Leita í fréttum mbl.is

Þökkum Drottni fyrir Sjálfstæðisflokkinn

kapital11Mikil guðsgjöf er blessaður Sjálfstæðisflokkurinn, fyrir hann ber oss að þakka Drottni af sannri auðmýkt hjartans. Innblásninn af mammonískum guðsanda tókst Sjálfstæðisflokknum að trekkja upp falskt góðæri með groddalegum frjálshyggjukapítalisma, sem hrundi að lokum til grunna. Því skulum vér muna, kvölds og morgna og miðjann dag, að þakka Sjálfstæðisflokknum yfirstandandi kaupmáttarhrap, vaxtaokur, skuldafangelsi og IceSave. Og vér skulum ekki leiðast í þá freisni, að hallmæla Sjálfstæðisflokknum, eða nota ljót orð um Foringja hans og þingmenn, fyrrverandi og núverandi. Þá skulum vér biðja Skaparann um að frelsa oss frá því illa innræti, sem lýsir sér í því að kenna Sjálfstæðisflokknum og hans göfugu hugsjón um allt sem aflaga hefur farið síðustu tvo áratugina.

Og vér verðum ætíð að hafa hugfast, að Sjálfstæðisflokksins á eilíflega að vera mátturinn og dýrðin á Íslandi, og vér eigum að biðja guð peningahyggjunnar og græðginnar um að festa oss það svo rækilega í minni, að vér gleymum því alrei. Amen.


mbl.is Enn lækkar kaupmáttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kaldhæðni getur verið skemmtileg.

Sá er hér ritar þakkar "Drottni" sannarlega fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Án hans gætu þegnar þessa lands aldrei upplifað þá örvæntingu sem hann hefur skapað og í framhaldinu þá vitundarvakningu sem allri örvæntingu fylgir.

Vegir "Guðs" ku vera órannsakanlegir. Hvern hefði grunað að Sjálfstæðisflokkurinn væri tæki "Guðs" til að auka vitundarstig þjóðarinnar?

Greppur Torfason (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband