Leita í fréttum mbl.is

Mesta efnahagsmein þjóðarinnar verður að hverfa af vettangi strax

herr1Það hefur verið grátbroslegt að fylgjast með auðvaldsslektinu á Íslandi síðustu daga. Sjaldan eða aldrei hefur þetta stóð orðið jafn gríðarlega hrætt, aldrei jafn ringlað og fátið á því slíkt að manni dettur ósjálfrátt orðið úrkynjun í hug. Og það er aldeilis hlálegt að verða vitni að því að maður, sem formlega er hættur í pólitík fyrir nokkrum árum, skuli geta vaðið eins og óður nashyrningur fram á sjónarsviðið og tekið völdin af ríkisstjórn landsins. Það er ekki nokkur vafi á að með afreki síðustu helgar hefur Davíð seðlabankastjóri smánað og lítillækkað meirihluta Alþingis með þeim hætti að vandséð er að ríkisstjórn Gjeirs Haaarde eigi sér viðreisnar von. En það sem eftir stendur, er að nýfrjálshyggjustefna síðustu 17 ára er gjörsamlega hrunin til grunna, því geta ekki einusinni Hannes Hólmsteinn, Davíð Oddsson, Pétur Blöndal og Siggi Kári mótmælt.  Tími frjálshyggjunnar er einfaldlega liðinn og ekkert annað eftir en að fleygja hræinu á ruslahauga sögunnar. Það er að sálfsögðu mikið gleðiefni.

Að mínu mati er svo komið, að ekki verður lengur undan því komist að binda enda á ríkisstjórnarþátttöku Sjálfstæðisflokksins með einum eða öðrum hætti, ef nokkur möguleiki á að vera til þess að komast útúr núverandi ráðaleysi og ringulreið. Það ætti að vera öllum ljóst, að það er Sjálfstæðisflokkurinn sem er mesta efnahagsvandamál þjóðarinnar og um leið mesta mein hennar líka. Ef einhver töggur væri í Samfylkingunni myndi hún að sjálfsögðu þröngva Gjeir Haaarde til að rjúfa þing nú þegar og boða til alþingiskosninga. Næst besti leikurinn í stöðunni er að Samfylking, VG og Framsókn taki sig til og myndi ríkisstjórn og sýni að þeir séu flokkar sem þori að stjórna án Sjálfstæðisflokksins. Geri þessir flokkar það ekki má Andskotinn hirða þá með manni og mús. 


mbl.is 57 milljarða króna halli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Pétursson

Þakka þér fyrir að ætla að fleygja frjálshyggju  hræjunum á haugana,þá fær veiðibjallan úr nógu að moða.

Kristján Pétursson, 1.10.2008 kl. 20:54

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Var það ekki örugglega bankamálaráðherran, sem hlýddi kalli, líkt og hræddur rakki (bið rakka alla afsökunar að nota þessa myndlíkingu) frá helsta grósser og braskara síðari tíma hérlendis og þó víðar væri leitað mannjöfnuðar í þeim efnum?

ÞAð eru nú ekki einvörðungu ,,markaðslausnir" frjálshyggumanna, sem rótað hafa upp í seti í tjörnum peningahofa.

Ekki manst þú svo langt aftur, að borgaryfirvöld þáverandi (R-Listinn heitinn) buðu upp og sprengdu úr öllu hófi lóðagjöld?

Það eitt hækkaði meðal íbúð um c.a 11 milljónir í sölu.

Nei minn kæri, ekkert er hér einum að kenna, nema ef væri getuleysi dómstóla og ransakenda að hafa hendur í hári misyndismanna, sem gamblera með fé almennigs og heimta svo, að fá að vera í friði með góssið.

Það alfurðulegasta er þó, að það eru einna helst allskonar afbrygði að kommatitts liðinu, sem tekur undir sífrið í þeim núna.

Miðbæjaíhaldið

ætíð að vara við Höfuðsyndunum Sjö

Bjarni Kjartansson, 1.10.2008 kl. 21:19

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Jóhannes..

Ég segi það tæpitungulaust.. þú ert einn besti penni sem ég hef lesið hérna á bloggheimum. Virkilega fær ..

Stórskemmtilegur pistill hjá þér.

Brynjar Jóhannsson, 1.10.2008 kl. 21:19

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hvað er nýfrjálshyggja?

(Var einhver frjálshyggja í gangi? Nokkurntímann?  Mér virðist flestallt hafa verið bannað frekar en hitt...  Ekki mjög frjálshyggjulegt, það.) 

Hvað kemur í staðinn?  Nýfasismi?

Ásgrímur Hartmannsson, 1.10.2008 kl. 21:51

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Að það skulu vera til menn sem mæla skrattanum bót er stórundarlegt og ætti maður ekki að fá Sigríði Dúnu til að athuga fyrirbærið.  Hún er jú mannfræðingur.

Ég er fegin að hafa aldrei merkt X við D, svo ég frábið mér alla ábyrgð á óskapnaðinum.

Við erum ekki búin að sjá fyrir endan á þessu, er að vona að ISG muni láta til sín taka um leið og hún er heil heilsu.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 1.10.2008 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband