Leita í fréttum mbl.is

Froðufundur dáðlausra smáborgara.

Folk-med-haus-i-sandi_1408691242Það hefur lítil alvara verið að baki þessum fundi fyrst ekki kom fram tillaga um að banna helstu ofbeldissamtök landsins, Sjálfstæðisflokksins.

Öll fundarhöld um afnám ofbeldis eru hjóm eitt ef menn hafa ekki manndóm í sér til að ráðast að rót vandans og krefjast þess að hinn alræmdi merkisberi kapítalismans og ágirndarinnar, Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi, verði lagður í rúst með einu áhrifaríku áhlaupi, sem geri útaf við þessi öfgasamtök í eitt skipti fyrir öll.

Það er greinilegt á öllu að fundur verslunareigenda og Íbúasamtaka miðbæjarins í kvöld hefur verið ein allsherjar froða um froðu, rétt eins og fjármálagjörningar peningaperverta Sjálfstæðisflokksins sem ollu efnhagshruninu 2008. 

En umræddir verslunareigendur og miðbæjaríhöld mega svo sem mín vegna stinga hausum sínum eins djúpt í sandinn og þau geta, eða míga uppí vindinn eins og þau lystir allt þar til þau drukkna í eigin froðufrussi. Ég syrgi þau ekki, fari þau vel.


mbl.is „Samstarfsverkefni okkar allra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Úr þessari frétt: 

„Mér hefur verið það mikið kappsmál að vinna að ofbeldisfullri borg,“ sagði Jón Gnarr.

Tja, þegar borgarstjórinn sjálfur vill meira ofbeldi, hvað er þá til ráða? 

Vendetta, 15.2.2011 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband