Leita í fréttum mbl.is

Óráðskallinn Askinaski mærir yfirspenntan snobbismaviðbjóð

pian Helvítis rugludallur getur þessi ekkisens Askinaski verið, segist hafa fengið ,,innblástur" við að tipla um um hið afkáralega minnismerki um vitfirringu frjálshyggjugræðgisáranna í Austurhöfn Reykjavíkur, tónlistarhöllina miklu sem til stendur að henda meira en 30 milljörðum í áður en yfir lýkur. Það væri gaman að vita hverskonar trekkvindur það var sem blés anda sínum inní rörið á Askinaski. Þó að Askinaski sé þrautseigur píanóglamrari og víðfrægur sem slíkur á Íslandi, þá er ekki þar með sagt að fjölmiðlar eigi birta óráðshjalið í karlskepnunni ómelt.

Að mæla með tugmilljarða tónlistarhúsi á sama tíma og þjóðin liggur hryggbrotin í blóði sínu eftir aðfarir allrahanda frjálshyggjubrjálæðinga er raun og sannleika ekkert annað últrafáránlegt óráðshjal. Það er með algjörum endemum að Ríkið og Reykjavíkurborg séu látin ausa ótrúlegum fjárhæðum í slíkan yfirspenntan snobbismaviðbjóð. Það etur andskotann ekki annað verið, en að þeir sem standa fyrir þessum ósköpum eigi við alvarleg geðræn vandamál að stríða, sennilega geðkrabba eða stökkbreytt geðfár. 


mbl.is Agndofa og þakklátur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þú veist ekkert um sígilda tónlist/heimsmenningu vertu þá ekki að dæma menn sem vita aðeins meira en við.

Hlöðver Sigurðsson (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 17:48

2 identicon

Sammála Jóhannesi. Þetta er "steypa", eins og orðtakið segir.

Öndin trítilóða (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 22:13

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Verið ekki með þetta, við þurfum steypu og aftur steypu, langar ykkur kannski inn í moldarkofana aftur.  Ég er búin mánaðarlega að greiða í mörg ár fastan aur í uppbyggingu tónlista´húss og ég vil fara að sjá það klárað.

En ég vil ekki sjá nafn Landsbankans eða annarra á byggingunni þegar þar að kemur.  Ég vil að Björgólfsfeðgum og fleiri snobbhænsnum verði bannaður aðgangur að því húsi.

Við brettum bara upp ermar upp fyrir olnboga.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 7.9.2009 kl. 15:09

4 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hvað er eiginlega að þér manni??????  Er ekki annars allt í góðu?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 9.9.2009 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband