þessum málum er háttað hjá okkur.

Þegar verkfallsrétturinn verður úr sögunni hverfur samningsréttur launamannafélaga af sjónarsviðinu og ríkistjórnin getur með góðri samvisku lagt embætti ríkissáttasemjara niður og sparað með því ríkissjóði óhemju fjármuni. Mesti ávinningurinn af þessum aðgerðum er náttúrlega fyrir atvinnulífið, því þegar kjarasamningsréttur og verkfallsréttur þræla á sér ekki lengur stoð í landslögum mun andleg heilsa auðvaldssinna og arðræningja batna til mikilla muna og það fólk loksins fá um frjálst höfuð strokið og farið að sofa áhyggjulaust hverja einustu nótt.

Það hefir heldur ekki legið í láginni að borgarastéttin, kapítalíska arðræningjastóðið, á Íslandi er í mikilli sókn um þessar mundir. Því fyrir nú utan að farið sé að hylla undir langþráð afnám verkfallsréttarins er auðvaldið langt komið með að hrifsa allar orkuauðlindir landsins úr sameiginlegum höndum alþýðu manna. Áður hefur auðvaldið okkar gleypt fiskveiðiauðlindina með húð og hári, til mikillar blessunar fyrir samherja samherjanna, auk þess er auðvaldið í þann veginn að ræna bönkunum af fólkinu í annað sinn á þessari öld. Já, þeir eru miklir Samverjar samherjarnir. 


mbl.is Vonar að yfirvöld setji lögbann á verkfallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingjaldur H Ragnarsson

Er ekki rétt að loka svæðið allt, evrópa - amerika svo að það verði fært til abyrgra adila?

Ingjaldur H Ragnarsson, 16.12.2023 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband