Leita í fréttum mbl.is

Þau hætta bráðlega að þekkjast í sundur

Slagsmál 2Auðvitað styður hin skapgóða Hanna Birna allar yfirlýsingar Vilhjálms Þorns Vilhjálmssonar og allt sem hann segir í bráð og lengd - eða datt einhverjum eitthvað annað í hug?

Og auðvitað mun Hanna Birna sækjast eftir borgarstjóraembættinu þangað til Vilhjálmur lýsir því yfir, ,,þegar nær dregur" að hann ætli sjálfur að setjast í borgarstjórastólinn þegar tími Ólafs F. er liðin. Og þá mun Hanna Birna að sjálfsögðu styðja þá ákvörðun Vilhjálms.

Það blandast engum hugur um að mikil og djúp eindrægni og vináttuþel ríkir alltaf og eilíflega í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Og svo mikil er eindrægnin og vináttuþelið, að Hanna Birna er alveg við að ná sjálfum Vilhjálmi leiðtoga í trúverðugleika. Ef fram heldur sem horfir, verður ekki með nokkru móti hægt að þekkja Hönnu Birnu og Vilhjálm í sundur, hvorki í sjón eða raun. Og þegar yfir lýkur og eindrægnin ríkir ein, ofar öllu jarðnesku efni, þá munu Hanna Birna og Vilhjálmur ekki lengur þekkja sjálf sig hvort frá öðru.


mbl.is Styður yfirlýsingu Vilhjálms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þau þekkjast í það minnsta í sundur á Hár(kollunni) ekki satt ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2008 kl. 09:40

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég held ekki, Ásthildur. Það kæmi mér ekki á óvart þó Vilhjálmur verði innan skamms kominn passíuhár eins og Hanna Birna. Nú eða Hanna Birna komin með töffaralega hárkollu eins og Villi. 

Jóhannes Ragnarsson, 25.2.2008 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband