Leita í fréttum mbl.is

Samkvæmt draumi munu stór tíðendi í vændum

vik_1239908.jpgEkki þykja mér það góð tíðindi að óráðvandur maður, eða óráðvönd kona, hafi farið þjófshendi um heimíli Benedikts víkings og haft á brott með sér forláta sverð. Grunar mig að styttist nú mjök í að vopn hins kná víkings muni litast mannsblóði. Til sannindamerkis um grun minn, þá dreymdi mig aðfaranótt síðasta mánudags, að ég væri staddur í miklu fjölmenni, líklega á þjóðhátíð í Eyjum. Þókti mér sem ég stæði uppi á hól nokkrum eða eða í hlíðarslakka og væri að virða mannsöfnuð þann er þar var fyrir mér. Allt í einu sé ég hvar þjóðsagnapersónan og óráðsíugepilinn Brynjar Vondalykt kemur aðvífandi með fasi nokkru og hefir nakið sverð í hægri hönd en skaröxi í hinni vinstri. Hefir Brynjar aungvar vöflur á, heldur ræðst í mannþyrpinguna miðja og höggur ótt og títt á bæði borð og verður þegar mikið mannfall því vopn hans vóru beitt sem rakvélarblöð. Varð þá fát mikið og fum uppi og flúðu allir af vettvangi sem ekki vóru þá þegar dauðir fyrir bitjárnum hins horska árásarmanns. En Brynjar Vondalykt var að vonum glaður yfir vel unnu verki, því hann hrópaði hátt og snjallt, þar sem hann stóð keikur innanum sundurhoggna líkami hinna dauðu: Ég er meiri en Egill á Borg, Víga-Styrr og Grettir sterki! Við siguróp Vondulyktarinnar vaknaði ég með óhug í brjósti.

Að framansögðu má ljóst vera, að hið tilfinningaþrungna sverð Benedikts víkings sé komið í klærnar á helsti vafasömum mönnum, því það eitt að dreyma Brynjar Vondulykt við umfangsmikla morðiðju er bein ávísun á versta djöful og andskota ásamt drjúgum óförum þeirra er landinu stjórna. Kæmi ekki á óvart, að innan tíðar verði þau víg vegin er þjóðin muni hvort í senn fagna og lofa en höfðingjar harma.
mbl.is Þjófar vígbúast víkingasverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband