Leita í fréttum mbl.is

Listin að ögra þjóðinni

fokk júÞað mega framsóknarmenn eiga, að þeir kunna flestum betur þá list að skemmta sér við að ögra almennigi með því að glenna framan í hann löngutöng, gefa þjóð sinni fokkmerki, eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Að verðlauna Valgerði Sverrisdóttur í bak og fyrir er ekkert annað ögrun við þá þjóð sem Valgerður þessi tók af fullum þunga þátt í að koma á vonarvöl. Með þessari ósmekklegu verlaunaveitingu er Framsóknarflokkurinn að leggja blessun sína yfir einkavinavæðingu liðinna ára, frjálshyggjustefnuna og óstjórnina sem endaði með algjöru skipbroti. Að halda því fram að virkjunarsjúk frjálshyggjupersóna sé jafnréttissinnum góð fyrirmynd ber vott um ótrúlega spillt hugafar.Glæpamenn

Það er ljóst að Framsóknarflokkurinn kann ekki að iðrast, enda iðrast henn einskis, bætir einungis gráu ofaná svart.

Það er ekki nema von að gömlu Framsóknamaddömunni sé banalegan erfið. En hún mun þó sem betur fer andast að lokum. Þingið í fjósinu mun flýta fyrir burtsofnun þeirrar gömlu og er það vel.  


mbl.is Valgerður fær jafnréttisverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband