Leita í fréttum mbl.is

Ætu blásýru fyrir höfðingjana í ESB

Ég er satt að segja farinn að halda, í fullri alvöru, að ef ESB-höfðingjarnir óskuðu eftir því við þingmenn Samfylkingarinnar að þeir ætu ofaní sig ómengaða blásýru myndu þeir gera það með glöðu geði. Að vísu myndi blásýra hafa viss áhrif á heilsu Össurar og Árna Páls. En hvað gera menn ekki fyrir hinn tæra málstað, þó vondur sé, ef því er að skipta?
mbl.is Óþolinmæði og pirringur í garð Ögmundar og félaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Blöndal

Þú ert svo argur Jóhannes

Páll Blöndal, 12.8.2009 kl. 19:38

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vona að Ögmundur standi af sér þessa aflúsun.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2009 kl. 21:18

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Staða Ögmundar styrktist verulega á Kópavogsfudinum í gærkvöldi, sem gefur góðar vonir um að honum, og hans baklandi í flokknum, takist að hrinda atlögu hægriarmsins, flokkseigendafélagsins, að honum.

Hinsvegar skil ég ekkert í honum Páli okkar hérna Blö, hann er eitthvað svo andskoti viðskotaillur og styggur. En sennilega stafar þessi krankeiki karlsins af taugaveiklun í sambandi við einhvern leiðindakmplex sem tekið hefur sér bólstað í höfðinu á honum.

Jóhannes Ragnarsson, 12.8.2009 kl. 21:50

4 Smámynd: Páll Blöndal

ég var nú bara að reyna að hafa róandi áhrif á þig Jóhannes minn.

Páll Blöndal, 12.8.2009 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband