Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarmaðurinn Tchenguiz hverfur ásamt Framsóknarflokknum, Kaupþingi og Gift

xbSkelfilegt er til að vita að veldi framsóknarmannsins Roberts Tchenguiz sé að hverfa, rétt eins og Framsóknarflokkurinn, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Valgerður Sverrisdóttir og Ólafur bóndi á Miðhrauni. Þess utan er blessuð Framsóknarmaddaman önduð fyrir nokkru síðan, en farið er með fráfall hennar eins og mannsmorð innan Framsóknarflokksins og reynt að halda því vandlega leyndu. Gamla konan fékk lokaáfallið þegar hún frétti af því veleðla fyrirtæki Gift og örlögum þess. Þeir ku fela líkið af henni í fjósflórnum í Framsóknarfjósinu, en hann hefur ekki erið mokaður í ein fimmtán ár. En hvað um það, þeir lenda hvort sem er allir í þessum sama fjósflór innan skamms, Tchenguiz og félagar hans í Framsóknarflokknum, Kaupþingi og Gift. Bættur sé skaðinn.
mbl.is Veldi Tchenguiz að hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband