Leita í fréttum mbl.is

Það á að hertaka Færeyjar og metalkurfana í Noregi

war3Það þýðir ekkert fyrir Norsarana að kenna þjáfaranum og markmanninum um tapið gegn Íslendingum; þeir verða að láta sér nægja að kenna Íslendingunum sjálfum um að hafa ekki unnið þá. Annars mega Norðmenn vera þakklátir fyrir að við Íslendingar skulum ekki lengur hafa Gretti Ásmundarson og Egil Skallagrímsson tagltæka til að lumbra á þeim eins og í gamla daga, en það voru sko menn sem kunnu lagið á að láta bölvaða oflátungana og metalkurfana í Noregi snýta rauðu svo um munaði. Einnig er ég stórhneykslaður á að Íslenska ríkisstjórnin skuli ekki, í aðsteðjandi efnahagsvanda, hafa gert ráðstafanir til að hertaka Færeyjar og þá í framhaldi það einkennilega skítaland Noreg. Það hefir nefnilega ætið gefið góð raun í hinum kapítalíska heimi, að efna til stríðsreksturs og styrjalda þegar að kreppir í efnahagslífinu heima fyrir.   
mbl.is Tveimur kennt um jafnteflið gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband