Leita í fréttum mbl.is

Ófétin Heiða Klumb, van Klíf og Arpels

Æjá, hún hefur alltaf verið illa ófróm kerlingarnornin hún Heiða Klumb - alveg frá barnsaldri. Ég þekkti þetta kvikindi þegar það var krakki en þá var hún svo þjófótt að til stórrar hörmungar mátti telja. Síðar frétti ég hún hefði verið sett á villibarnaheimili og þar byrjaði hún víst að drekka fyrir alvöru. Ég veit mæta vel að Heiða Klumb, sem sá og sér fyrir sér með nekt sinni, hefur margt verra á samviskunni en að stela einhverjum hégóma frá firmanu, Van Klíf & Arpels. Reyndar eru þeir félagar, van Klíf og Arpels djöfull, sjálfir bölvuð aplafyl og rottur og andskotann ekkert skárri en Heiða garmurinn. Hér áður og fyrr, þegar réttlæti var í heiðri haft, hefði allt þetta hyski verið dæmt til að fara þrjá saltfisktúratúra í beit á gömlu síðutogurunum okkar. En það hefðu þessi hænsni vissulega ekki þolað og drepist úr uppgerð, strax í fyrsta túr og málið þar með blessunarlega úr sögunni. 
mbl.is Heidi lögsótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband