Leita í fréttum mbl.is

Sjálfsblekking Bolvíkinga er algjör

exd-ghrein-tverks_926085711.gif

Það eru ljótu smámennin þessir Bolvíkingar, ef satt reynist sem sagt er, að þeir gráti að kerlingasið við það eitt að horfa á sauðfé á beit. Nær væri þessum kotkörlum að siga hundum sínum á ærnar, eða skjóta þær af færi með vopnum sínum, ef þeir eiga einhver slík í fórum sínum.

Þó hygg ég að það séu ekki kindur sem lagst hafa á garða Bolvíkinga að þessu sinni til og valdið þeim sorg og táraflóði.  Miðað við lýsingarnar á framferði meintra garðára, fæ ég ekki betur séð en að þar sé valdur að verki sómi Vestfjarða, sveð og skjöldur, sjálf þingkonan Einar Kr. Guðfinnsson, sú hin sama og féll niður í ruslflokk í síðasta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Er nú fátt betra í stöðunni þar vestra en heimamenn varpi hlandsprengju á ára þenna og freisti þess að hann fælist við og hlaupi á fjöll sem fætur toga, líkt og hann heði fengið beitta kvótaflaug úr vopnabúri LÍÚ í afturendann á sér.

Nei, Bovíkingar góðir, það hefur lítið uppá sig fyrir ukkur að kenna sauðfé og jafnvel sauðnautum um óknyttina sem Einar Kr. fremur.


mbl.is Rollur ráðast á garðana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband