Leita í fréttum mbl.is

Draumkuntur með ESB-ívafi

dream.jpgKynleg kerling þessi Eygló Harðardóttir og dálítið svona utangátta eins og títt er með framsóknarfénað af hennar kalíberi. Þessi aðdáunarverða frauka hefur greinilega verið að velta sér uppúr Samfylkingunni að undanförnu og komist að þeirri niðurstöðu að samfylkingarfólkinu dreymi blauta drauma um ESB! Nú er það svo að hugtakið ,,blautir draumar" merkja áfergjufulla ástarlífsdrauma þar sem ólgandi kynlíf er haft um hönd og skaut. Þetta fyrirbæri er stundum kallað ,,draumkunta" og er sögð herja einkum á framsóknarmenn og konur. Ekki hef ég hugmyndaflug til að setja mér fyrir sjónir hvernig Eygló Harðardóttir sér draumkennda ESB-kynlífsorgíu Samfylkingarinnar fyrir sér. Og fyrst að frú Harðardóttir er svona vel að sér í blautlegum draumförum samfylkingarfólks verður hún að bæta um betur og upplýsa þing og þjóð í smáatriðum hvernig svona draumar ganga fyrir sig. 
mbl.is Blautir draumar Samfylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Indriðason

Við vitum vel hvað blautir draumar þýða en takk samt fyrir að upplýsa það. Þú heldur greinilega eins og allir Samfylkingarmenn að sá hluti þjóðarinnar sem ekki styður draumkuntu flokkin séu hálfvitar enda ekki við oðru að búast af þessu ESB liði sem gerir ekkert til að hjálpa fólkinu í landinu heldur einblínir á ESB aðild sem einu lausnina. það er ekki bjart framundan fyrir íslensk heimili ef þetta lið stjórnar lengi!

Björn Indriðason, 25.5.2009 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband